Austurland


Austurland - 04.09.1991, Blaðsíða 2

Austurland - 04.09.1991, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR, 4. SEPTEMBER 1991. MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS Útgefandi: Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandí Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason, Einar Már Siguröarson og Smári Geirsson Ritstjóri: Smári Geirsson (ábm.) S 71630 Ljósmyndari: Ari Benediktsson Ritstjórnarskrifstofa: ® 71750 og 71571 Auglýsingar og dreifing: Sólveig Hafsteinsdóttir S 71571, 71750 og 71930 Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar: Egilsbraut 8 ■ Pósthólf 75 ■ 740 Neskaupstaður • S 71750 og 71571 AUSTURLAND er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða Prentun: Nesprent EES og sjáyarútvegurinii í lok júlí sl. sigldu samningaviðræður EFTA-ríkja og Evrópubandalagsins í strand, meðal annars vegna ágreinings um sjávarútvegsmál. Það kom í Ijós, að ráðherrar í Noregi og á íslandi höfðu oftúlkað stór- lega niðurstöðu samningafunda þessara aðila í júní- máriuði, þegar þeir töluðu um stórsigur. Pá gerðist það að íslensk stjómvöld féllust á að hleypa skipum frá Evrópubandalaginu inn í íslenska fiskveiðilögsögu og töldu sig í staðinn hafa fengið fellda niður tolla á innfluttum sjávarafurðum til EB. í júlílok voru það Norðmenn sem töldu sig svikna af Evrópubandalaginu, en engum sögum fór um afstöðu EB að því er ísland varðaði. Ýmis fleiri atriði voru þá óleyst og frekari samningaviðræðum var slegið á frest á meðan EB-kerfið væri í sumarleyfi. Nú eru kontórarnir í Brussel hins vegar búnir að opna á ný og leikurinn að fjöregginu getur haldið áfram. Af ummælum norskra ráðamanna er ljóst, að þeir leggja allt kapp á að ná samningi við EB, nánast hverju sem til þarf að kosta. Þannig hafa norskir ráðherrar gefið til kynna að ekki þýði að halda til streitu kröfunni um fullt tollfrelsi fyrir fiskafurðir og jafnframt lagt áherslu á að önnur EFTA-ríki þurfi að leggja sitt af mörkum til að samningar takist. Þetta eru skilaboð m. a. til íslendinga, að þeir verði enn að slá af kröfum sínum. Minna má á, að Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra lýsti því yfir á þingi í júní, að ekki kæmi til greina að slá af kröfunni um fullt tollfrelsi. Nú er eftir að sjá hvort sjávarútvegsráðherrann og ríkisstjórnin í heild stendur við orð sín. „Samstaða“ hefur verk að vinna En það eru fleiri Ijón að varast á sjávarútvegssviði en tollar og veiðiheim- ildir í samskiptum við Evrópubandalagið. Þann 25., júlí sl. féll dómur í dómstól Evrópubandalagsins í Lúxemburg í máli Spánverja gegn Bretum út af lagahindrunum gegn fjárfestingum í fiskiskipurn og kvóta í breskri lögsögu. Dómstóllinn dæmdi bresku lögin ómerk en í stað þeirra skulu gilda reglur EB á þessu sviði. -Pessi dómur hefur vakið óhug hjá Dönum, sem mega vænta hins sama og út af honum hafa orðið miklar umræður í Noregi. Þrír norskir lagaprófessorar hafa lýst því yfir, að miklar líkur séu á að eins fari fyrir Norðmönnum, ef þeir ganga í Evrópskt efnahagssvæði, mema því aðeins að skýrt og ótvírætt sé tekið fram í sjálfum samningnum að fiskveiðar og fiskiðnaður séu undanþegin EB-samþykktum. Ekkert slíkt ákvæði er enn að finna í samningsdrögunum. íslendingar ættu að fara að átta sig á, að í EES-viðræðunum erum við á brún hengiflugs. Það er fagnaðarefni að í síðustu viku voru stofnuð þverpólitísk samtök, „Samstaða um óháð ísland“, til að fylkja til andstöðu við ráðgerðan samning og hugmyndir um að sækja um aðild að Evrópu- bandalaginu. Þessara samtaka bíður niikið verk, ekki síst við að upplýsa fólk um eðli þeirra viðræðna, sem hugmyndir eru um að ieiða til lykta innan skamms. Nú þurfa sem flestir að veita þessum nýju samtökum brautargengi til að stöðva þetta feigðarflan. Hjörleifur Guttormsson Knattspyma Stórsigur Þróttarstúlkna Þróttur tryggði sér áfram- haldandi setu í 1. deild kvenna að ári með stórsigri á Tý, 10 - 1 