Eining - 01.09.1946, Page 11

Eining - 01.09.1946, Page 11
E I N I N G 11 K i > > * l > í 5. Ungmennasamband Kjalarnes- þings 16 stig. 6. Ungmennasamband Eyjafjarðar 11 stig. 7. Ungmennasamband Norður-Þing- eyinga 8 stig. 8. Ungmennasamband Skagfirðinga 8 stig. 9. Ungmennafélag Reykjavíkur 4 stig. Þetta sýnir hversu almenn þátttakan var í mótinu og hversu víða af landinu íþróttamenn sóttu til þess. Ferðin hjá Sunnlendingunum, sem voru 80, tók um vikutíma. Aðal hátíðahöld sunnudagsins hófust við skólann kl. 14.80 með guðsþjónustu, sem sr. Eiríkur J. Eiríksson flutti.- Lúðrasveitin lék sálmalög á undan og eftir, en mannfjöldinn söng með. Ræð- an var hin merkasta, enda veitt hin mesta athygli. Að því loknu fluttu þeir ræður Júlíus Hafstein sýslumaður á Húsavík og Jón Sigurðsson bóndi á Yztafelli. Lúðrasveitin lék ættjarðarlög á milli. Þegar þessari athöfn var lokið, sem var kl. 16,30, var haldið út á íþrótta- völlinn og safnast saman í stórum hvammi skammt utan við hann, en þar hafði verið settur niður stór trépallur, þar sem fimleikasýningar fóru fram og ennfremur dansinn um kvöldið. Fólkið skipaði sér í lyngivaxnar brekkurnar á tvo vegu. Fimleikasýningarnar hófust með sýn- ingu íþróttakennaraskólans á Lauga- vatni, undir stjórn Björns Jakobssonar skólastjóra. En skólinn mætti á mótinu í boði U. M. F. í. Sýndi hann í tveimur hópum. Fyrst 5 stúlkur og síðan 6 piltar. Vakti sýning skólans mikla hrifningu og var honum ákaft fagnað. Sérstaka athygli vöktu æfingar þær, sem Björn hefur samið við Þjóðsöng- inn, en sjálfur leikur hann undir á fiðlu. Gerði hann það einnig við marg- ar aðrar æfingar. Æfingar piltanna á dýnu og kistu voru fjölbreyttar og skemmtilegar. Þegar íþróttakennaraskólinn hafði lokið sýningunum, gekk inn á pallinn 20 manna sveit úr íþróttafélaginu Þór á Akureyri, klædd fögrum og smekk- legum búningum. Sýndi hún þjóðdansa undir stjórn Jónasar Jónssonar kenn- ara frá Brekknakoti. Leikið var undir á orgel. Dansaðir voru vikivakar og sænskir þjóðdansar. Það leyndi sér ekki, að fólk skemmti sér afar vel við að horfa á dansana og munu sænsku dansarnir einkum verða mörgum minn- isstæðir. Þeir eru léttir og fjörugir. Ættu þeir að hafa öll skilyrði til að verða útbreiddir. Að lokum sýndu 15 stúlkur frá Ung- mennasambandi Eyjafjarðar fimleika, undir stjórn Gísla Kristjánssonar í- þróttakennara frá Bolungavík. Flokkn- um var mjög vel fagnað. Enda voru æfingar hans léttar og fjörugar, og þjálfunin prýðileg. Þegar þessum þremur sýningum var lokið hófst glíman. Stjórnaði Þorsteinn Einarsson henni, en aðaldómari var Þorgils kennari í Reykholti. Keppendur voru 7, frá þremur héraðssamböndum. Sigurvegari varð Sigurjón Guðmunds- son frá Héraðssambandinu Skarphéðni. Lagði hann alla keppinauta sína. Um kl. 9 hófst svo dans á pallinum og lék Danshljómsveit Bjarna Böðvars- sonar. Kl. 23 hófst afhending verðlauna heima við skólann. Sambandsstjóri U. M. F. í. veitti þrem beztu mönnunum í hverri íþróttagrein viðurkenningu og auk þess voru ýms sérverðlaun veitt. Aðalverðlaunin — skjöldinn — hlaut Héraðssamband Suður-Þingeyinga og tók formaður þess, Jón Sigurðsson á Arnarvatni, á móti honum. Var hann nú tekinn úr höndum Austfirðinga, en