Austurland


Austurland - 04.09.1991, Blaðsíða 3

Austurland - 04.09.1991, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR, 4. SEPTEMBER 1991. 3 Um hraðamælingar í Neskaupstað Þann 30. júlí sl. tók lögreglan í Neskaupstað í notkun nýjan radar af fullkomnustu gerð til hraðamælinga. Með þessum nýja radar breyttist aðstaða lög- reglunnar til hraðaeftirlits rnikið til batnaðar, því fyrir hafði lög- reglan aðeins til þessara nota gamlan og skammdrægan radar. Þessi nýji radar virkar þannig að bæði er hægt að mæla með hon- um þegar lögreglubifreiðin er kyrrstæð og á ferð. Ef lögreglu- bifreiðin er kyrrstæð þá má stilla radarinn þannig að hann sendi ekki frá sér radargeisla, en er samt sem áður í viðbragðsstöðu, þannig að þegar lögreglan sér ökutæki koma, sem virðist vera á mikilli ferð, er radargeislanum skellt á augnablik og hraðinn festur á skjá. Þegar þessari að- ferð er beitt sleppa þeir sem eru með radarvara ekki. Augljóst er að nýi radarinn veitir mönnum talsvert aðhald, því það er samdpma álit þeirra sem lögreglan hefur rætt við, að umferðarhraði í bænum hafi snarlega minnkað. Sömu sögu er að segja úr Norðfjarðarsveit, þar virðist hraðinn hafa minnk- að líka. Þrátt fyrir að hraðinn hafi minnkað eru þó alltaf ein- hverjir sem ekki geta passaði sig og hafa á þremur fyrstu vikun- um sem radarinn hefur verið í notkun samtals 22 ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur og fjölmargir áminntir. Er þetta að sjálfsögðu alltof há tala. Lögreglan hefur í kjölfar þessara hertu aðgerða í hraða- mælingum fengið margar fyrir- spurnir um á hvaða hraða öku- menn séu sviptir ökuskírteinum sínum „á staðnum" eins og það er kallað. Því er til að svara, að þetta er bundið lögreglu- umdæmum og engin föst regla til varðandi þetta, en í mörgum umdæmum hefur verið notuð sú vinnuregla, að svipta menn öku- leyfi þegar þeir eru komnir 40 - 50 km/klst. fram yfir hámarks- hraða. Þessi regla er ekki í gildi í Neskaupstað,heldur fer þetta eftir á hvaða götum brotið á sér stað og við hvaða aðstæður og eins hve lengi viðkomandi hefur haft ökuleyfi. Þannig missir sá sem er á bráðabirgðaskírteini ökuleyfi á minni hraða en sá sem er kominn með fullnaðar- skírteini. Þá er rétt að benda á að það sem af er þá er meðalald- ur þeirra sem teknir hafa verið fyrir of hraðan akstur 27,5 ár, 13,6% á aldrinum 17 - 20, 36,4% á aldrinum 20 - 25 ára, 13,6% á aldrinum 25 - 30 ára og 36,4% á aldrinum 30 ára og eldri. Þannig sést á þessum tölum að það eru ekki endilega yngri ökumennirnir sem aka hraðast. Rétt er að benda á að í sam- bandi við hraðaakstur geta al- mennir borgarar veitt hrað- skreiðum ökumönnum aðhald því ef menn verða vitni að glannafengnum akstursmáta þá ættu þeir að bregða snöggt við og kæra viðkomandi ökumann. Þurfa þeir þá helst að ná númeri bílsins eða greina frá hver hafi verið ökumaður og eins er gott ef fleiri vitni eru að málinu að tilgreina þau. Ef meira væri um svona aðgerðir þá vissu menn, að það væri ekki nóg að passa sig, þegar lögreglan er á ferð- inni, heldur líka þegar lögreglan er ekki á vakt. Þá er vert að vekja athygli á því, að núna á næstunni verður farið að beita svokölluðum lög- reglumannasektum, en þá fá menn sekt á staðnum fyrir smærri