Eining - 01.01.1948, Síða 4

Eining - 01.01.1948, Síða 4
undirbúiiingsnefnd norræna þingsins, einstakur dugnaðar- og kappsmaður. — Guðsþjónustur voru haldnar víða um Stokkhólm þennan sunnudag, og fluttu 2—5 prestar ræður í hverri kirkju, frá norrænu löndunum. Að aflokinni messu fengum við félag- ar okkur hádegisverð og héldum því næst í skyndi upp á Skansen, hinn fræga útisamkomustað Stokkhóhnsbúa, en þar átti að fara fram, þennan dag, norræn þjóðhátíð. Hófst hún með músik kl. hálf tvö. — Aðalræðumaður dagsins vai' Jalmar Furuskog, rektor í Filipstad. Fjallaði ræða hans um norræna menn- incjararfinn, og þótti ræðumanni tak- ast með afbrigoum, enda er hann tal- Nokkrir lielstu mcnnirnir í aðalráði bindind- issambands kirkjucafnaða á Norðurlöndum. Hinir tvcir frcmstu, talið frá vinstri: Séra L. P. Bjerno í Randcs, Danmörku, Paul Sól- berg, ritstjóri í Osló, Noreyi. Hinir eru, talið frá vinotri: Dr. Rafccl Holmström, rektor í Hclsir.gfors, sórci Arr.c. Jcnsen, Brovst, Dan- mörku, sóra Yrjö Mikkanen, Kotka, Finnlandi, séra Joel Kullgren framkvæmdastjóri, Stokk- hólmi, Edwin Stenvall prófastur í Nárpes, Finnlandi, séra Kristinn Stefánsson, Reykja- vík, Island. inn einn af mestu ræðumönnum Svía. Vildi ég síðar reyna að snara á íslenzku þættinum um ísland úr ræðu hans, en hann þótti mér snilldarlega saminn og bera vott um norrænan skilning á sögu íslendinga og menningarhlutverki. — Eftir söng Góðtemplarakórs Stokkh., fluttu 4 norrænir gestir stuttar kvcðj- ur, þeir Paul Solberg, Noregi, Kristinn Stefánsson, íslandi, Einar Holm. Finn- landi, og Adolph Hansen, Danmörku. Loks voru sungnir þjóðsöngvarnir norrænu. Síðar um daginn voru sýndir norrænir þjóðdansar, og leikinn var Jeppi á Fjalli. Á fundi í hinu kristna bindindisráði Norðurlanda uppi á Skansen, var ísland tekið inn í ráðið, og var séra Kristinn Stefánsson fulltrúi í ráðinu af hálfu íslands. — Fleiri fundir voru haldnir á Skansen þennan dag. Þar hitti ég t. d. gamla vini mína, dr. R. Hercod frá Lausanne, er veitir forstöðu enn í dag alþjóðlegri skrifstofu gegn ’áfengisböl- inu, og Mark Hayler frá London, son gamla Gay Hayler, en þeir feðgar gáfu longi út blað, er heitir „International Record", og Mark Hayler er enn rit- stjóri þess. Félag þeirra „Prohibition Federation“ er enn starfandi. Mándudagurinn 14. júlí var helgaður erindum um vísindalegar rannsóknir á áfenginu og áhrifum þess. Voru ræðu- menn sex, frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð, bindindismálaráðunautur Dana, Jens Rosenkjær, dr. Gunnar Lundqvist, yfirumsjónarmaður geð- veikrastofnananna í Svíþjóð, og Erling Kristvik, norskur rektor. Þriðjudagurinn 15. júlí var helgaður fræðslu og áhrifum á almenningsálitið af hálfu bindindishreyfingarinnar. Með- al ræðumanna voru: 1. Þorsteinn Bohl- in biskup (Svíþjóð) : Siðfræði bindind- isstarfsins. 2. Sigurd Schoubye kenn- araskólakennari (Danm.) : Bindindis- hugsjónin. 3. Siirka-Liisa Meri, fil. mag. (Finnland), og 4. Olaf Sundet lektor (Noregi). Hann flutti ágætt erindi. Seinni partinn fór fram samtal um starfsaðferðir og form bindindishreyf- ingarinnar, og töluðu menn í útvarp, því að fjöldi var áheyrenda. Sr. Joel Kúllgren stjórnaði umræðunum. Aðrir þátttakendur voru: Frode Markersen og Th. M. Nielsen, prestur, báðir dansk- ir, John Forsberg forstjóri og frú Dag- mar Karpio, bæði frá Finnlandi, Pétur Sigurðsson erindreki og ég frá íslandi, Stein Fossgard kennari og Rolf Krist- iansen ristjóri, báðir frá Noregi, og frú Hillevi Larsson og Rune Rydén kenn- ari, bæði frá Svíþjóð. Almennar um- ræður fóru fram á eftir. Þriðjudagskvöldið bauð borgarstjórn- in norræna þinginu í ráðhúsið (Stads- huset), sem er án efa eitt af glæsileg- ustu ráðhúsum álfunnar. Þarna voru 600 gestir. Var vel veitt, en aðeins flutt- ar tvær ræður, af hálfu borgarstjórnar og norræna þingsins. Okkur