Eining - 01.11.1942, Qupperneq 3

Eining - 01.11.1942, Qupperneq 3
E I N I N G 3 PÁLL S. PÁLSSON stud. jur.: Félagsmál og (Djóðræknin Það er mælt, að félagsskapur hafi átt ast nokkuð, sem nefnt er „ástand . örðugt uppdráttar hér á landi á síð- Það er nú tíðum notað í sambandi ustu heimsstyrjaldarárunum, 1914— við íslenzkar stúlkur, ungar sem gaml- 1918 ar, er gleymt hafa virðingu sinni og Það er ekki ofmælt, að hann eigi það þjóðerni við iðkun þeirrar göfugu í- nú. Orsakirnar eru margar. Hér í þróttar að þjóna ástríðum sínum með Reykjavík, þar sem þriðjungur þjóðar- erlendum setuliðsmönnum. Á fyrstu vik- innar býr, vantar tilfinnanjega hús- um hernámsins var þessi kvennahópur næði. Iþróttafélög, skátafélög, ung- fámennur. Nú eru margar sagðar vera í mennafélög og yfirleitt flest æskulýðs- „ástandinu". Almeninningsálitið, eina félög, eiga ekki þak yfir höfuð sér til vopnið, sem bælt gat „ástandið niðui, fundarhalda. En þetta er ekki eina or- brást alveg í þetta sinn. sökin til hnignunarinnar. Félagsandmn, löngunin til þess að vinna saman að settu marki landi og lýð til gagns, sem óefað var driffjöðrin í ungmennafélög- unum á blómaskeiði þeirra, er ekki eins almennur nú og áður fyrr. Þess má geta, að í samræmi við hraða og umbrot nútímans þykir mörgum fundarseta illa valin dægradvöl að loknu dagsverki, en kjósa fremur veit- ingahús með bumbuslætti og dynjandi dansmúsik. — Góður félagsskapur með hollum skemmtunum og nægum verk- efnum hefur það fram yfir veitingahús- in, að hann kemur mönnum einstöku sinnum til þess að hugsa. Það er það, sem við þurfum nú, að nema staðar á hlaupunum og hugsa. Þá sjáum við, að við erum stödd á hættulegum tímum. Allur heimurinn hervæðist og Island er staksteinninn, sem stórþjóðirnar hafa hugsað sér að stikla á milli Vesturheims og Norður- álfu. Herskylda er boðuð í öllum löndum — nema íslandi — og ungum mönn- um er boðið að úthella blóði sínu fyr- ir föðurland sitt og frelsi. Á háskatímum reynir hver smáþjóð að standa saman sem einn maður, ann- ars getur hún átt á hættu að glata til- veru sinni. Við Islendingar viðurkenn- um réttilega að stríðið sé vitfirring. En hvað höfum við aðhafst í þeim tilgangi að forða okkur ósködduðum sem þjóð gegnum öldurót stríðsins? Við áttum okkar brynjú og okkar virkisvegg, sög- una, bókmenntirnar og sameiginlega tungu, er engin vopn gátu grandað, ef vel var staðið á verðinum. En höfum við gert það? Það efast ég um. Við höfum t. d. eign- inn veit glögg skil á takmörkunum. Þar sem lítið verður oftast of mikið. Engin ueyzla er svo lítil, að ekki sé verri en ekki neitt. Sárt er til þess að hugsa, að fjöldi uianna hefur aldrei sézt á íþróttavellin- um, sem ættu að eyða frístundum sín- um þar. Og sumir koma þar sjaldan, sem ættu að vera þar tíðir gestir. Iþróttin heillar manninn til sín, og íþróttin verður hans, ef hann er henni Irúr og temur sér bindindi og jafn- vægisgóðar lifnaðarvenjur. Það brást vegna þess, að margir af beztu sonum landsins misskildu hlutverk sitt. Blöðin óttuðust víst að uppreisn yrði í landinu fyrst eftir hernámið, því að aldrei þreyttust þau á að brýna fyr- ir mönnum „gestrisni“ og kurteislegt viðmót við „gestina". Hið sama mátti heyra í ræðum margra merkismanna. Þegar háskólastúdentar lýstu því yfir á almennum stúdentafundi í fyrravetur, að þeir