Eining - 01.09.1946, Qupperneq 10

Eining - 01.09.1946, Qupperneq 10
4 10 E I N I N G 15. iambandsþing og 5 lanils- mót Ungmennafélagsi íslands að Languni, $-Þing. 4-7. júlfi 1946 Sambandsþingið hófst 4. júlí og stóð þann dag og hinn næsta. Mættir voru 52 fulltrúar frá flestum héraðssam- böndum U. M. F. I. en þau eru nú 16 — með 180 félög og um 10000 félags- menn. Forsetar þingsins voru: Þórarinn Þórarinsson skólastjóri Eiðum, Þorgils Guðmundsson kennari í Reykholti og Björn Guðmundsson kennari Núpi. Að- alritari þingsins var Sigurður P. Björnsson Húsavík. Sambandsstjóri U. M. F. í. sr. Eiríkur J. Eiríksson Núpi, setti þingið með ræðu, en Daníel Ágúst- ínusson ritari þess, flutti ítarlega skýrslu yfir störf U. M. F. I. þrjú s 1. ár. Aðalmál þingsins var: Réttindamál Islendinga. Var gefin út löng yfirlýsing varðandi það mál. I henni er fagnað gjörðum Alþingis 17. júní 1944, en jafnframt lýst yfir, að baráttunni sé ekki lokið, fyrr en Danir skili aftur þeim fornbréfum og skjölum, er vér eigum í söfnum þeirra. Þá var lýst yfir samúð með sjálfstæðiskröfu Færey- inga. Mótmælt dvöl erlends hers á ís- landi. Þjóðin hvött til varfærni gagn- vart erlendum stefnum, en ráðlagt að leita fylgis hjá þeim þjóðum, er styðja lýðræði og réttindi smáþjóða, er frelsi Islands byggist á. f bindindismálunum var skoðun þingsins eindregin sú, að taka bæri upp bann og láta fara fram þjóðaratkvæða- greiðslu um það við næstu almennar kosningar. Varðandi íþróttamálin var samþykkt, að næsta landsmót skyldi háð á Aust- urlandi vorið 1949 og athugað, hvort ekki væri hægt að senda flokk íþrótta- manna til Noregs á næsta ári í tilefni þess að U. M. F. í. verður þá 40 ára. Áskriftargjald Skinfaxa var hækkað í kr. 10,00 árgangurinn. Mikill samhugur ríkti á þinginu fyr- ir málefnum ungmennfélaganna og bjartsýni á framtíð þeirra. Auk fulltrúa og stjórnar mætti á þinginu Þorsteinn Einarsson íþrótta- fulltrúi, er flutti erindi um íþróttamál. Stjórn U. M. F. f. skipa nú: sr. Ei- ríkur J. Eiríksson sambandsstjóri, Daníel Ágústínusson ritari, Daníel Ein- arsson gjaldkeri, Gísli Andrésson vara- sambandsstjóri og Grímur Norðdahl meðstjórnandi. Heiðursfélagi U. M. F. í. var kjörinn Björn Jakobsson skóla- stjóri íþróttakennaraskólans á Lauga- vatni í tilefni af 60 ára afmæli hans á þessu vori. Landsmótib hófst kl. 10 árd. 6. júlí með skörulegri setningarræðu sam- séra Eiríkur J. Eiríksson. bandsstjórans sr. Eiríks J. Eiríkssonar. Fór athöfn þessi fram sunnan við hér- aðsskólann. Mættir voru þá um 200 íþróttamenn víðsvegar að af landinu, sem þátt tóku í mótinu og nokkur hundruð mótsgestir. Síðan var farin hópganga út á íþróttavöllinn, sem er skammt vestan við skólann. Hófst þar forkeppni í flestum íþróttagreinum mótsins og stóð hún allan daginn með venjulegum matarhléum. Þar setti Þur- íður Ingólfsdóttir frá Héraðssambandi Suðurþingeyinga íslandsmet í 80 m. hlaupi. Hljóp hún vegalengdina á 11 sek. Veður var hið fegursta sem á var kosið — logn og sólskin allan daginn. íþróttavöllurinn var nýlega gerður og reyndis mjög vel. Umhverfis hann á þrjá vegu eru lyngi vaxnar brekkur, en opið til suðurs. Margar þúsundir manna geta prýðilega notið þess, sem fram fer á vellinum og haft hin ágætustu sæti, ef veður er hagstætt. Um kvöldið hófst almennur ung- mennafélagsfundur heima við