Austurland - 19.11.1998, Side 8
*g \ .. .. \arrbaVví'iÉÉut
2 í'U^#u,'am..,eWut
< Ktudda8»^a7
| Ju«^8u.W
Tilboð q bökanarvörum
. * a\\a dagafrá kl.io.oo.io
baWa,W°VNESBAKKI°ö
S477 1609 og 897 1109
Elsta bæjar- og héraðsfréttablað landsins,
stofnað 1951
Neskaupstað 19. nóvember 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
Lögmannsstofa opnuð
í Neskaupstað
Á mánudag opnuðu Lögmenn
Austurlandi ehf. útibú í Nes-
kaupstað í húsi Verkalýðsfélags
Norðfirðinga að Egilsbraut 11.
Að sögn Hilmars Gunnlaugs-
sonar, eins af eigendum fyrir-
tækisins, er útibúið hugsað til að
auka þjónustu við Norðfirðinga
en þar hefur hingað til ekki verið
starfrækt lögfræðistofa. Fyrir-
tækið Lögmenn Austurlandi ehf.
vægt fyrir Norðfirðinga að fá
aðila af þessu tagi inn í bæinn.
Stofan verður opin eftir hádegi á
mánudögum til að byrja með og
verður einhver af lögmönnum
fyrirtækisins til viðtals hverju
sinni. Hilmar segir fyrirtækið
stefna að því að opna hér útibú
með lögfræðingi í fullu starfi og
starfsliði og sé þetta fyrsti áfang-
inn á þeirri braut.
Nemendur voru greinilega áhugasamir um það sem fram fór á þemavikunni og þessi ungi vísinda-
legi maður stefnir kannski á vinnu hjá Islenskri erfðagreiningu íframtíðinni. Mynd as
Kærkomið hlé frá hefðbundnu skólastarfi
Hilmar Gunnlaugsson, einn eigenda Lögmanna Austurlandi.
var stofnað í september síðast-
liðnum og eru eigendur þess á-
samt Hilmari þeir Adolf Guð-
mundsson, Helgi Jensson og
Jónas A Þ Jónsson og hefur fyr-
irtækið stefnt að því að bjóða
öllum Austfirðingum lögfræði-
þjónustu heima í fjórðungi. Að
sögn Hilmars er sú hætta fyrir
hendi að fólk leiti ekki réttar síns
ef það á ekki aðgengi að
lögfræðingum og því sé mikil-
Þemaviku grunnskólans á Reyð-
arfirði lauk formlega í síðustu
viku. Þá buðu nemendur gestum
og gangandi að skoða það sem
Aftur í sambandi við félagana
Ungi drengurinn frá Eskifirði,
sem liggur slasaður eftir elds-
voða í síðasta mánuði, mun kom-
ast í samband við fjölskyldu sína
og félaga á næstunni. Landsím-
inn ætlar að setja upp fjarfunda-
búnað í Grunnskólanum á Eski-
firði en slíkur búnaður er fyrir í
barnaspítalanum fyrir sunnan
þar sem drengurinn liggur núna.
„Þetta þýðir að hann verður í
samskiptum við sýna nánustu og
leikfélagana", sagði Gunnar Sig-
bjömsson, þjónustustjóri Land-
símans á Egilsstöðum í samtali
við blaðið. „Þetta þýðir enn-
fremur að hann getur tekið þátt í
námi sem hann yrði annars af.
Við fórum út í samskonar verk-
efni fyrir langveikt barn fyrir
vestan fyrir nokkru. Þegar ég
frétti af þessu barni frá Eskifirði
fékk ég það samþykkt hjá mín-
um mönnum í Reykjavík að þeir
lánuðu búnaðinn endurgjalds-
laust. Þar inni er allur búnaður
og einnig símalína. Þetta þýðir
að strákurinn verður innan tíðar í
myndsambandi við þá félaga
sem hann þekkir best“.
Verið er að taka búnaðinn til
jressa dagana og því ætti hann að
verða settur upp allra næstu daga.
unnið hafði verið í vikunni á-
samt því að gera sér glaðan dag
sjálf. Þemavikan var að þessu
sinni helguð ári hafsins og ýmis
verkefni sem tengdust hafinu
voru unnin.
Þemavikan, sem hófst síðast-
liðinn mánudag, tókst að sögn
Ástu Ásgeirsdóttur, aðstoðar-
skólastjóra, í alla stað mjög vel.
Dagskráin var fjölbreytt, t.d.
fóru allir nemendur á mánu-
daginn í siglingu með skólaskip-
inu Dröfn og 9. og 10. bekkur
fóru í veiðiferð með skipinu.
Ymislegt annað var gert, m.a.
voru nokkur fyrirtæki á Eskifirði
og Reyðarfirði heimsótt, ásamt
því að Sjóminjasafnið á Eski-
firði var heimsótt.
„Hafrannsóknarmenn voru
mjög hjálplegir en fyrir utan
skólaskipið þá aðstoðuðu þeir
við hluta lokasýningarinnar",
sagði Ásta í samtali við blaðið.
„Við fengum einnig að fara í
fyrirtæki hér og á svæðinu. Á
Eskifirði heimsóttum við Rækju-
verksmiðju Hraðfrystihússins og
og Netaverkstæðið. Á Reyðar-
firði voru það Síldarbræðslan og
Skinney sem heimsótt voru. Það
var allsstaðar mjög vel tekið á
móti okkur og fyrirtækin eiga
þakkir skildar fyrir sinn þátt“.
Eins og áður kom fram var
lokadagur þemavikunnar á
fimmtudaginn. Þá var Hafrann-
sóknarstofnun með sýningu á-
samt því að nemendur sýndu af-
rakstur vikunnar. Þama var boð-
ið upp á fyrirlestra en einnig kíkt
í smá- og víðsjár. Nemendur
fengu að skoða afrakstur vik-
unnar yfir daginn en um kvöldið
var almenningi boðið í heim-
sókn. Um 100 manns heimsóttu
skólann af þessu tilefni.
Hvemig kunna krakkarnir við
þennan hluta skólastarfsins?
„Þetta er gott að fá frí í skól-
anum og t.d. er mun minni heima-
vinna. Þetta gefur þeim einnig
aðra sýn á skólastarfið. Það
spilar einnig inní að ekkert frí er
í skólanum frá september fram í
desember þannig að þemavikan
gefur kærkomið hlé á hefð-
bundnu skólastarfi og brýtur
vinnuna innan skólans aðeins
upp“, sagði Ásta að lokum.
Slippfélagið
Málningarverksmiðja SÍMI: 588 8000