þeir sóttu hann í greipar Kjalnesinga 1943, sem unnu hann í Haukadal 1940, en þá hófst keppni um þennan skjöld. Að lokum sleit sambandsstjóri þessu 5. landsmóti U. M. F. f. með ræðu. Þakkaði öllum, sem hlut áttu að því að gera það jafn glæsilegt og raun bar vitni um. Að lokum sungu allir af lífi og fjöri: Vormenn íslands og var þá komið fram á lágnætti. Fóru þá margir að búast til heimferðar. Þegar flest var um daginn mun hafa sótt mótið rúm- lega þrjár þúsundir manna. Áfengis varð ekkert vart, og sýndu samkomu- gestir íþróttafólkinu og ungmennafé- lögunum með því hina ákjósanlegustu virðingu. Er sérstakt ánægjuefni að geta með góðri samvizku sagt frá slíku, á þeim áfengis- og upplausnartímum, sem nú ganga yfir. Stjórnandi mótsins, var Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi og hafði hann mikil afskipti af undirbúningi mótsins frá upphafi. Aðal undirbúning annað- ist stjórn Héraðssambands Suður-Þing- eyinga. Var hann ágætlega af hendi leystur. Ungmennafélagshreyfingin hefur vaxið af þessu móti og sú hugsjón U. M. F. f. er orðin að veruleika, að halda landsmót þriðja hvert ár, til skiptis í landsfjórðungunum, með almennri þátt- töku íþróttamanna úr flestum héraðs- samböndum U. M. F. f. Með móti þessu var 40 ára afmælis Ungmennafélags- hreyfingarinnar minnzt í verðugu starfi. D. Á. Aiislan úr Flóa Tveir hvítir svanir hefja flug norður 'í mýrinni og svífa syngjandi í austur- átt. Sólmóðan bylgjast um bláloftin yfir flóanum og fjallasýnin er æfin- týralega fjarræn, eins og táknheimar í þjóðsögu. En hvað þessi breiða sveit er fögur og yndisleg, þegar sólskinið er yfir henni. Og létt að skilja þá, sem búa hér og hugsa ekki til heiman- göngu. Fólkið er gott og þó hef ég hér líka orðið vitundarvottur að því, að til eru menn, sem særa hér þá sveitunga sína, sem viðkvæmastir eru og mesta og helgasta lífsþrá eiga, með háði og fleiri móðgandi viðhorfum til þeirra og ástvina þeirra. Þessi heiði, bjarti sunnudagur, feg- ursta veður yfir flóanum á þessu sumri, gefur annari þrá byr undir vængina. Ég hef enn ekki séð hér snæbjartar tunglskinsnætur. Þá töfrasjón óska ég að líta. í vetur þegar ég lét mig dreyma lognöldu framan við Gegnishóla og vissi hvergi af brimhrönn vetrarins, gleymdi ég alveg fegurð skammdegis- nótta. Ég sá aðeins sumarið og dá- semdir þess í huganum, skynjaði kom- andi vor með nýrri von og svífandi þrá, svana-ástir austur í Flóa, veröld, þar sem draumur vetrarrjúpunnar rætist í lyngrunni. Nú þrái ég líka dýrð vetr- arins. Ég var úti í nótt um lágnættið. Ó, hversu kyrrð og friður húmþrunginnar sumarnæturinnar veitti sælli hvíld en þungur, dimmur svefn eftir erfiðisdag, og var fyllri að ævintýrum og unaðs- legum ljóma. Eins og lífið á þessari jörð þarfnast og þráir. I dag, meðan himininn er blár og bjartur hvílast ævintýrin bak við hlýja geislana, svip. lík fjöllunum, sem fela sig í ljósmóð- unni. Bláa Ingólfsfjall, snæbrýndi Eyja- fjallajökull, Þríhyrningur, Búrfell, Botnssúlur og Hekla! Eruð þið ekki sjálf stórfeld ævintýri á þessari jörð? Skilijið þið hin ævintýrin, ævintýri hins lifandi heims? Skynjið þið sorg Við guðsþjónustu mótsins.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.