Eining - 01.09.1946, Side 5

Eining - 01.09.1946, Side 5
E I N I N G 5 Útifundur stórstúkuþingsins norska, á fjallinu í Aalesund. hann. Organistinn heitir Edvin Solem. I kirkjunni mun hafa verið um 1000 manns, hún er mikið og vandað must- eri. Kirkjukórinn er geysivíður og mikill og skreyttur freskómyndum, dýr- um listaverkum. Ég hef aldrei heyrt í hljómmeira pípuorgeli en þarna í kirkjunni,, er það talið þriðja bezta í landinu og jafnvel hljómmesta. Það er nýtt. Allan mánudaginn stóðu yfir þing- fundir stórstúkunnar, en um kvöldið voru erlendu fulltrúarnir og um 30— Kirkjukórinn í Aalesund. 40 forustumenn Reglunnar í Norvegi boðnir til kvöldverðar og kvöldskemmt- unar til æskulýðssamtakanna í þessu umdæmi, en þau ráða yfir kaffistofunni á fjallinu, og þar stóð hófið. Þetta var sérlega vel heppnað og skemmtilegt kvöld, veitingar voru myndarlegar, ræð- ur stuttar og fáar, en sumar léttar og skemmtilegar. Þar flutti til dæmis stór- templar Dana, Tage A. Andersen, skemmtilega ræðu. Auðvitað.var há- templar, Oscar Olson, alltaf fyrsti mað- ur við öll slík tækifæri og hans þátttaka í þinginu mikil og góð. Séra M. Norder- val sagði margar skemmtisögur og skrítlur þarna í veizlunni og hlóu menn dátt. Seinast voru erlendu fulltrúarnir leystir út með skemmtilegri gjöf. Það var falleg mynd af Aalesund, tekin af bænum ofan af fjallinu, er hann var uppljómaður síðasta kvöld ársins áður en myrkur stríðsskelfinganna grúfði sig yfir borgir Norvegs. Mynd þessi var okkur kærkomin gjöf. Það var uppörvandi og gaman að kynnast þessari hreyfingu og samtaka- mætti góðtemplaraæskunnar í Norvegi. Af henni getum við íslendingar lært töluvert. Sambandið gefur út myndar- legt mánaðarrit, sem heitir Good- templarungdommen, ritstjóri þess er Ljósm.: Sponland. Olaf Ramsvik, búsettur í Bergen, en hinn nýkjörni formaður þessa æsku- lýðssambands templara í Norvegi heitir Kare Werner. Sambandið var nýbúið að hafa myndarlegt þing í Bergen. Ég legg til við Stórstúku íslands, að hún sendi hæfan ungan mann til Norvegs um þriggja mánaða tíma til þess að kynnast þessu æskulýðsstarfi Reglunn- ar þar. Það mundi borga sig og við munum fá tilboð. Annars var yfirleitt uppörvandi að koma til Norvegs og kynnast fólki, ungum sem gömlum. Það er nú vorhugur í þjóðinni og hún mótuð af krafti og djörfung. Áhuginn fyrir Islandi og vinarþelið, er alls staðar áberandi. Umdæmistemplar á Sönnmöre heitir Jens Skuggen. Hann er kaupmaður í Aalesund, en vinnur mikið að allskon- ar félagsmálum. Hefur verið umdæmis- templar í 12 ár, er formaður skátanna og forustukraftur í ýmsum öðrum fé- lögum. í yndislegri, skógivaxinni fjalls- hlíð, þar sem fjallasýn er mikilfengleg, við stórvatn, sem vel gæti heitið Ljósa- vatn, hefur þessi ókvænti dugnaðar- maður reist sér töfrahöll, sem er eins- dæmi og ég treysti mér ekki til að lýsa. Þar inni er safn af öllu hugsan- legu listrænu og fallegu, en maðurinn sjálfur er sérlega yfirlætislaus. Þarna komum við í heimsókn um 800 manns. Þar var kynnt stórbál við tjörn í skóg- inum og gestir voru kvaddir með glæsi- legum flugeldum. Þarna er mikill og fjölbreyttur gróður og hefur eigandinn unnið þar mikið fyrirmyndarverk. Þarna í þessum paradísarlundi eydd- um við kvöldinu við gestrisni húsbónd- ans, ræður, söng og hljómlist. Það verður okkur öllum, sem þar vorum, minnisstætt kvöld. Svo rann þá upp síðasti dagur þings- ins. Þann dag skoðuðum við hina miklu undraveröld inn í fjallinu, sem Þjóð- verjar höfðu látið grafa þar. Þar voru salir, íbúðir og gangvegir. Um tveggja ára bil höfðu þeir haft margmenni við að hreiðra þarna um sig inni í granít- klettinum. Höfðu þar útsýn góða og leiðslur niður að hafnarvirkjum og gátu sprengt allt í loft upp fyrirhafnar- laust, ef um innrás hefði verið að ræða. Um kvöldið kom svo skilnaðarfundur þingsins. Þar var enginn dans og ekki veitingar, en góð skemmtun, stuttar, góðar ræður, upplestur og hljómleikar. Og auðvitað urðum við erlendu fulltrú- arnir að þakka fyrir okkur og segja nokkur kveðjuorð, en það var okkur líka ljúft, því að við höfðum mikið að þakka. Templarar í Norvegi vilja ekki líða dans í fundarsölum sínum og jafn vel æskulýðssamtökin stunda- dansinn hóflega, skemmtanir aðeins 3—4 sinn- um á ári. En templarahúsið í Aalesund starfrækir svo myndarlega veitingasölu, að stúkurnar hafa fundi sína í húsinu endurgjaldslaust. Því miður var ég ekki kominn, og sama var að segja um hina erlendu fulltrúana, þegar mót- tökuathöfnin fór fram kvöldið fyrir þingsetningu, en það hafði verið skemmtilegt kvöld og veizla. Þetta er nú orðið langt mál og er þó margt enn ósagt, sem í frásögu mætti færa. Enn er eftir að segja frá lokaþættinum, lengstu skemmtiförinni, en áður vil ég minnast ofurlítið nánar á þingið sjálft og starfið í Norvegi. Þingstörf gengu fljótt og vel, þótt mikil væru. Eru Norðmenn ráðnir í því að hefja markvissa sókn í bindindisstarf- inu um land allt, og mun ekki af veita, því að ástandið þar er ekki gott. Ég hef hvergi séð um hábjartan dag eins mikið af drukknum mönnum og í Osló einmitt í þessari ferð. Þegar hömlur á- fengissölunnar voru leystar upp eftir stríð, varð ástandið svo alvarlegt, að

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.