Eining - 01.01.1948, Qupperneq 12

Eining - 01.01.1948, Qupperneq 12
12 E I N I N G * Áfengismálin í Noregi Frá 1939 til ársloka 1946 hefur neyzla sterkra drykkja aukist í Noregi um 38%. Ef borin eru saman árin 1945 og 1946, þá er vöxturinn á einu ári 69%. Á því sama ári fjórfaldaðist neyzla veikari víntegunda, en fram að árinu 1946 frá 1939 hafði neyzla þeirra víntegunda minkað um 53%. f Samanburður á áfengisneyslunni: Brennivín Vín lítrar lítrar 1939 7,880,757 4,862,000 1942 5,917,474 2,322,289 1944 10,026,067 723,955 1945 8,530,679 659,036 1946 14,458,846 2,312,041 Áfengisneyzlan á mann. 100% áfengi: 1939 2,22 lítrar 1942 0,87 — 1945 1,34 — 1946 2,42 — Kærðir fyrir ölvun: (: á hömlur sökum styrjaldar) Osló Öðrum bæjum Byggðum Alls 1939 14,055 32,432 5,414 37,844 1942 5,462 14.402 2,200 16,602') 1945 7.289 18,325 1,877 20,202 1946 15,498 38,261 4,254 42,515 Ölvun við akstur: 1939 var 772 bílstjórum hengt fyrir ölvun við akstur. 1946 var 913 bílstjórum hengt fyrir ölvun við akstur. Af þessum bílstjórum mistu 20% ökuleyfi sín. I bílslysunum slösuðust 2,252 menn 1946 og er það hærri tala en nokkurt ár fyrir styrjöldina. 1) Stríðsár. Áfengiskaup þegnanna: 1939 kr. 195,959,000 1942 — 165,190,000 (stríðsár) 1945 — 226,568,000 1946 — 446,800,000 Tekjur ríkisins af áfengissölunni: 1939 kr. 100,930.000 1945 — 183,000,000 1946 _ 340,101,000 íbúar Noregs eru 3,000.000. I Iandinu eru 29 borgir og bæjir með íbúafjölda yfir 4000. Fram að árinu 1946 var á- fengisútsala í 17 af þessum 29 bæjum. 28. janúar 1946 fór fram atkvæða- greiðsla um áfengissöluna í 14 bæjum. Af þeim hugðust 11 að fá útsölu, en 3 vildu losna við hana. Niðurstaðan varð sú, að 3 af þessum 11 fengu áfengið, en 8 voru framvegis gegn áfengissölunni. Alls var atkvæðagreiðslan þannig, að 44,556 greiddu atkvæði með áfengissöl- unni, en 50,349 á móti. Til bindindisstarfsemi veitir ríkið 1947—’'48 kr. 255,000,00 og til fram- færslu áfengissjúklingum kr. 616,000,00 og svo er í ráði að ríkið launi 8 fræðslu- stjóra, er starfi á vegum hinna ýmsu bindindis- og menningarfélaga í landinu. Talið er að í stúkum og bindindisfélög- um, einnig í kirkjusöfnuðum, sem heimta algert bindindi af félögum sín- um, séu nú um 174,600 manns, í barna- stúkum, sunnudagaskólum og öðrum barnafélögum um 193,850. Einhver sorglegasti liðurinn í skýrslu Noregs er sá, að um 70,000 börn eru í drykkjumannafjölskyldum. Það sést glöggt af þessu yfirliti, að minnst er áfengisneyzlan og áfengissal- an, þegar hömlurnar eru sem sterkastar, en slíkt er engan vegin að þakka menn- ingu eða siðferðisþroska manna. Strax þegar hömlurnar voru afnumdar, óx drykkj uskapurinn ört og ekki sízt með- al yngri kynslóðarinnar. Góðtemplarareglan er sterk í Noregi. Af öllum löndum heimsins er hún sterk- ust á íslandi, í Svíþjóð og Noregi. Frá héraðsmótimi á Snæfellsnesi Morgunblaðið birti frásögn 10. sept. síðastl. um héraðsmót sjálfstæðismanna á Snæfellsnesi. Á mótinu, sem haldið var 7. sept. var samþykkt