F-listinn - 10.01.1934, Síða 1
LANÐSBÓKASAFu
Kosningablað óháðra kjósenda,
— sem bera heill allra bæjarbúa jafnt fyrir brjósti. —
íölublað.
Miðvikudaginn 10. janúar.
1934.
Lisfi iðnaðarmanna,
og óháðra kjósenda.
Félög iðnaðarmanna á Akureyri hafa sinn eigin
lista við næstu bæjarstjórnarkosningu með stuðn-
ingi annara ópólitískra áhugamanna í bænum.
Eg nenni ekki að skattyrðast
við »íslending« eða »Verkamann-
inn« út af sjálfum mér, né hin-
um óháða kosningalista iðnaðar-
manna, þótt bæði blöðin þykist
sjálfsagt hafa gefið tilefni til
þess.
Saemma i vetur hófu nokkrir iðn-
aðarmenn innan Iðnaðarmannafé-
lagsins máls á því, að settur yrði
upp sérstakur ópólitfskur listi við
næstu bæjarstjórnarkosningu. Var
málið tekið fyrir á fundi i félaginu
og nokkuð rætt< Nefnd var kosin í
málið til að athuga það, og eftir
að hún hafði lokið störfum lagði
hún einróma til, að Iisti iðnaðar-
manna yrði settur upp. Hðfðu þá
félög trésmiða og múrara lýst sig
málinu fylgjandi og sent sina eigin
fulltrúa í nefndina. Samþykkti sam-
eiginl. fundur Iðnaðarmannafélags-
ins og félaga trésmiða og múrara,
að koma fram með sérstakan lista.
En þar var sett sem skilyrði, að
minnst 150 kjósendur lýstu sig
skriflega þvi fylgjandi, að listinn
væri settur upp, og hétu honum
fylgi við kjðrborð. Siðan voru, með
prófkosningu, ákveðnir efstu menn
listans, og nefnd kosin til að spyrj-
ast fyrir um fylgi listanum til handa,
og setja hann upp, ér settu skil-
yrði væri fullnægt.
Oerðist þetta allra siðustu dag-
ana fyrir jól.
Á gamlársdag lagði nefndin fram
sannanir fyrir þvf, að skilyrði fé-
lagsins um að listinn kæmi fram,
væri fullnægt — og vel það.
Setti nefnd félaganna siðan list-
ann upp á nýjársdag, og er hann
þannig skipaður:
jóhann Frimann, skólastjóri.
Stefán Árnason, kaupmaður.
Steindór Jóhannesson, jánrnsmiður.
Jóhann Steinsson, smiðun
Friðjón Axfjörð, múrari.
Ólafur Ágústsson, húsgagnasmiður.
Jón Ouðmundsson, bygg.meistari.
F*orst. Porsteinsson, bygg.meistari.
Ounnar Pálsson, húsateiknari.
Ounnl. Sigurjónsson, bygg.meistari.
Quðm. Frímann, húsgagnasmiður.
Allt eru þetta þekktir iðnaðar- og
iðjumenn. Hafa þeir allir sýnt áhuga
og dugnað við iðnmál bæjarins og
við margvfsleg störf í þágu iðnað-
arins óg iðnaðarmanna sem heildar.
Pað er öllurn Ijóst, að vöxtur og
gengi þessa bæjar og afkoma mik-
ils hluta bæjarmanna byggist á
iðnaði. Akureyri er þannig i sveit
sett, að iðnaður ernúþegar orðinn
og mun verða einn aðalatvinnuveg-
ur bæjarmanna. En gengi iðnaðar-
ins er þvi háð, að stjórn bæjarins
Ifti jafnan með skilningi og samúð
til þarfa hans.
Sem eðlilegt er, þá trúa iðnaðar-
menn bezt fulltrúum úr sinum eig-
in hóp, til að fara með mál þeirra
innan bæjarstjórnarinar, og að hafa
þau áhrif á stj. bæjarins, að iðnaður
og iðja fái notið sfn og allt sé gert,
sem I valdi bæjarstjórnar er, til að
efla þann iðnað og iðju, sem þeg-
ar er kominn á stofn og lyfta und-
ir, að ný fyrirtæki megi rísa upp.
Vegna þessa fyrst og fremst er
listi iðnaðarmanna fram kominn.
Iðnaðarmannalistinn er algerlega
óháður landsmálaflokkum bæjarins.
Hinsvegsr verður þvi ekki neitað,
að viss stjórnmálaflokkur fór eitt
sinn nokkurskonar bónorðsför til
iðnaðarmanna um stuðning við
lista hans þó ekkert yrði að sam-
komulagi. En aðstandendur þessa
lista meta fylgi iðnaðarmanna rétti-
lega, enda skreyta þeir lista sinn
með nöfnum 8 mætra iðnaðarmanna.
