Eining - 01.11.1948, Síða 4

Eining - 01.11.1948, Síða 4
4 E I N I N G Æskulýðsþdttur Vinaval „Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim, sem leggur lag sitt við heimskingja“. Orðskv. „Það dregur hver dám af sínum sessunaut“. „Sýndu mér hverja þú umgengst, og ég skal segja þér liver þú ert“. „Sé vatni liellt í bikar, bolla, skál, það brevtir lögnun eftir kringum- stæðum. Á vinatengd vér töpum eða græðurn, því til liins verra og betra, eftir gæðum, af þeirra vali mótast mannleg sál. Þér ungu vinir, vonir þessa lands, í vinakjöri takið skyn til ráða, en forðist svipi, stormi og straumi háða, en stórum sálum tengist fast. — 1 il dáða þær knýja frarn með svipu sann- leikans“. (Úr rœ'Su Japanskeisara til skólapilta. — Kvistir). Lærið þessar vísur, kryfjið þær til mergjar. I þeim eru gullvæg sannindi. Umhverfið mótar manninn líkt og í- látið vatnið. Stóru sálunum ber að lengjast fast, en forðast reikulu svip- ina, stefnulausu mennina. í vinavali þarf að taka skynsemina til ráða. „Kom þú eigi á götu óguðlegra og gakk eigi á vegi vondra manna“. — Orðskv. „Að vera allra vinur er til tjóns, en til er ástvinur, sem er tryggari en bróðir“. — Orðskv. „Maður er manns gaman“. „Freisting þung ef þig fellur á, forðastu einn að vera þá, guðliræddra selskap girnstu mest, gefa þeir jafnan ráðin bezt. Huggun er mönnum manni að, miskunn Guðs liefur svo tilskikkað“. Hallgrímur Pétursson. Yinavalið er eitt þýðingarmesta atriðið í lífi allra æskumanna. i(Æskulý'Ssþáttum ver'Sur haldi'ö áfram í blaöinu). Bagaleg prentvilla Athugull maður benti mér á mjög bagalega prentvillu í síðustu bók minni, Hugsjónir og hetjulíf. Sagt er á bls. 50, að Keir Hardie hafi verið fæddur árið 1899, en á að vera 1856. Þetta eru þeir lesendur Einingar, sem eiga bókina, beðnir vinsamlegast að leiðrétta. Jón Einar Jónsson áttræður Hann er ekki hár í lofti, en hvikur á fæti, ungur í anda, hýr á svip, glaður og hress í viðmóti, gengur teinréttur og stundar iðn sína enn í dag, hinn átt- ræði öldungur. Jón Einar Jónsson varð áttatíu ára 5. október s.l. Hann er fæddur þann dag árið 1868 að Vesturkoti í Leiru, Gerða- hreppi, fluttist til Reykjavíkur 1880, hóf tveim árum síðar, eða um fermingar- aldur, prentnám hjá Sigmundi Guð- mundssyni, vann síðar í Isafoldarprent- smiðju, þá tvö ár á Seyðisfirði hjá Skapta Jósefssyni, en tók svo að sér nýja prentsmiðju fyrir Jón Ólafsson ritstjóra og starfaði við hana í 5—6 ár. Jón varð einn af stofnendum Guten- bergs og vann þar uppfrá því, gekk í prentarafélagið 1898, var um tíma í stjórn þess, einnig í stjórn Söngfélags prentara og formaður leikfélags, sem þeir stofnuðu og lifði góðu lífi 2—3 ár. Alls hefur Jón Einar verið við prentiðn í 64 ár. Hann var gerður heiðursfélagi prentarafélagsins á 50 ára afmæli þess 1947. Jón gerðist góðtemplari á öðru ári Reglunnar á Islandi, en hvarf úr henni um skeið, gekk í hana á ný 1901, hefur verið lengst af félagi í stúkunni Verð- andi, en starfað þó enn meira í ungl- ingareglunni, verið ýmist aðalgæzlu- maður