var fylgt um hina mörgu sali ráðhússins og skýrt frá hinu helzta þar. Miðvikudaginn 16. júlí hélt þinginu áfram, og voru nú erindi flutt og um- ræður fóru fram um bindindisstarf- semi meðal æskulýðsins, hvernig ætti að ala unga fólkið upp heima til bind- indissemi, skýrt frá starfinu í æsku- lýðsfélögum innan bindindishreyfingar- innar og mikilsverðum þáttum í bar- áttunni gegn áfengisnautn æskulýðsins. — Enn voru flutt erindi um það, hvern- ig ætti að fara að því að fá unga fólk- ið inn í bindindisstarfsemina. — Voru þessi erindi og umræður mjög lærdómsríkar. Meðal ræðumanna var Gösta Elfving ritstjóri. — Um kvöldið hafði formaður stjórnar þingsins, Ruben Wagnsson ríkisþingsmaður, mikið boð inni. Voru þar milli 50 og 60 gestir frá mörgum þjóðlöndum. Þótti okkur bæði skemmtilegt og fróðlegt í heimboði þessu — og vel kunnu Wagnsson og frú að taka móti gestum. Fimmtudagurinn 17. júli var helgaður bindindispólitík Norðurlanda. — Erik Englundfil. dr. ogrikisþingsmaður flutti erindi um reynslu Norðurlandaþjóða á sviði bindindjspólitíkurinnar frá því cftir fyrra heimsstríðið. Fjórir ræðu- menn, sinn frá hverju Norðurlandanna utan Svíþjóðar, fluttu stutt erindi um ýmis ráð, sem neytt hefði verið í bind- indisbaráttunni í síðara heimsstríðinu og eftir það í löndum þeim, og skýrðu þeir frá, hvernig þau hefðu reynst. Þess- ir ræðumenn voru: 0. H. Malchou rík- isþingsmaðui', Vihtori Karpio ritstjóri, sr. Kristinn Stefánsson og Johan Hvidsten forstjóri. Urðu miklar og all- heitar umræður um þessi mál. Þingið markaði loks stefnu í bind- indismálum með yfirlýsingu, sem sam- þykkt var, áður en því var slitið. Hafði yfirlýsing þessi verið rædd og afgreidd af helztu trúnaðarmönnum frá öllum Norðurlöndunum áður á tveim fundum, sem haldnir voru í nefndarherbergi fjárveitinganefndar í sænska ríkisþing- inu, en því voru fundir stærri nefnda haldnir þar, að tiltölulega margir á- hrifamenn í ríkisþinginu eru í flokki templara og annarra bindindismanna. Einnig var rætt á sama stað um heim- boð til íslands, það sem ég hafði flutt. Ég benti á, hve mikilsvert það væri fyrir íslenzku bindindishreyfinguna að fá norræna bindindisþingið til íslands, og í öðru lagi gætum vér ekki til lengd- ar alltaf notið gestrisni vina vorra og samherja, án þess að fá einu sinni tæki- færi til þess að endurgjalda það, þó að í ófullkomnum stíl væri. Var tekið vel máli mínu, en bent var á, sérstaklega af hálfu Dana og nokkurra Svía, að ferðin til íslands myndi verða svo dýr, að fáir einir myndu sækja þingið þang- að. Reisþá upp norskur stórþingsmaður, Hognestacl, bóndi á Jaðrinum, og mæltl eindregið með íslandsförinni og kvað alls ekki frágangssök fyrir þingheyj- endur að leigja sér skip frá Bergen, búa í því á Reykjavíkurhöfn og borða þar, meðan þingið stæði yfir. Urðu ýms- ir til að styðja þessa tillögu. Finnar buðu norræna þinginu næsta til Helsingfors 1950, ef Islandsförin teldist ekki framkvæmanleg, kostnaðar vegna,, en lýstu jafnframt yfir því, að þeir vildu alls ekki spilla fyrir þing- haldi á íslandi. Máli þessu var vísað til forstöðunefndar þingsins og sam- þykkt að þyggja boðið frá íslandi, ef nefndin teldi það fjárhagslega kleift. Fáum við hér að vita niðurstöðuna fyr- ir haustið 1948. öllum bar saman um, að þetta norr- æna þing væri með hinum f jölbreyttustu og lærdómsríkustu, sem haldin hafa verið. Formaður undirbúningsnefndar, Nils Sundberg forstjóri, og aðalritari þess, Ernst Larsson, gerðu sínar sakir með ágætum. Boðnir vorum við til Gripsholmhallar, og var það hin á- nægjulegasta för (18. júlí). Nutum við þá, og endranær gestrisni vorra sænsku vina og samherja og umhyggju í rík- um mæli. Starfsskrá þingsins var, sem fyrr segir, sérlega fjölbreytt, og vandað mjög til fyrirlesara. Ræðumenn lögðu fram fyrir okkur

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.