skólann og kom fólkið sér fyrir í brekkunum umhverfis tjörnina. Þar var sérstaklega minnzt 40 ára afmælis ungmennafélag- anna, en fyrsta Umf. er stofnað á Ak- ureyri 14. janúar 1906. Það var því ein ástæðan til þess, að mótinu var að þessu þessu sinni valinn staður í Norð- urlandi, að ‘þar stendur vagga ung- mennafélaganna. Þarna skiptust á al- mennur söngur og stuttar ræður. Meðal í’æðumanna voru: Björn Guð- mundsson Núpi, Helgi Valtýsson Akur- eyri, Stefán Runólfsson frá Hólmi og sr. Pétur Ingjaldsson á Höskuldsstöð- um. Milli þess að ræður voru fluttar stóð mannfjöldinn upp og söng ætt- jarðarljóð. Stjórnaði Þórarinn skóla- stjóri á Eiðum söngnum af miklu fjöri og var rösklega tekið undir í kvöld- kyrrðinni. Þar var og komin Lúðra- sveit Akureyrar, sem lék undir stjórn Wilhelm Lanzky Otto og setti hún vissulega svip á þessi hátíðahöld. Hún lék svo af og til allan sunnudaginn við góðan orðstýr. í mótskrána voru prent- uð nokkur ættjarðarljóð, sem sungin i voru og bætti það að vonum aðstöð- una við sönginn. Ungmennafélagsfundinum lauk kl. rúmlega 23. Fóru þá ýmsir í háttinn, en aðrir fóru á kvikmyndasýningu, en þær fóru fram í leikfimishúsinu síðari hluta dagsins. Þar var meðal annars sýnd myndin frá Hvanneyrarmótinu 1943. Sá Viggó Nathanaelsson um þennan þátt mótsins. ^ Sunnudaginn 7. júlí, sem var aðal- dagur mótsins, hófst með fánahyllingu og morgunsöng heima við skólann kl. 9 árdegis. Síðar var gengið á íþróttavöll- inn en þar hófust úrslit í ýmsum í- þróttagreinum mótsins og var þeim lokið um hádegi, nema sundinu. Einnig fór þar fram handknattleikur kvenna, milli flokka frá þremur héraðssam- böndum, er lauk með sigri héraðssam- ^ bands Suður-Þingeyinga. Hinir tveir flokkarnir voru frá Ungmennasam- bandi Kjalarnesþings og Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands. Var hin bezta skemmtun að keppni þessara flokka, sem komnir voru sitt úr hverj- um landsfjórðungi til mótsins. Árangur í íþróttunum var yfirleitt ágætur og borið saman við Hvanneyr- armótið 1943, þá kemur í ljós að fram- för hefur orðið í hverri einustu íþrótta- > grein, sem keppt var í nú og á Hvanneyri. í ýmsum greinum er hann mjög mikill og í sumum þeirra er sig- urvegarinn hinn sami. Auk þess Is- landsmets, sem áður er frá sagt, setti Áslaug Stefánsdóttir frá Héraðssam- bandinu Skarphéðni Islandsmet í 500 m sundi á 9:00.7 mín. Hún varð einnig hlutskörpust í öllum sundgreinum kvenna á mótinu og þótti vel af sér « vikið. Hún er aðeins 16 ára að aldri. Þá setti Sigurður Jónsson úr Héraðs- sambandi Þingeyinga Isl.met. í 1000 m. bringusundi karla. Synti hann leið- ina á 17:25,7 min. En íslandsmetið átti Sigurður Jónsson í K. R. á 18:58,0 mín. svo framförin er býsna mikil. Vakti sund þetta mikla athygli móts- gesta, sem að vonum fannst mikið til um sundafrek Sigurðar. f Flest stig hlutu á mótinu, Áslaug, Sigurður og Jón Ólafsson frá Ung- menna- og íþróttasambandi Austur- lands, 12 stig hvert. Jón er mjög fjöl- hæfur frjálsíþróttamaður. Þessi héraðssambönd og félög tóku þátt í mótinu og hlutu eftirgreind stig: 1. Héraðssamband Þingeyinga, sem vann mótið með 47 stigum. 2. Ungmenna- og íþróttasamband 9 Austurlands 35 stig. 3. Héraðssambandið Skarphéðinn 29 stig. 4. Ungmennasamband Borgarfjarðar 22 stig.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.