eða aðstoðargæzlumaður barna- stúkunnar Æskunnar frá 1901 til 1940. Hann er heiðursfélagi beggja þessara stúkna, einnig umdæmisstúkunnar og er nú umboðsmaður stórtemplars í stúku sinni, Verðanda. Hann er einnig heið- ursfélagi í söngkór templara. Nærri má geta, að jafn vinamargur maður og Jón Einar, sem einnig á 6 börn, 25 barnabörn og 18 barnabarna- börn, hafi ekki verið látinn afskiptalaus á afmælisdaginn, enda rigndi yfir hann heillaskeytum og blómum, og veizlur hafa haldið honum stúkurnar Verðandi og Æskan, auk skyldmenna. Góðar gjaf- ir bárust honum einnig. Margir Reykvíkingar kannast við Jón Einar, en enginn heyrist minnast hans nema að góðu einu. Hann er í vitorði allra vina sinna og kunningja hinn sí- ungi, geðgóði, vammlausi og grandvari drengskaparmaður, sem hefur þegar lif- að langa ævi, fyrirmyndarlífi. Ævistarf hans og öll breytni er hans fagri sigur- sveigur. Kona hans var Sigurveig Guðmunds- dóttir, fædd og uppalin í Reykjavík, mesta ágætiskona, bjargvættur heimil- is síns, manni og börnum hjálp og hlíf, og góðviljuð í hvers manns garð. Gott heimili, mikið barnalán, góð heilsa, starfsgleði og geðprýði hefur verið hlutskipti Jóns Einars, og það er gott hlutskipti. Akureyringar heiðra Snorra Sigíússon I tilefni af 64 ára afmæli Snorra Sig- fússonar námsstjóra, nú fyrir nokkrum dögum, gekk Fræðsluráð Akureyrar á fund Snorra og færði honum ávarp, und- irritað af meðlimum Fræðsluráðsins, skólastjóranum í bænum og bæjar- stjóra, þar sem honum eru þökkuð störf hans í þágu uppeldis- og menntamála bæjarins. Jafnframt tilkynnti Fræðsluráðið, að það hefði verið ákveðið að láta gera brjóstlíkan af Snorra. Er ætlunin að gera tvær steypur af líkaninu og á Snorri sjálfur að eiga annað, en hirn^ verður komið fyrir í Barnaskóla Akur- eyrar. I ávarpinu segir svo: „Fræðsluráð Akureyrar, og aðrir menn í bænum, vilja nota tækifærið, á 64 ára afmæli þínu, til að votta þér al- úðarþakkir fyrir þitt mikla og ómetan- lega starf í þágu uppeldis, menntunar og menningar æskulýðsins í Akureyrar- bæ. Vinsældir þínar í skólastjórastöðunni voru óvenjulega miklar og almennar, vegna dugnaðar þíns, áhuga, reglusemi og samvizkusemi. Nemendur þínir, for- eldrar þeirra og bæjarbúar allir sökn- uðu þín, er þú lézt af skólastarfi í bæn- um. En sú er bót í máli, að þú hefur enn yfirumsjón með fræðslu barna hér og annars staðar í þessum landsfjórð- ungi. Væntum við, að þér megi lengi enn auðnast að gegna því starfi. Nafn þitt og verk munu geymast í sögu Akureyrarbæjar“. Tíminn, 16. sept. Er þetia fyrirmYndin Ferðamenn eru stundum að slúðra um einhvern fyrirmyndar drykkjuskap erlendra þjóða. Norska blaðið Folket segir að „hinir þyrstu Ameríkumenn hafi drukkið brennivín fyrir 9 milljarða og 640 millójnir dollara, árið 1947, en ölsalan hafi á sama tíma numið 45 millj- örðum dollara“. Þetta er ótrúleg tala. En hið alvarlega er, að salan er 20% hærri en árið áður. Finnst ekki andbanningum horfa vel í þessum sökum?

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.