Austurland


Austurland - 28.10.1992, Blaðsíða 5

Austurland - 28.10.1992, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR, 28. OKTÓBER 1992. 5 „Foreldrar" spyrja spurninga um skólamál í síðasta tbl. Aust- urlands. Það er ánægjulegt að skóla- málum sé gaumur gefinn og fólk velti fyrir sér gangi mála í skóla- starfinu. Spumingar og athuga- semdir „foreldra" gefa vissulega tilefni til ítarlegri umfjöllunar um þennan mikilvæga mála- flokk en kostur er á núna í stuttri grein. Það hefði samt verið ánægju- legra að ræða þessi mál við nafn- greinda en nafnlausa því mál- efnið er þess eðlis að óþarfi er að beita nafnleynd - við gerum allavega ráð fyrir því að við stefnum að sama markmiði - góðum og betri skóla. Metnaður „Foreldrar“ spyrja hvort eng- inn metnaður sé hjá ráðamönn- um skólanna í Neskaupstað að hafa réttindafólk í störfum. AI- mennt held ég að stjórnendur skóla leitist við að ráða réttinda- fólk til starfa. Lög og reglur tryggja kennurum starf umfram leiðbeinendur, sem starfa sam- kvæmt sérstakri undanþágu þar til skipaðrar nefndar í mennta- málaráðuneytinu. Það gildir um kennarastarfið eins og önnur sérhæfð störf að menntun í kennslu- og uppeldisfræðum eykur hæfni kennarans og eftir því er vissulega sótt. Réttindi „Foreldrar" eru ekki vissir um réttindi t. d. íþróttakennara til bóklegrar kennslu. Lögform- Skrýtið um skólamál í Neskaupstað „Foreldrum“ svarað lega er þetta þannig að allir sem iokið hafa kennaraprófi geta leyst til sín leyfisbréf og kallað sig grunnskólakennara eða framhaldsskólakennara í sam- ræmi við prófið og hljóta full réttindi til kennslustarfa. íþrótta-, mynd- og handíða- kennarar hafa þannig sömu rétt- indi og kennarar með t. d. ís- lensku eða líffræði sem aðal- grein. Formlega er því ekkert við það að athuga að t. d. íþróttakennari kenni stærð- fræði. Stjórnendur og kennarar allra skóla standa frammi fyrir því ár hvert að skipuleggja verkaskiptingu innan skólans - hver á að gera hvað o. s. frv. Kennararáðningar við Verk- menntaskólann hafa yfirleitt gengið vel, enda ákaflega lítið um breytingar. Það er skólanum mjög mikils virði hve mikill stöðugleiki er í kennaraliðinu og kennsla í hlutastarfi er nær algjör undantekning. Heimilisfræði Komið er við viðkvæman blett þar sem heimilisfræðslan er. Ekkert skólaeldhús er til staðar í Neskaupstað. Heimilis- fræðsla hefur farið þannig fram að nemendur 9. bekkjar hafa farið í Hússtjórnarskólann á Hallormsstað í eina viku. Þann- ig uppfyllir Verkmenntaskólinn fræðsluskyldu sína á þessu sviði Austfirðingar - Héraðsbúar Fræðslufyrirlestrar um sorg og sorgarviðbrögð verða haldnir dagana 30. október — 1. nóvember nk. sem hér segir: Á Seyðisfirði föstudaginn 30. október kl. 2000 í Austfarssalnum. Á Reyðarfirði laugardaginn 31. október kl. 1400 í Verkalýðsfélagshúsinu. í Neskaupstað sunnudaginn 1. nóvember kl. 1400 í Safnaðarheimilinu. Opið hús verður að loknum fyrirlestrunum á Reyðarfirði og í Neskaupstað, þar sem rætt verður saman um málefni sorgarinnar. Boðið verður upp á persónulega ráðgjöf og upplýsingar. Fyrirlesari verður Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur. Sjálfboðaliðar úr sorgarsamtökunum í Reykjavík verða ásamt Sr. Braga í opnu húsunum. Samstarfshópurinn viðunandi bæði hvað snertir kennslustundafjölda og faglega. Vissulega væri betra að hafa yfir að ráða skólaeldhúsi og skipuleggja heimilisfræðsluna inn í stundatöflu nemenda. Vonir standa til að á þessu verði ráðin bót í vetur, enda ekki gert ráð fyrir að nemendur 9. bekkj- ar fari í Hússtjórnarskólann. Um uppeldishlutverkið Undir það skal tekið að upp- eldishlutverk skóla er stórt og vanda skal til bæði kennslu og