Eining - 01.09.1946, Síða 4

Eining - 01.09.1946, Síða 4
 4 E I N I N G um og skemmtilegum vegi, niður fjalls- hlíðina og dáðumst að villabygging- unum í snarbrattri fjallshlíðinni, skoð- uðum listigarðana og dáðumst að bæn- um, sem er óneitanlega fallegur bær. Ungu dömurnar fóru svo í heimboð, en ég gekk um borð í Nordstjernen, sem iagði af stað í hraðferð í norðurátt. Siglingin var eins og fyrr innan skerja og dásamleg. Með skipinu var hátempl- ar, Oscar Olsson og frú, og margir full- trúar og gestir stórstúkuþingsins. Þar hitti ég dr. Einar Ól. Sveinsson, pró- fessor, ásamt frú og syni. Kl. 10 árd. komum við til Aalesund. Dagurinn var heitur og bjartur. Urð- um við nú að ganga af skipsfjöl og beina leið til þingsetningar, og við hin- ir fáu erlendu fulltrúar urðum að gera svo vel að setjast upp á pall, án þess að geta haft fataskipti, hvað þá meira. En þar voru menn ekki með neitt dekur í klæðnaði. Þar bar aldrei á hvorki kjól- búningum eða háum silkihöttum. Þingið var háð í verkamannafélags- húsinu, en beint á móti því er Templ- arahúsið, hin myndarlegasta bygging, og þótt Aalesund sé ekki nema hálf Reykjavík að stærð, það er að segja að íbúafjölda, þá er templarahúsið þeirra mörgum sinnum veglegra en okkar í Reykjavík. Allt var þarna skreytt úti fyrir báðum húsunum með fánum og grænum skógarhríslum. Islenzki fáninn blakti fjarst til annarar handar fyrir framan fundarhúsið, en norski fáninn fjarst hinu megin, danski og sænski fáninn þar á milli. Móttöku- og undirbúningsnefndin hafði leyst af hendi mikið og vanda- samt verk, og gert það af hinni mestu prýði. Hafði eitt dagblað orð á því, að hún hefði ekki unnað sér svefns síðustu 8 sólarhringana. Nokkuð þurfti til að útvega 14—1500 manns gistingu í ekki stærri bæ. Formaður nefndar- innar var S. Frantzen Eidsvold, fram- kvæmdastjóri við stærsta dagblað bæj- arins, Sönnmörspostinn, ákaflega dug- legur og elskulegur maður, þrautreynd- ur að dugnaði í félagsmálum. I nefnd- inni var einnig borgarstjórinn, Anton Alvestad, stórþingsmaður. Var hann einn þeirra fyrstu, er bauð gesti vel- komna með hlýju handtaki, og tók mjög virkan þátt í þinginu allan tímann. Við þingsetninguna mun hafa verið milli 1500 og 2000 manns. 147 tóku stórstúkustigið, en 233 tóku hástúku- stigið. Stórtemplar Norvegs, hr. Ola Sande, stjórnaði þingfundum af miklum S. Frantzen Eidsvold, form. undirbúningsnefndar. skörungsskap. Fyrir þinginu lágu mikil störf eftir fimm ára hlé. Fengum við erlendu fulltrúarnir í fangið fjórar þykkar bækur, þingtíðindi síðustu ára, 1500 blaðsíður alls. En á dagskrárlista þingsins voru 32 mál, sum í mörgum liðum. Erlendu fulltrúarnir urðu að flytja kveðjuorð frá löndum sínum strax eftir þingsetningu. En þeir voru þessir: Hátemplar, Oscar Olson og frú, Rut Axelson, varatemplar sænsku stórstúkunnar, Tage A. Anderson, stór- templar Dana og undirritaður. Hefði ég fyrir mitt leyti kosið að venjast fyrst ofurlítið norskunni á ný, en verra beið mín þó um kvöldið. Ég hafði ekki at- hugað dagskrána nógu rækilega, og kl. 7 um kvöldið, er við vorum að drekka kaffi, skildi ég fyrst, að við erlendu fulltrúarnir og tveir heimamenn áttum að tala í ríkisútvarpið eftir 15 eða 20 mínútur. Reyndar aðeins 3 og 5 mín- útur, en óþægilegt var þó að vera alveg óviðbúinn. En þar var enga miskunn að hafa. Allir hinir töluðu sitt eigið mál. Ég einn varð að nota erlenda tungu og hef vafalaust ekki unnið neitt af- rek. f Þetta fyrsta kvöld þingsins var far- in skemmtiför á mörgum skipum út í tvær eyjar. Fyrst til Giske og skoðuð þar merkileg marmarakirkja, sem er frá 12. eða 11. öld. Altaristaflan og ræðustóll eru mikil furðuverk, unnin af norskum bónda, miklum hagleiks- manni. Prestur staðarins flutti fróðlegt erindi um kirkjuna og eyjuna. Ræðu sína flutti hann auðvitað úti, því að \ húsrúm var ekki fyrir söfnuðinn. Svo var farið til Valdereyjar og skoðaður þar mikill hellir, sem heitir Skjonghell- ir. Rétt þar hjá fóru fram í kvöld- kyrrðinni, ræðuhöld, söngur og hljóð- færasláttur, og kaffiveitingar voru á staðnum. Þar hef ég séð einna stærstan kaffipott á hlöðum. Komið var aftur til Aalesund nokkru eftir miðnætti. Hætt- ur urðu jafnan seinar, en þingfundir hófust þó vanalega kl. 9 eða 10 árdegis, S en stóðu aldrei yfir að kvöldinu. Þau voru notuð til úrvals skemmtana. Mátti heita, að þingið væri allt samfelldir veizludagar. Næsta dag hafði þingið útifund uppi á háfjalli, er þingheimur hafði drukkið þar kaffi í veitingahúsinu, sem stendur á fjallsnybbunni. Þetta fjall rís snar- bratt, samfelldur granítklettur, beint upp úr listigarði bæjarins. Upp að y kaffistofunni eru 395 steyptar stein- tröppur, er gaman þar upp að ganga. og þó enn skemmtilegra að sitja í hin- um rúmgóðu sölum stofunnar og horfa. yfir bæinn, út um eyjar og sund, inn yfir fjöll, víkur og voga og skógivaxnar fjallahlíðar, vingjarnleg þorp og byggðir. Þessari myndarlegu kaffistofu, sem er tvílyft og getur rúmað 150 manns við borð, hefur norska góð- templaraæskan komið upp og starf- rækir hana að öllu leyti. Hún kostaði með öllu 60 þúsund krónur, auðvitað löngu fyrir stríð. Þarna eru haldnar höfðinglegar veizlur, jafnvel konungi Norvegs, en þó æfinlega með því skil- yrði, að ekki séu vínveitingar, og ganga allir fúslega að þeim skilmála. Þarna uppi á fjallinu var svo einn fundur þingsins um nónbil. Hátalarar voru hér ^ og þar, ræður fluttar og leikið á hljóð- færi. Þetta var sunnudagur og hafði ver- ið messað bæði í Álasundskirkju og eins Borgundarkirkju, en strax er úti- fundinum á fjallinu lauk gekk þing- heimur aftur til kirkju og hlýddi á hljómleika. Var þar flutt mikil kantata, sem organistinn hafði samið í tilefni stórstúkuþingsins, en ljóðið hafði orkt ) einn Reglubróðir, séra Monrad Norde- val. Hann flutti einnig kröfuga ræðu við þetta tækifæri og kvæði hans er þróttmikið. Um hljómleikinn kann ég ekki vel að dæma, en mér fannst hann mikilfenglegur og góða blaðadóma fékk S

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.