Ingólfur - 03.07.1944, Blaðsíða 1

Ingólfur - 03.07.1944, Blaðsíða 1
I. árgangur, 8. tölublað BLAÐ ÞJÓÐVELDISMANNA Mánudaginn 3. júlí 1944 Hoínm vér stotnad lýöveldi eda þjódveldi Flokkarnir telja sig hafa stofnað lý'Sveldi í landinu. En lýðveldi þýðir liöfuðlaust flokkaríki, sem með réttu er talið bráðfeigt ef valdaflokk- arnir eru fleiri en tveir og líka í hættu statt, þótt að- eins tveir flokkar berjist um yfirráðin. Það eykur liættuna ef þjóðin er lítil og ef flokk- arnir liafa dregið of mikið af ráðum og fjárvaldi úr höndum liinna smærri heilda (sveita, sýslna og bæja) undir ríkið. — Hreint lýðveldi hjá lítilli þjóð stenzt aldrei lengi nú á tímum. Ef þjóðin sjálf nær ekki tök- um á ríkisvaldinu, lendir það undir einræði, nema þá að bein upplausn eigi sér stað. En eftir öllu atferli þjóð- arinnar sjálfrar að dæma — eins sjálfstætt og liún liefur nú komið fram utan við flokkana — mundi hún ekki telja sig vera að stofna flokkalýðveldi, Iieldur sitt eigið þjó'Sveldi eða þjöS- ríki. Þessi sjálfstæða afstaða þjóðarinnar varð fyrst Ijós, þegar hún lieimtaði forset- ann úr liöndum ílokkanna, enda þótt þeir hefðu fast- ráðið að gera þetta æðsta embætti landsins að póli- tísku bitbeini sín á milli. — Flokkarnir þorðu þó ekki annað en að láta forsetann af liendi við þjóðina, en skertu vald hans, til þess að þjóðin gæti sem minnst beitt honum fyrir sig. — Auk þess munu flokkarnir ekki hugsa sér að láta forseta- kjörið afskiptalaust, þótt þjóðin kjósi liann, lieldur m. a. nota þessa kosningu til að reyna krafta sína og kanna lið sitt. ^jóðin lítur öðruvísi á þetta. Enda þótt flokkarn- ir hafi unnið ötullega að því að lieimska liana og af- mennta um aldarfjórðungs skeið, á liún þó enn eftir svo mikið af heilbrigðu hyggjuviti, að hún veit að sjálfstœS þjóS verfiur aS eiga eitthvert lifandi einingar- tákn. — Og þetta einingar- tákn á fyrst og fremst að vera sjálfur þjóðhöfðinginn. Það verkaði sem vakning á þjóðina, þegar þingið vildi ekki sameinast um þann for- seta, sem liafði unnið sér traust liennar og hún tekið tryggð við. — Auðu seðlarn- ir að Lögbergi á sjálfstæðis- hátíðinni 17. júní 1944 munu verða þjóðinni æfin- leg bending um það livaðan liinu innra sjálfstæði henn- ar er mest liætta búin. ★ Það sem skeð liefur, er | það, að þjóðin hefur gert innrás í sitt eigið land, sem flokkarnir liafa hernumið. — Fótfestu hefur hún náð, en satt að segja lítið fram yfir það. Landið er enn í ó- vinaliöndum. Kvislingar eru margir, en þeim fer lirað- fækkandi, því að ætlun flestra var aldrei sú að þjóð- in yrði valdrænd. — En landgangan hefur lieppnast. Fyrsti stórsigurinn er unn- inn! Þjóðin liefur slegið því föstu að sameiningartákn þjóðveldisins skuli vera for- setinn, og flokkarnir eru þar á undanlialdi. Nú er eftir að bjarga for- setavaldinu á svo öruggan stað að það geti orðið þjóð- inni varanleg vörn gegn á- hlaupum flokkanna. Það er eftir að útbúa for- setann með sterku umboðs- valdi til að geta boðið byrg- inn öllum klofnings- og árás- aröflum, er ögra þjóðarein- ingunni. Til þess að gera þetta um'- boðsvald forsetans enn ör- uggara og sterkara, verður að gera það friðheilagt og halda því fyrir utan liin dag- legu deilumál. — Þar á þjóð arheildin að geta beitt fyr- ir sig óflokksbundinni Stjórn, sem forsetinn skipar. Og um fram allt verður þjóð in að ná aðaltökum á Al- þingi, með því að lielga sér algerlega efri deild þess. Á löggjafarsviðinu verður þá efri deildin (Lögrétta) málsvari og vörður hins sjálf stæða þjóðarvalds (þjóðfrels isins) en neðri deildin verð- ur eins og nú málsvari parta sjónarmiðanna og lýðfrels- isins, sem ekki má skerða þegar lýðurinn og flokkarn- ir eru liættir að beita lýS- rœSi og skerða almenna mannhelgi og þjóðlielgi. Áður en valdaflokkarnir urðu til, stóðum vér miklu nær þessu þjóðræðilega tak- marki en vér gerum nú. En nú hefur þjóðin sjálf stigið fyrsta sporið. Og sú endurskoðun stjórnarskrár- innar sem nú er fyrir dyr- um, á að fullkomna stofnun þjóðveldisins. Það er rétt, að samkvæmt orðanna hljóðan var það lýSveldi, sem flokkarnir stofnuðu 17. júní s. I. — Og raunverulega var það aðeins lögfesting á þeirri lýðveldis- skipun, sem hér hefur ver- ið framkvæmd undanfarið í stíl síðasta liluta 19. aldar. Það sem á skorti, var aðeins það að afnema liið formlega Frh. á 4. síðu. SVEINN BJÖRNSSON FYRSTI FORSETI ÍSLANDS. Vér, sem byggjum landiS IjóSa og sagna, leiSir stundum veljum miSur góSar. En gott er þaS aS mega manni fagna í mestu tignarstöSu vorrar þjóSar. - ■) A landi voru hvílir skýja höfgi: ., Heróp gjalla, skortur, er á mönnum. En ró og festa, glæsimennska og göfgi, gera þig aS fyrirmanni sönnum. Og þú átt brjóstsins glóS, sem bézt oss lýsir, Börn vors lands þér heilsa rómi glöSum, og óska þess, aS huldar heilladísir haldi um þig vörS á BessastöSum. ÞjóShöfSingi, þörf er nú á dáSum. Þungur er sjór og mörg er risliá bylgja. ÞjóSin treystir þínuin hollu ráSum. Þinni leiSsögn vill hún gjarnan fylgja. Á veg þess lýSs, er hafnar lijartans menning, hœtt er viS aS margir steinar raSist. Hvert þaS ríki, er smáir kærleiks \kenning Krists í verki, fœr ei lengi staSist. — Þú hefur hlotiS mikinn veg og vanda, en víSsýnn ertu, aS hœttri góSra drengja, og hefur gert þér Ijóst, aS efni Anda œvinlega þarf sem bezt aS tengja. Ollu stefna út í beinan voSa ófgamenn, er sundra og rífa niSur. ..., § ÞjóSar eining þarf aS kenna og boSa. ÞaS á aS vera Islands nýi siður. Og nú skal slá á nýja og betri strengi. IShi er þörf aS gæta feSra arfsins og lilynna vel aS lieildarinnar gengi. HAMINGJA ÍSLANDS kjöri þig til starfsins. Gretar Fells.

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/827

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.