meðal annars þetta: „Fundurinn beinir þeirri ákveðnu ósk til allra góðra Islendinga, að þeir taki höndum saman í baráttunni gegn á- fengisbölinu, sem nú er að mergsjúga hina íslenzku þjóð. Heilbrigð og hraust æska sé markmið hins unga lýðveldis og fyrsti þátturinn og brýnasti, í þeirri baráttu, hlýtur að vera barátta gegn drykkjutízkunni og drykk j uskaparóreglunni“. Það er þakklætisvert að fá þennan stutta pistil í Morgunblaðinu. Blaðið segir frá héraðsmóti sjálfstæðismanna, þar sem saman eru komnir menn, er líta á drykkjuskaparbölið sömu augum og við hinir, sem oft erum kallaðir ,,böl- sýnismenn“ eða ,,ofstækismenn“. Hitt er næstum kátlegt, að sjá Morg- unblaðið daginn áður, en það segir frá mótinu, það er þann 9. sept. vega svo hranalega að mönnum, sem með sár- sauka hafa fundið mjög til þess, hve margur æskumaður í landi voru hefur gengið braut ófarsældar hin síðari árin. Víkverji er að minnast á afrek íþrótta- manna okkar erlendis og þykist fá þar vopn í hönd. Hann segir: „Dáfallega er þeim mönnum gert til skammar, sem sífellt eru að nudda um það, að æskan á íslandi sé á glötunar- vegi, hin upprennandi kynslóð hér á Iandi sé að kafna í peningaflóði, ærast af amerískum jazz, eða drukkna í Svarta dauða“. Svo mörg eru þau orð. Ég þarf ekki að taka að mér neína vörn fyrir þessa bölsýnu ,,nuddara“, sem Víkverji minn- ist á. Ef þeir eru til, þá eiga þeir ekk- ert betra skilið en þarna er útilátið. En ég á yfirleitt bágt með að hugsa mér þá menn með öllu ráði, sem „sífellt“ nuddi á því að æskulýður landsins sé á glöt- unarvegi. Ég hef engan mann heyrt segja það og ekki séð það skrifað af neinum, en þar fyrir getur einhver hafa sagt það eða skrifað. Hitt er víst, að þeir eru allt of margir ungu mennirnir og ungu snótirnar líka, sem sokkið hafa of djúpt í það áfengis- böl, sem Morgunblaðið segir, daginn eft- ir að Víkverji skrifar þessa klausu, að sé að „mergsjúga hina íslenzku þjóð“. Einnig gætu allir þjóðhollir menn og mannvinir óskað þess, að æskulýður landsins, og landslýður yfirleitt, hefði sýnt ofurlítið meiri festu, bjóðhollustu og gætni í sambandi við hernámið, pen- ingaflóðið og allt, sem því fylgdi. Það er óneitanlega gleðilegt, að ís- lenzkir æskumenn stunda nú mjög í- þróttir sér til hollustu og þjóðinni til frama, en að nokkrir snjallir menn skara þar fram úr, þarf þó ekki að vera neitt þjóðarbjargráð. Hitlers æskan var hraustur íþróttalýður. Slíkt er út af fyr- ir sig ágætt, en markmiðið verður þó að setjast hærra og við skulum treysta því, að okkar íslenzki æskulýður geri það, en gera okkur þó ljósar hætturnar, sem honum eru búnar, nú eins og áður. Harmur drykkjumannsins Því ber ég nú í hjarta heita sorg, að hreinleikinn er burt úr mínum siðum, og sálin mín er eins og brotin borg, með brendum, stökkum, svörtum máttarviðum. S. Tunglsljós Máninn hvítur á skóga skín. í limi þýtur, um laufsal streyma eimar ljóðhreima. Unnustan mín. Hákon. i )

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.