umferðarlagabrot s. s. ef ekið er án öryggisbelta eða án þess að nota ökuljós, fyrir að leggja eða stöðva ranglega o. s. frv. Er mönnum síðan boðið að gera sektina upp á staðnum eða koma á lögreglu- stöðina eða til bæjarfógeta inn- an viku og gera upp sína skuld. Er ekki að efa að þessar aðgerð- ir eiga eftir að draga mjög úr umferðalagabrotum því fátt kemur verr við menn en að þurfa að taka upp veskið og borga. Þetta sektarform er al- þekkt erlendis en er nú fyrst ver- ið að taka upp hérlendis. Til sölu Tvær notaðar eldavélar Seljast ódýrt Upplýsingar í síma 71744 Norðfirðingar 37 ára karlmaður óskar eftir her- bergi m/eldunaraðstöðu eða ódýrri einstaklingsíbúð í Neskaupstað. Reglusemi, skilvísum greiðslum heitið og meðmæli ef óskað er. Óska einnig eftir atvinnu I Nes- kaupstað. Upplýsingar í símum 91-651503 og 10837. Konráð $ Frá Þrótti Lokahóf knattspyrnudeildar Þróttar veröur haldið í Egilsbúð laugardaginn 7. september nk. Yngri flolýkar kl. 1700 (foreldrar takið með ykkur köku) - Meistaraflokkur karla og kvenna kl. 2000 Knattspyrnudeild Þróttar GRÆNA HORNIÐ Sorp Segja má að brqðl ogsóun einkenni lífshætti okkar. Varlega áætlað mun hver einstaklingur fleygja um 400 kg af rusli á ári. Hver fjögurra manna fjölskylda hendir rúmlega hálfu öðru tonni af heimilissorpi árlega. Til viðbótar kemur úrgang- ur frá fyrirtækjúm, verksmiðjum og stofnunum. Hérlendis er sáralítið endurunnið af því sorpi sem til fellur, en þar sem best ér staðið að flokkun og endurvinnslu erlendis hefur tekist að minnka það sorpmagn sem þarf að eyða um allt að 80%. í daglegu sorpi er mikið af efnum sem geta haft skaðleg áhrif á umhverfi óg heilsu manna. Þar má nefna ýmsa þung- málma, sýrur, klórefni,.kvikasilfur, leysiefni, málningu, lökk, skordýraeitur og lyf. Þessi efni þurfa sérstaka meðhöndlun og eyðingu. Eini móttökustaðurinn fyrir slíkan úrgang er á höfuðborgarsvæðinu, en auðvitað þyrftu að vera móttöku- stöðvar um allt lánd. Gefum gaum að því hvort við getum ekki í mörgum tilfellum komist af án þessara efna, sem oft eru keypt í hugsunarleysi og notuð í óhófi. VERKMENNTASKÓLI AUSTURLANDS Skóíasetning Sunnudaginn 8. september í tilefni 10 ára afmælis framhaldsskóla í Nes- kaupstað og 5 ára afmælis Verkmenntaskóla Austurlands verður skólasetning með nokkrum hátíðarbrag sunnudaginn 8. september. Á þess- um tímamótum verður fyrsti hluti nýrrar heima- vistar tekinn í notkun. Hátíðardagskráin hefst kl. 15 í Egilsbúð. Að henni lokinni verður nýja heimavistin skoðuð og bornar fram kaffiveitingar. Nemendur, gamlir sem nýir, foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru boðnir velkomnir. Skólameistari. Miloba kynning Snyrtifræðingur verður með kynningu á hinum vinsælu Milopa snyrtivörum hjá okkur í apótekinu fimmtudaginn 5. september nk. Notið tækifærið og kynnist góðum vörum á góðu verði. Allir velkomnir. NES ]f[ APÓTEK Neskaupstað @71118 Haustútsala 30% afsláttur af blómapottum, kerum, skálum, kertum og serviettum Laufskálinn Hafnarbraut 1 Neskaupstað ® 71212 ATVINNA - ATVINNA Okkur vantar starfsmann til uppfyllingar í kjötborð Kf. Fram, einnig til annarra afgreiðslustarfa Upplýsingar gefa: Ingi Már @ 71300 Ásvaldur @71301

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.