Dægradvöl - 01.12.1947, Blaðsíða 2

Dægradvöl - 01.12.1947, Blaðsíða 2
2 DÆGRADVÖL. byssa Hendricks, sem hann venjulega geymdi innst í skrifborðsskúffu sinni, merktri A, fannst í gangin- um fyrir framan skrifstofuna og hafði verið hleypt af henni tveim skotum. Banakúlan lenti í veggnum eftir aö hafa farið í gegnum höfuðkúpu Hendricks. Veggklukkan gekk „eins og klukka“ þar til hún stoppaði. Hendricks hafði ekki farið úr skrifstofu sinni síðan um hádegið. Skrifstofa Hendricks er r<4t við aðalbraut mikið notaðrar járnbrautarlestar. Dr. Alvís tók strax til óspilltra málanna og yfir- heyrði tvo menn: Skrifara Hendricks, sem fór heim til sín kl. 4.00 og mætti ekki aftur til vinnu þann dag; og son Hendricks, Henry að nafni, sem var ó- sáttur við föður sinn, en hafði komið til bæjarins kl. 5.00 og farið aftur kl. 7.00. Geturðu nú, á grundvelli þessara upplýsing og með tilliti til verks-ummerkja, sannað morðið á ann- anhvorn hinna grunuðu? Ef ekki, þá svaraðu eftir- farandi spurningum játandi eða neitandi og til- greindu ástæður fyrir svörum þínum: 1. Hafði Hendricks verið að vinna á Fimmtudags- eftirmiðdaginn? Já. Nei. Sönnun: .................................... 2. Var peningaskápurinn sprengdur upp? Já. Nei. Sönnun: ......................:............. 3. Getur rán hafa verið ástæðan fyrir glæpnum? Já. Nei. Sönnun: .................................... 4. Hafði illvirkinn ástæðu til að halda, að Hend- ricks væri efnaður maður? Já. Nei. Sönnun: .................................... 5. Er burtför Henry’s með 7-lestinni nokkur sönn- un fyrir sekt hans? Já. Nei. Ástæða: .................................... >6. Er líklcgt að mor5Singinn Ha£i náft byssunni á meðan Hendricks sat við skrifborð sitt? Já. Nei. Sönnun: .................................... 7. Þrátt fyrir að fólk var umhverfis húsið allan eftirmiðdaginn, heyrðist ekkert skot. Bentu á fullnægjandi skýringu þessari stað- reynd til stuðnings. Ástæða: .................................... 8. Hvað var Hendricks að gera þegar hann var skotinn? Hann var að: ............................... 9. Er nokkuð sem bendir til áfloga eða ryskinga? Já. Nei. Hversvegna? ................................. 10. Hvar stóð morðinginn þegar hann skaut Hend- ricks: Við gluggann? Fyrir framan skrifborðið? Fyrir aftan skrifborðið? Við nálægara hægra horn skrifborðsins? Fyrir aftan Hendricks? Sönnun: ..................................... 11. Hvort skotið, það fyrra eða síðara, hitti klukk- una? Fyrra. Síðara Sönnun: ..................................... 12. Er líklegt, að Hendricks hafi verið myrtur kl. 6.00? Já. Nei. Hversvegna? ................................. 13. Hver myrti Hendricks og á hvern hátt? Skrifarinn. Henry Hendricks. eins og af líkum má ráða, ef eftirfarandi þrjár staðreyndir eru hafðar í huga: 1............................................ 9............................................ 3............................................ Ef þú hefur enn ekki komist að líklegri niður- stöðu þá lestu eftirfarandi Leiðbeiningar: Peningaskápurinn gefur til kynna, hvort rán hafi verið ástæðan fyrir morðinu. Aðstaða líksins bendir til, hvað Hendricks hafi verið að gera, þegar hann var skotinn, og ennfremur hvort hann muni hafa haft hið minnsta hugboð um yfirvofandi dauða. Nálægð járnbrautarteinanna bendir til ástæðunnar fyrir því, að enginn skothvellur heyrðist. Skrifborðs- skúffa merkt A, og afstaða liennar, bendir til hvort byssan hafi verið lekin án þess að I-Iendricks yrði þess var eða ekki. ímynduð lina, dregin frá kúlufarinu á veggnum og í skotsárið á höfði Hend- ricks, bendir til hvar morðinginn muni hafa staðið þegar hann skaut Hendricks, og ennfremur má af henni sjá, hvort veggklukkan hafi þá verið í skot- sikti. Ef svo hefur verið, hitti kúlan hana af tilvilj- un og sýnir hún þá, hvenær verknaðurinn var fram- inn? Ef svo hefur ekki verið, var skotið í hana af ásettu ráði og gefur hún þessvegna ranga hugmvnd um, hvenær morðið var íramið? Ilafi hún verið brotin af ásettu ráði, í hvaða tilgangi er líklegt að það hafi verið gert?

x

Dægradvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dægradvöl
https://timarit.is/publication/825

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.