Dægradvöl - 01.12.1947, Side 3
DÆGRADVÖL
s
B. TÍMASP U RSMÁL.
2. mynd.
I. Úr lííi piparsveins.
Ragnar var piparsveinn meS mi&’lungs tekjur, en
lifði samt ekki óþægilegu lifi þrátt fyrir það. Hann
var í kringum 28 ára gamall þegar fyrsta myndin,
af sex meðfylgjandi, var tekin. Hann sat tíðast al-
einn heima á kvöldin úr því að klukkan var farin
að ganga ellefu, í hægindastólnum sínum við
arininn og reykti vindla og dreypti á glasi af léttu
víni.
1. mynd var tekin kl. 10.30 e. h. 10. Janúar 1902.
2. mynd var tekin kl. 10.31 e. h. 10. Janúar 1902.
3. mynd var tekin kl. 10.50 e. h. 10. Janúar 1902.
4. mynd var tekin kl. 10.30 e. h. 10. Júlí 1912.
5. mynd var tekin kl. 10.80 e. h. 10. Júlí 1914.
6. mynd var tekin kl. 11.00 e. h. 10. Janúar 1922.
Eins og sjá má af myndum þessum, sem teknar
eru á 20 ára tímabili, hefur Ragnar verið mjög
vanafastur maður. Auðvitað sýna myndirnar hann
aðeins þessi nánar tilteknu kvöld, þegar hann var
einn heima og í þungum þönkum. Ragnar var ekki
alltaf svona, og hann átti ?neira en ein föt; en það
kemur nú annars ekki þessu máli við.
Spurningin er þessi:
Hvenær voru hinar einstöku myndir teknar, og
hverjar eru sannanirnar fyrir því?