teldu illa viðeigandi að setja setuliðsmenn á skólabekkinn með þeim þar í háskólanum, var framferði stú- dentanna harðlega vítt í einu af víðlesn- ustu blöðum bæjarins. Talaði blaðið um „bjánalegt þjóðernisrembingsstærilæti“ að „gera sig hlægilegan í augum stærri þjóða“ og fleira þar fram eftir götun- um. Er ekki von að slíkir dómar hafi áhrif á almenningsálitið ? Það er hægt að ferðast um ókunn lönd án þess að gleyma uppruna sínum ættlandi sínu og virðingunni fyrir þvþ og eins getur íslendingur unnið hjá setuliðinu hér og umgengist það, án þess að hugarfar hans bíði hnekki við. En það er einnig hægðarleikur að lítils- virða sína eigin þjóð og vinna henni mein með heimskulegu smjaðri og und- irlægjuhætti, sem hlýtur að vekja fyrir- litningu góðra manna. Mörgum löndum vorum finnst goðgá, ef skyldan við föðurlandið er nefnd á nafn. Hver er svo þessi skylda? Hve lítils er ekki krafizt? Þess eins, að við glötum því ekki, sem okkur var í hend- ur rétt, að vera sjálfstæð þjóð með sjálfstæða menningu. Það féll í hlut ungmennafélaganna áður fyrri, að sameina æskuna um það takmark að endurheimta hið forna frélsi. Þá unnu ungmennafélögin þrek- virkk Nú bíður þeirra engu minn verkefni, að standa vörð um það, sem þjóðin á dýrmætast, íslenzka tungu og menningu, og vernda þá æsku, sem á að vaxa og mótast í iðukasti styrj aldaráranna. Öll æskulýðsfélög, íþróttafélög sem önnur, ættu að taka saman höndum til varnar þjóðerni voru og brýna fyrir fé- lagsmönnum sínum þær fáu en sjálf- sögðu skyldur, sem hverjum einstakl- ingi ber að inna af hendi hjá fámennri, vopnlausri og hernumdri þjóð. Takist hverjum einstaklingi að finna sinn ábyrgðarþunga er enginn vafi að við siglum þjóðarfléyginu heilu í höfn fram hjá boðum styrjalda og tortím- ingar. Takizt það ekki og við höldum áfram að lítilsvirða þjóðerni okkar og glötum þeim arfi, sem þrautpíndar kynslóðir liðanna alda hafa miðlað okkur í vöggu- gjöf, þá hefur íslenzka þjóðin verð- skuldað það að vera frá þessum tíma að telja máð út af spjöldum sögunnar. Hvernig lízt þér á þetta? Frh. af 2 s- Kerti gætu gefið út sameigínlegt málgagn í framtíðinni, eða náð sam- vinnu í þeim efnum við eitthvert tímarit eða blað, sem þegar er til eða fyrirhugað, ef ekki þætti ráð- legt að bæta nýju blaði í tímarita- og blaðahópinn, sem fyrir er. Væri það mikill kostur að mörg félaga- kerfi stæðu að sama málgagninu. Það ætti að koma í veg fyrir ein- ræningshátt og klíkuskap, en tryggja það að blaðið yrði fjölþætt og læsilegt og gæti þannig átt brýnt erindi til sem allra flestra. Það ætti að geta orðið vinsælt heimilisblað, sem f jallaði um flest hin nærtækustu félags- og menningarmál, svo sem Uppeldi, heimilislíf, hjúskap, ástalíf, heilbrigði, hreinlæti, íþróttir, bind- indi, bókmenntir, siðferði, listir, skemmtanir, verkmenningu og dag- legt líf manna. Það yrði að taka djarflega en þó sanngjamlega á mál- um. Slíkt blað þyrfti að koma út vikulega. Þetta ætti að vera auðgert, ef réttir hlutaðeigendur gætu orð- ið samtaka um framkvæmdir. Sín- girnin og smásálarhátturinn hleð- ur háa veggi á milli manna og þjóða og dreifir kröftunum — sóar kröft- unum á „smáu tökin“, en sannur stórhugur rífur milliveggina niður og segir: „Hvað má höndin ein og ein? Allir leggjum saman“.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.