Eining - 01.11.1948, Side 10

Eining - 01.11.1948, Side 10
10 E I N I N G Sigurður Jónsson skólastjóri Miðbæjarskólans í Reykja- vík var fæddur að Lækjarkoti í Mos- fellssveit, 6. maí 1872, sonur Jóns Árna- sonar bónda þar og Sigríðar Gísladótt- ur konu hans. Hann stundaði nám við Johnstrup Seminarium í Danmörku og tók kenn- arapróf þar. Árið 1898 varð hann kenn- ari við barnaskóla Reykjavíkur og skóla- stjóri þar frá 1. október 1923 til dauða- dags, 17. júní 1936. í stjórn Hins ísl- kennarafélags 1901—22. Þá lagðist það niður, er Samband íslenzkra barnakenn- ara var stofnað. Sigurður var í stjórn þess nokkur ár og jafnan fulltrúi á fundum þess og þingum. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1914—26, forseti bæjar- stjórnar 1922—24 og stundum settur borgarstjóri í forföllum borgarstjóra. Starfaði hann mörg ár í fasteigna- og fátækranefnd. Einnig í sóknarnefnd og barnaverndarnefnd. Hann varð ötull bindindismaður ung- ur að aldri og vann mikið fyrir það mál- efni, og í kennarastétt landsins varð hann einn hinna fremstu forvígismanna bindindismálsins. Hann var í fram- kvæmdanefnd Stórstúku íslands 1927— 30 og 1935—36, þá stórgjaldkeri, en stórtemplar 1927—29. Ritstjóri Good- templars 1901—03 og kennarablaðsins 1899—1900. Eindreginn bannmaður, og sá glögglega fyrir böl það, sem afnám bannsins hlaut að hafa í för með sér. Þetta yfirlit sýnir að nokkru, hve mikils trausts Sigurður naut meðal sam- tíðar sinnar. Hann naut einnig mikilla vinsælda og virðingar meðal þeirra, er hann kynntist, enda hið mesta ljúf- menni, góðviljaður og ráðhollur, en þó fastur fyrir, einarður og fylginn sér. Ágætur kennari og skólastjóri. Margir kennarar minnast með þakklæti leið- sagnar hans og hjálpsemi í starfinu, er þeir hófu undir stjórn hans. Góðtempl- arar telja hann einn sinna beztu manna og nemendur hans munu taka undir orð Péturs Halldórssonar borgarstjóra að Sigurði látnum: ,,Við, sem nutum fræðslu hans í æsku, minnumst hans sem hins bezta vinar og leiðtoga til alls þess, sem gott er og gagnlegt“. Sigurður var tvíkvæntur. Með fyrri konu sinni, Önnu Magnúsdóttur frá Dysjum á Álftanesi, átti hann tvö börn, Steinþór magister og Guðrúnu kennslu- konu, en með hinni síðari Rósu Tryggva- dóttur, eyfirzkri að ætt, átti hann þrjá sonu, Hróarr, Tryggva og Konráð, sem enn eru á æskuskeiði. Sigurðar Jónssonar er minnzt, þegar geta skal ágætustu íslands sona þess- arar aldar. Ingimar Jóhannesson formaður S.Í.B.K. kreppti hnefann undir höku mér og sagði: „Villtu halda saman þínum stóra tröllatúla, ósvífni ruddinn þinn“. I þessum tón hélt kappræðan svo á- fram þrjár klukkustundir. Fundarmenn fengu nú samt sem áður vafalaust eng- an nýjan fróðleik um áfengisvandamál- ið, en þeir fengu skemmtilegt kvöld að fornum sið á þessum drungalegu stríðs- árum, og voru sjálfsagt feignir ofur- lítilli tilbreytingu. Nokkrum vikum síðar hvarf Lycinka af sjónarsviðinu. Hún var helzt til gróf í munninum, en í endurminningu minni lifir hún sem furðulegt fyrirbæri. Dá jag tráffade Lycinka. Þegar ég hitti Lycinku Það var í Skive, á fyrri styrjaldar- árunum, að ég hitti Lycinku í fyrsta sinni. Hún var þá send beina leið frá Bandaríkjunum til þess að lumbra á skallanum á mér. Það væri rangt að leyna því, að hún hafði strax við fyrstu sýn djúp og sterk áhrif á mig. Ég held samt að ég misbjóði ekki sannleikanum, er ég segi, að hún var öllu fremur sérkennileg en falleg. Já, ég þyrði jafnvel að bæta því við, að hún var mjög sérkennileg. Meðal annars var hún mjög lágvaxin, en ræðustóllinn, sem hún átti að nota, var hár. Tvo ölkassa varð að setja (Tuborg og Carlsberg) hvorn ofan á annan, og þegar hún var svo komin upp á kassana, náð loks hak- an uppfyrir ræðustólinn. En þá gat líka áhlaupið hafizt. Eftir svo sem fimm mínútur tók ég að draga andan rólega. Ég skildi þá að lífi mínu mundi borgið í þetta sinn. Æðsti foringi frelsissveitar áfengisvið- skiptanna, H. P. Ludvigsen, sat beint á móti mér við fréttaritaraborðið. Hann gaf mér illt auga, og ég var nógu ósvíf- inn til þess að rétta honum hendina: Óska til hamingju, kæri vinur. Inni- lega til hamingju. „Uff, já, það getur þú sagt“, svaraði Ludvigsen og þurrkaði svitann af enni sér. — Ég hef séð ljón og tígrísdýr, hljóm- aði frá ræðustólnum. Ég hef virt fyrir mér híenur og önnur villidýr, en aldrei hef ég séð ófreskju eins og skepnuna þarna (sveiflar hendinni í áttina til mín). — Fagnaðarlæti. í svarræðu minni sagðist ég vel geta trúað því, að kvenmaður þessi hefði dvalist allverulega í dýragarði, en hitt væri mér óskiljanlegt, hvernig hún hefði sloppið þaðan. — Enn meiri fagnaðar- læti. En frúin var ekki af baki dottin. Hún Dómmálaráðherra hefur með bréfi, dags 4. þ. m., lagt fyrir alla lögreglustjóra landsins að gæta þess jafnan, er þeir veita leyfi til áfengisveitinga samkvæmt 2. mgr., 17. greinar áfengislaganna, að setja félögum þeim eða stofnunum, sem leyfin fá, svo og veitingahús- um þeim, sem áfengisveitingarnar fara fram ^ í, það skilyrði fyrir leyfunum, að áberandi ölvuðum mönnum verði ekki veitt vín. Verði félög, stofnanii' eða veitingahús uppvís að því að brjóta gegn þessu, þá skuli þeim ekki veitt leyfi til áfengisveitinga framvegis. Sama dag hefur dómsmálaráðherra bréflega lagt fyrir eiganda veitingahússins Hótel Borg að sjá um, að viðlögðum missi vínveitinga- leyfis, að óberandi ölvuðum mönnum verði ekki veitt vín í veitingasölum hótelsins, heldur f jar- lægðir þaðan. ^ 4 Öllu því ber að fagna, sem sýnir, að menn hugsa til einhverra úrbóta um áfengisbölið, en fögnuður okkar bind- indismanna verður þá fyrst verulegur, er við sjáum, að einhverjum slíkum á- kvæðum er vel framfylgt og að eitthvað vinnst í rétta átt. Fyrirskipun dóms- mdlardðherra um díengisveitingar

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.