Pessi listi, sem og allir aðrir listar
þeir, sem fram eru komnir, hafa
fulla ástæðu til að skipa sér i and-
slöðu við fista iðnaðarmanna —
enda hafa blöð sumra þeirra veitt
iðnaðarmönnum þá ánægju, að
senda þeim smávégis hnútur. Listi
iðnaðarmanna tekur fylgi sitt frá
þeim ölfum.
Og iðnaðarmenn hafa það
i hendi sinni að seija þrjd iðn-
fulltrúa inn i bœjarstjörn, ef
þeir standa einhuga saman.
Að þvi marki ber öllum iðn-
aðarmönnum aö stefna.
-----o.....
» V erkamaðurinn« f ullvissar
kjósendur um það, að ég og Ste-
fán Árnason munum þegar — ef
við annars náum kosningu —
fylla flokk auðvaldssinna, og ger-
ast leiguþý þefrra í bæjarstjórn
og verkalýðsböðlar. »fslendingur«
kallar okkur hinsvegar »soviet-
vini« og dulbúna kommúnista,
sem ausa muni úr kjötkötlum
„Siáifstœðið“
Og
„herbragðið“
Síðasti »fslendingur« er mjög
kampakátur yfir því að »her-
bragð« iönaðarmanna með bæj-
arstjórnarlista sinn hafi mistek-
ist. En sannleikurinn er sá, að
»herbragðið« heppnaðist ágæt-
lega þótt á annan veg væri en bú-
izt var við í fyrstu.
Vegna »herbragðs« þessa er nú
öllum kjósendum í bænum ljóst
'eftirfarandi:
1. »Sjálfstæðið« kúgar »Fram-
sókn« til þess að færa niður iðn-
aðarmann á lista sinum, svo að
hann komist ekki í bæjarstjórn-
ina með sameiginlegum atkvæð-
um listanna.
2. Jón bæjarstjóri*) er svo óvit-
ur við listamyndun sína, að hann
setur iðnaðarmann sem »punt« á
sinn lista, sem einnig er »punt«
á lista »Sjálfstæðisins«, og sem
þannig fær þaðan svo mörg at-
.kvæði að hann hefði farið upp
fyrir Jon sjálfan á hans eigin
lista.
8. Að ráðandi menn »Sjálfstæð-
isins« eru opinberlega samherjar
Jóns bæjarstjóra við þessar kosn-
ingar, og vilja fá hann í bæjar-
stjórnina, þótt þeir að nafninu til
neituðu honum um sæti á lista
sínum.
4. Að »Sjálfstæðið« bjóst við
að »Framsókn« mundi svíkja
*) sjálfur formaður kjörstjórnar.
bæjarsjóðs á báðar hendur til
verkalýðs og kommúnista í ráð-
leysi og heimsku.
Eg ætla engán kjósanda svo
skyni skroppinn, að hann sjái
ekki við svo barnalegum vopna-
burði. Hér eru sömu öfl að verki,-
eins og þegar ritstjóri »íslend-
ings« sezt niður, til þess að leiða
kjósendur í allan sannleika um
málefni Akureyrarkaupstaðar,
sem ætti líka vissulega að vera
okkar litla og pésalega blaðakosti
nægilegt verkefni, a. m. k. núna
fyrir kosningarnar, en finnur þá
ekkert nærtækara né markverð-
ara að fræða lesendur um í því
sambandi, en að prenta langan
»kosninga-leiðara« upp úr hafn-
firsku smáblaði um bæjarmál
gerðan samning um breytingu á
lista sínum.
5. Að »Sjálfstæðið« í tilefni af
öllu þessu útbýr tvo wiCkalista 30.
desember. A'nnan þar sem iðnað-
armaður er strikaður út vegna
Jóns Sveinssonar og hinn þar
sem sami iðnaðarmaður er strik-
aður út og annar færður niður
um 11 sæti.
6. Að »herbragð« iðnaðar-
manna kom ekki til orða fyrr en
seint á Nýársdag, eftir að kosn-
inganefnd hafði komizt á snoðir
um aukalista »Sjálfstæðisins«,
þar sem iðnaðarmennirnir voru
færðir níður. Sjálfstæðismenn
hljóta því að skrökva þvi, að þeir
hafi útbúið lista sína 30. desem-
ber fyrir grun um »herbragð«
iðnaðarmanna, sem engum hafði
þá dottið í hug.
7. Að einn af foringjum »Sj álf-
stæðisins« er sendur á skrifstofu
Jóns bæjarstjóra — formanns
kjörstjórnar — með þessa tvo
varalista og látinn voka þar yfir
afhendingu þeirra lista sem inn
koma síðasta daginn, til þess á
síðustu stundu — eða kannske
eftir síðustu stundu — að skjóta
inn þeim þeirra, sem bezt hent-
aði.
8. Að »herbragð« iðnaðarmanna
hefir þannig leitt í ljós, að iðnað-
armenn eru aðallega hafðir sem
»punt« á »pólitfskum« kosninga-
listum og að mjög náin samvinna
ér milli Jóns bæjarstj'óra og
þeirra sjálfstæðismanna sem
standa að E-listanum. XXX.