Austurland - 14.05.1998, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 14. MAI 1998
Austuriand
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Utgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi
Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur
Bjarnason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir
Ritstjóri: Aðalbjöm Sigurðsson (ábm) S 4771383og8994363
Blaðamaður: Elma Guðmundsdóttir S 477 1284 og 854 8850
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740
Ritstjórn, afgreiðsla og augiýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
S 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756
Netfang: austurla@eldhom.is
Austurland er aðili að Samtökum bœjar- og
héraðsfréttablaða
Unibrot og hönnun: Austurland
Prentun: Nesprent hf.
Skólastefna
í febrúar í vetur lagði menntamálaráðherra Björn Bjarnason
fram nýja skólastefnu „Enn betri skóli“. í hinni nýju skólastefnu
er tekið á ýmsum þáttum og eru menn ekki á eitt sáttir um vægi
hinna ýmsu greina s.s. listgreina, val á fyrsta tungumáli o.s.frv.
í skólastefnunni er talað um að mæta sérþörfum nemenda með
öflugri greiningu í upphafi skólagöngu og foreldrum verði boðið
að láta þau taka próf sem greini lestrarörðugleika. Þessari stefnu
fagna jafnt foreldrar sem kennarar. Ýmsar rannsóknir erlendis
sýna að með því að gera nákvæma greiningu í upphafi
skólagöngu og kennsla byggð á niðurstöðum þeirrar greiningar,
geti komið í veg fyrir stuðningskennslu síðar meir á
skólagöngunni. Ýmsar athuganir í íslenskum skólum benda til
þess að 20-30 % nemenda þurfi á stuðningskennlu að halda í
dag. Með markvissri kennslu í litlum hópum er talið að hægt sé
að koma þessari prósentu niður í 3-6%nemenda.
Markvissar fyrirbyggjandi aðgerðir komu öllu samfélaginu til
góða. Engin slík stöðluð greining, miðuð við íslenskan veruleika,
er til í dag. Það tekur 2-3 ár að staðla slíkt greiningartæki. í
framhaldi af því vantar svo góð kennslugögn og kennslu-
áætlanir. Menntamálaráðuneytisins er að sjá um greiningartækin
og kennslugögnin en sveitarfélaganna er svo að framkvæma og
leggja til kennslutímamagnið. Fleiri tímar til sérkennslu á fyrstu
árum skólagöngunnar munu skila sér þegar fram líða stundir.
En ekki er nóg að hafa gögnin og áætlanirnar. Það verða lfka
að vera til staðar vel menntaðir kennarar. Mikil ólga er meðal
kennara eftir síðustu kjarasamninga. Kennarar með mikla
starfsreynslu telja sig hafa borið allt of lítið úr býtum. Árið 2002
á grunnskólinn að vera orðinn einsetinn. Mörg sveitarfélög
þurfa að fara út í miklar og dýrar framkvæmdir til þess að það
geti orðið. Nýir og vel útbúnir skólar eru til lítils ef sú stétt sem
þar á að starfa telur að starf þeirra og menntun séu lítils metin.
Á síðasta ári gekk ekki vel að manna skólana, Fjöldi
leiðbeinenda eykst stöðugt jafnt í þéttbýli sem strjálbýli. Útlitið
á þessu ári er ekki bjartara en var í fyrra. Margir reyndir
kennarar hverfa nú úr skólunum og leita sér að annarri vinnu.
Kennaramenntaður einstaklingur er þónokkurs metinn á
almennum vinnumarkaði, þó að blaðið „Bærinn okkar“, sem
sjálfstæðismenn gefa út núna fyrir kosningar, telji kennara alls
ekki hæfa sem bæjarstjóraefni.
Það er ljóst að það bíður mikill vandi nýrra sveitarstjórna og
nýrra skólanefnda að manna skólana næsta skólaár.
SLA
Getraunaleikur Þróttar
og Pizza 67
Nú eru tvær vikur eftir af
þessum síðasta hópleik vetrarins
og eru Tippverksmenn með
örugga forustu með 83 stig og 3
Fuglar koma næstir með 81 stig.
Eitthvað hafa úrslit leikjanna
orðið öðruvísi en flestir bjuggust
við því að aðeins 5 raðir komu
fram hjá Þrótti með 10 réttum og
þar af átti Tippverkur 4 af þeim,
hinn hópurinn var Hb ráðgátur.
Flestir vor með 8-10 rétta. Við
skorum á tippara að klára þessa
keppni með sóma og halda uppi
heiðri hópsins á lokasprettinum.
Eitt er víst að Fuglamir ætla að
sauma að Tippverki og freista
þess að stela sigrinum á síðustu
mínútunum. Staðan eftir 8 vikur
er þessi.
1 Tippverkur 83
2 3 Fuglar 81
3 Gufurnar 79
4 Lea 0
5 Hb ráðgátur
6-8 Liverunited
6-8 Trölladeig
77
76
75
75
6-8 Mamma og ég 75
9 Hundsvit 74
10-11 Pele 73
10-11 WestEnd 73
Getraunaþjónusta Þróttar er
opin föstudaga kl. 19-21 og
laugardaga kl. 10-12.30. Alltaf
heitt á könnunni.
Daglegar
ferðir
Neskaupstaður s. 477 1190
Eskiflörður s. 476 1203
Reyðarfjörður s. 474 1255
Viggó þ
Vöruflutningar
0)477 1190
Fjaróalistinn
Kynningarkvöld
fyrir ungt fólk í ^
Egilsbúó föstudaginn 15. maí kl. 21.00
* Starfsemi Fjaróalistans kynnt
* Ungir frambjóöendur flytja ávörp
* Tónlistaratriöi
* Kertaljós og huggulegheit
Ath! Ókeypis sætaferðir frá
Reyðarfirói kl. 20.00
frá Eskifirði kl. 20.30
Ungir
frambjóðendur
GLminý
Valdid ekki sorg, hverstt tniklu
síðitr ósamlyndi eða deilum... Þér ■iJ
eruó öll lauf eins trés og dropar ■■
eins hafs. HHIB
(SSafiá 't i lláh mmw
(53a/iáíar cHeskaitftrtad n 1
Auitfirðíngur víkunnar
er að þessu sinni Steinþór Pétursson,
sveitarstjóri Búðahrepps, í tilefni af fyrsta
landsleiknum í handknattleik á Fáskrúðsfírði
Fullt nafn? Steinþór Pétursson
Fæðingardagur? 30. júlí 1962
Fæðingarstaður? Eskifjörður
Heimili? Álfabrekka 2 Fáskrúðsfirði
Núverandi starf? Sveitarstjóri Búðahrepps
Önnur störf? Engin
Fjölskylduhagir? Giftur og á einn dreng
Bifreið? Toyota Hi-Lux árg. 1992
Uppáhaidsmatur? Rjúpur
Versti matur? Gúrkur
Heisti kostur? Læt aðra um að dæma það
Helsti ókostur? Stress, og binda mig of mikið
við vinnuna
Uppáhalds útivistarstaður? Náttúra íslands
Hvert langar þig mest að fara? Á marga staði en mest þangað sem
ég ákveð hverju sinni
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Stórt spurt, fátt um svör. Fjölmargir
staðir á Islandi
Áhugamái? Fjölskyldan, útivist og íþróttir
Uppáhalds handknattleiksmaður? Sigurður Valur Sveinsson
Uppáhalds íþróttafélag? Þessi var erfið, Leiknir/Austri
Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir orðið handbolti? Hasar og fjör
Mottó? Að hafa gaman af lífinu