Mæðrablaðið - 23.05.1937, Síða 2

Mæðrablaðið - 23.05.1937, Síða 2
 MÆÐRABLAÐIÐ Nokkur orð um útiveru barna. Eitt af mörgu, sem verður að teljast athugaverí, bæði hér og annarstaðar, er sá ósiður að láta börnin vera úti á götunni seint á kvöldin. Hér í bæ er það mjög áberandi að börn, oft ung, séu að leikjum á götunum . oft mjög seint á kvöldum, án þess. að því er virð- ist, að hið minnsta sé gert til að koma í veg fyrir það, hvorki af aðstandendum barnanna né öðr- um. Virðist svo, sem ekkert þyki við þetta að athuga, svo ríkur er þessi óvani orðinn hjá fólkinu, að það hugsar ekkert út í það, hvort slíkar útiverur séu börnun- nm hoJIar eða ekki, þó fuilyrða megi, að hollar geta þær á engan hátt verið börnunum. Það er alviðurkennt, að nægur svefn og regla sé nauðsvnlegt hvei'jum manni, og þá ekki hvað sízt börnum, sem eru að þroSkast, og þurfa því þessa hvorstveggja með í ennþá ríkara mæli en þeir, sem fullorðnir eru, og eftir ))ví sem barnið er yngra, því meiri nákvæmni og reglu í allri með- ferð þess, og þar á meðal ber að gæta þess, að svefninn sé nægur og góð regla á því, nær börnin eru látin hátta, sem þarf að vera snemma, því svefn að kvöldi og framan af nóttu er þeim eðlilegri og hollari en svefn að morgnin- um. Auk þess er börnum hættara við ofkælingu og þar af leiðandi ýmsum kvillum, cf þau eru seint úti. — Svo ber og á hitt að líta, að það muni ekki.vera að öllu heppi- leg uppeldisáhrif, sem börnin verða fyrir á götunni, ekki hvað sixt að kvöldinu, þegar slark og óregla á sér stað á götunum, eins og oft kemur fyrir hér á sumrin. Eftirtekt barna er yfirleitt afar næm fyrir öllu, sem þeim finnst eitthvað nýstárlegt, og áhrif þess, sem ber fyrir augu barnanna eru oft mjög djúp og langvinn. Börn eru í eðli sínu forvitin, og safnast þangað, sem eitthvað óvanalegt ber fyrir augu þeirra og eyru, hvort sem þeim finnst það Ijótt eða fallegt, ef það er aðeins eitt- hvað, sem þau ekki sjá eða heyra daglega, nægír að benda á það, hve miklir hópeir barna safnast jafnan að götuprédikurum og á útisamkomur Hjálpræðishersins, eins safnasr börn oft þar að, sem drukkrir menn eru á götunum og þá ekki sízt þegar um ryskingar eða þvílíkt er að ræða. Er það alít annað en siðferði- Viæðrada Það er tiltölulega alveg nýtt hjá okkur íslendingum að hafa tekið nokkurn sérstakan dag til að helga móðurinni og málefnum hennar, en á meðal annara þjóða er þetta alis engin nýjung. Fyrstí íslenzki mæðradagurinn var haldinn í Rvík 1934 að tilhlut- m æ ð r a s t y r k s n e f n d a r. Frú Bentina Hallgrírnsson var formaður dagsins, séra Árni Sig- urðsson minntist móðurinnar í ræðu sinni á stól og var henni útvarpað, Þá komu einnig fram í útvarpinu 3 konur sem minntust dagsins, þær frúrnar B. Hallgrímsson, G. Lárusdóttir og Laufey Valdimars- dóttir. Merki dagsins voru seld, og inn komu ,kr. 800 (nettó) og var þeim varið þannig, að helminginn fengu nauðstaddar einstæðingsmæð- ur, sem bein fjárframlög, en hinn helmingurinn var veittur til sumar- hressingai' 20 mæðrum og 5 börn- um þeirra, með vikudvöl á Laug- arvatni. Þetta er í stórum dráttum útkoma hins fyrsta mæðradags. Síðan hefir mæðradagurinn verið Iialdin í Rvík, en hér hefur lítið verið gjört til að setja nokkurn sérstakan svip eða helgi á daginn. Merki dagsins hafa verið boðin til söluí tvö skipti og árangúr orðið ca. kr, 200. Nú verða merki seld í ár og vonum við fastlega að árangurinn verði góður. lega uppbyggjandi fyrir börnin, að horfa á drukkinn mann í áflogum eða veltast ósjálfbjarga á götunum. Og fleira er það, sem hér má sjá og heyra á götunum að kvöldlagi, sem er þannig að það er ekki börnum til nytsemdar að kynnast því. — Það má hiklaust telja það hina mestu ómenningu, að börnum sé leyfð útivera á kvöldin og ætti lögreglunni að vera gert að skyldu að hafa, eftir því sem í hennar valdi stæði, eftirlit með því að slikt eigi sér ekki stað. Hver móðir, sem ber umhyggju fyrir heilsu og velferð barna sinna, ætti eftir mætti að sporna við því að þau venjist á að vera úti lengi fram eftir kvöldinu, Móðurinni, og konunum yfirleitt, hefur verið kveðið lof og starf hennai' viðurkennt í orðum, en hafi verið að ræða um rétt hennar í þjóðfélaginu og málum þess, hef- ir kveðið við annan tón. Kona sem hefur orðið fyrir því láni eða óláni, hvort heldur segja skal, að fæða barn og er einstæð, hefur ekki verið að jafnaði metin á marga fiska. Það er fyrst árið 1927, eða fyrir 10 árum siðan, að krafan um sérstaka styrki til einstæðingsmæðra er borin fram í Kvennréttindafélagi íslands, en veturinn 1028, eftir hin miklu sjóslys, þegar 2 togarar fór- ust með allri áhöfn, beitti Kvenn- réttindafélag íslands sér fyrir því, að fulltrúum frá öðrum kvennfé- lögum var boðið á fund til að ræða um málið og velja nefnd til aðundirbúalöggjöf um mæðrastyrki. Þann 20. apríl sama ár var fund- urinn hajdin með fulltrúúm frá 10 félögum og nefndin valin og gefið nafnið »MÆÐRASTYRKSNEFND- IN«. Þá var og ákveðið að styrk- irrnir skyldu ná til allra mæðra, sem einar hefðu forsjá barna, ekkna, fráskildra og ógiftra. Að vali þessarar nefndar stóðu 10 félög og síðan hafa yfir 30 bætzt í hópinn. Störf mæðrastyrksnefndarinnar hafa verið mikil og margvísleg. Af 205 skýrslum sem henni bárust 1929 frá einstæðingsmæðrum, kom

x

Mæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mæðrablaðið
https://timarit.is/publication/837

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.