uppeldisstarfsins. Það er líka rétt að skólinn ber ekki alla ábyrgðina, heldur er hún ekki síður á herðum foreldra og þess samfélags sem við búum í. Sam- vinna og samspil þessara aðila er því mikilvægt. Stundum er nauðsynlegt að sú samvinna sé með mjög formlegum hætti, svo sem í sérstökum foreldrafélög- um o. s. frv. Það er líka til í dæminu að samvinnu sé betur komið án slíkra formlegra sam- taka. Aðalatriðið er að sam- skiptaleiðin milli heimilis og skóla sé greið og að talað sé saman. Hvort samtalið fari fram á sérstökum foreldrafundi eða götuhorni er ekki aðalatriðið heldur að sameiginleg málefni eru tekin til umræðu. Leiðrétting og athugasemd „Foreldrar" geta þess að 2 stúdentar kenni í grunnskóla- bekkjum Verkmenntaskólans. Það er ekki rétt. Aðeins einn kennaranna í grunnskóolanum hefur ekki lokið háskólaprófi, en hefur umtalsvert nám að baki eftir stúdentspróf. Um allnokkurt skeið hefur verið unnið að því að koma á námi í kennslu- og uppeldis- fræðum hér á Austurlandi. Nokkrar líkur eru á því að af því geti orðið á næsta ári og opn- ar það leið fyrir þá sem hafa fag- lega menntun fyrir til þess að afla sér fullgildra kennslurétt- inda. Þetta á bæði við um iðn- meistara og þá sem hafa há- skólapróf. Að mínu mati er þetta skynsamleg leið til að afia skólunum réttindakennara. Margir leiðbeinenda eru í raun reyndir kennarar sem skólinn vill ekki missa. Réttindanámið gerir þá væntanlega hæfari. Enda þótt mér sé bæði ljúft og skylt að ræða málefni Verk- menntaskólans á opinberum vettvangi tel ég ekki rétt að gera það framvegis við ónafngreinda einstaklinga. Albert Einarsson skólameistari Ný strandferðaáætlun SAMSKIPA Ný strandferðaáætlun SAMSKIPA tekur gildi 30.10. ‘92. Þá sigla Kistufell og Arnarfell til allra helstu hafna landsins og SAMSKIP halda þér þannig í góðum tengslum við markaði. Strandferðaáætlun í nóvember 1992 Frá Reykjavík Brottfarardagur: Komudagur: Skip: Ferðaleið: 30.10 Föstudagur 04.11 Miðvikudagur Amarfell austur hringferð. 30.10 Föstudagur 05.11 Fimmtudagur Kistufell vestur hringferð 06.11 Föstudagur 11.11 Miðvikudagur Amarfell austur hringferð 06.11 Föstudagur 12.11 Fimmtudagur Kistufell vestur hringferð 13.11 Föstudagur 18.11 Miðvikudagur Arnarfell austur hringferð 13.11 Föstudagur 19.11 Fimmtudagur Kistufell vestur hringferð 20.11 Föstudagur 25.11 Miðvikudagur Arnarfell austur hringferð 20.11 Föstudagur 26.11 Fimmtudagur Kistufell vestur hringferð 27.11 Föstudagur 02.12 Miðvikudagur Arnarfell austur hringferð 27.11 Föstudagur 03.12 Fimmtudagur Kistufell vestur hringferð 1 Kistufell vikulega vestur hringferð 1 1 Arnarfell vikulega austur hringferð 1 Viðkoma Viðkoma Reykjavík Föstudaga kl. 18 Reykjavík Föstudaga kl. 12 Patreksfjörður Laugardaga Vestmannaeyjar Föstudaga Þingeyri Laugardaga FáskrúðsQörður Laugardaga Flateyri Laugardaga Reyðarfjörður Sunnudaga ísafjörður Sunnudaga Neskaupstaður Sunnudaga Dalvík Sunnudaga Vopnafjörður Sunnudaga Þórshöfn Mánudaga Húsavík Sunnudaga Seyðisfjörður Þriðjudaga Akureyri Mánudaga Neskaupstaður Þriðjudaga Dalvík Mánudaga Eskifjörður Þriðjudaga Sauðárkrókur Mánudaga Reyðarfjörður Þriðjudaga ísafjörður Þriðjudaga Fáskrúðsfjörður Þriðjudaga Þingeyri Þriðjudaga Stöðvarfjörður Þriðjudaga Tálknafj ./Patreksfj. Þriðjudaga Djúpivogur Þriðjudaga Reykjavík Miðvikudaga Höfn Hornafirði Miðvikudaga Viðkoma á aðra staði eftir börfum Vestmannaeyj ar Fimmtudaga Reykjavik Vörumóttaka i Húsi B Fimmtudaga tVSAMSKIÍP til hádegis á fimmtudögum fyrir vörur í Amarfell Strandflutningar til kl. 17 á fimmtudögum fyrir vömr í Kistufell Holtabakka við Holtaveg • 104 Reykjavík • Sími (91-) 69 83 00

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.