sl. laugardag. Hattarstúlkur unnu sér rétt til þátttöku í 1. deild að ári og drengirnir þar á bæ eru á góðri leið með að vinna sér sæti í 3. deild í fyrsta sinn. 1. deild kvenna Jafntefli í Eyjum hefði dugað Þrótti til að halda sæti í 1. deild en norðfirsku valkyrjurnar létu eyjapæjurnar aldeilis finna til tevatnsins og unnu stórsigur 10 - 1. Sjö stúlkur skiptu mörkun- um á milli sín, Inga Birna gerði þrjú og er því meðal þeirra markhæstu í deildinni, Karitas gerði tvö og þær Anna Jónsdótt- ir, Jóna Lind, Harpa Her- mannsdóttir, Sigrún Haralds- dóttir og Jóna Petra eitt hver. Þær þrjár síðastnefndu gerður þarna sín fyrstu 1. deildar mörk. Á sunnudag var svo spilað gegn UBK sem vann 4-0. 2. deild kvenna Höttur, sem vann keppnina hér fyrir austan, keppti ásamt KS og Stjörnunni um tvö laus sæti í 1. deild. Úrslit urðu sem hér segir: KS - Höttur 0-1, Stjarnan - Höttur 11-0, KS - Stjarnan 3-4. Þessi úrslit gerðu það að verk- um að Stjarnan og Höttur áunnu sér fyrstudeildar sæti og það verða því tvö austanlið í 1. deild að ári. Meistaramót UÍA í sundi 21 Austur- landsmet féllu Meistaramót Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands í sundi fór fram í Neskaupstað 24. - 25. ágúst sl. Árangur á mótinu verður að teljast afar góður enda féllu á því hvorki fleiri né færri en 21 Austurlands- met. Sá sundmaður sem drýgst- ur var við metasöfnun var Seyð- firðingurinn Einar Þór Hall- dórsson sem setti alls fjögur Austurlandsmet á mótinu. Fast á eftir Einari kom Halldór Sveinsson frá Neskaupstað sem setti þrjú met. Bikarkeppni Sundsambands íslands verður haldin í Reykja- vík dagana 13. - 15. september nk. og mun úrvalslið frá UÍA taka þátt í henni. 3. deild karla Þróttur lék við Völsung fyrir norðan og tapaði 1-2. Það var Kristján Svavarsson sem skor- aði fyrir Þrótt. Þróttarar áttu mörg góð færi til að skora en þeir voru ekki á skotskónum. Tveimur augljósum víta- spyrnum á Völsung var sleppt en ekki sá dómarinn ástæðu til að flauta og það þýðir víst ekki að deila við hann. Þá fer að líða að því að íþróttamótum sumarsins ljúki, svo er um mót okkar í Golf- klúbbi Norðfjarðar. Starfsemin hefur aldrei verið gróskumeiri en í sumar bæði hvað varðar þátttöku í sjálfri íþróttinni og einnig í framkvæmdum á vellin- um, en áður hefur AUSTUR- LAND sagt ítarlega frá fram- kvæmdum við golfskálann, sem var að sjálfsögðu mesta breyt- ingin á högum klúbbsins. Fjölg- un félaga í klúbbnum hefur orð- 4. deild - Úrslit Höttur gerði góða ferð til Blönduóss og sigraði Hvöt 4 - 1. Með sigrinum færðist Höttur skrefi nær 3. deild og um næstu helgi fer svo fram síðasti leikur- inn gegn Ægi frá Þorlákshöfn. En Ægir er sennilega eina hðið sem getur keppt við Hött um annað lausa sætið í 3. deild því Grótta frá Seltjarnarnesi hefur þegar tryggt sér hitt. Það er því ástæða til að hvetja alla Héraðs- menn til að fjölmenna á völlinn um næstu helgi. EK ið mjög mikil í sumar og telur klúbburinn nú um 70 félaga. Klúbburinn undirbýr nú hina ár- legu firmakeppni og hafa undir- tektir félaga í bænum verið sérlega góðar. Firmakeppnin verður hald- in helgina 14. - 15. september nk. og er skorað á alla meðlimi klúbbs- ins að taka þátt í þessari keppni. Nú um næstu helgi em félagar beðnir um að mæta til gróðursetn- ingar á trjáplöntum á vallarsvæð- inu, en það verður nánar auglýst í golfskálanum. SÞ Árið 1990 sigraði Síldarvinnslan hf. í firmakeppni Golfklúbbsins, en leikmaður var Birgir Sigurjónsson, sem hér sést afhenda Finn- boga Jónssyni forstjóra sigurlaunin. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmuog langömmu Fanneyjar A. Gunnarsdóttur Mýrargötu 18 Neskaupstað Auðbjörg Njálsdóttir Jóhann Hjálmarsson OlöfNjálsdóttir Jón Nóason Brynhildur M. Njálsdóttir Þorleifur Már Friðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Sérstakar þakkir til þeirra er veittu ómetanlega hjálp og stuðning. Frá Golfklúbbi Norðfjarðar

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.