Austurland - 21.12.1978, Side 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 21. desember 1978.
Noregspistill
frá Smára
Amerískar myndir
Sl. vor, rétt fyrir bæjar- og sveitar-
stjómarkosningarnar, þrammaði
einn af helstu frambjóðendum Sjálf-
stæðisflokksins í Neskaupstað um
götur bæjarins í silfurlitri blússu
með bapdaríska fánann saumaðan
á aðra öxlina. Ég velti því fyrir mér
pá hvort þetta væri liður í kosninga-
baráttu Sjálfstæðisflokksins í bæn-
um, eða hvort það væri hreinasta
tilviljun og gjörsamlega meiningar-
laust að frambjóðandinn skrýddist
þessu klæði svona rétt fyrir kosn-
ingar. Ég velti pví líka fyrir mér
hvort fólk tæki yfirleitt eftir þessu,
p\í p'dö hefur lengi verið aigengt að
sjá íslenska unglinga og börn klæð-
ast fötum sem kyrfilega eru merkt
Bandaríkjunum eða hinum ýmsu
deildum bandaríska hersins. Jafn-
framt hefur pað tíðkast við nokkrar
undanfarnar kosningar á íslandi að
stjórnmálaflokkarnir framleiði ýmsa
merkimiða, sem alvarlegir og æstir
stuðningsmenn festa utan á sig í
kosningabaráttunni. Allavega er f>að
svo að þegar fullorðið fólk, ég tala
nú ekki um virðulega frambjóðend-
ur, hefur hangandi utan á sér merki
eða tákn í kosningastríðinu, pá er
fyllsta ástæða til að ætla að það
meini citthvað með pví. Ég er t. d.
fullviss um, að ef einn af væntan-
legum bæjarfulltrúum Alþýðubanda-
lagsins hefði gengið um á þessum
sama tíma, merktur hamri og sigð,
pá hefði það orðið tilefni umræðna
og sjálfsagt verið túlkað á ýmsa
lund. Það er semsagt staðreynd að
hin ýmsu tákn sem fólk ber á klæð-
um sínum hafa mörg hver pólitíska
merkingu og eru óspart notuð í
pólitískri baráttu.
Þetta flaug í gegnum huga minn
þegar ég skoðaði bók, sem út kom
á Norðurlöndum ekki alls fyrir
löngu og ber heitið Amerískar
rnyndir. Þessi bók, sem hefur verið
mjög umtöluð í Skandinavíu upp
á síðkastið, er eftir dana að nafni
Jacob Holdt. Jacob þessi var íhalds-
maður, ferðaðist til Bandaríkjanna
og lifði þar á meðal fátækra í lang-
an tíma. Á meðan á dvölinni stóð,
tók hann u. p. b. 15.000 ljósmyndir
á einfalda myndavél og er bókin
einskonar úrval þessarra mynda
ásamt fræðandi frásögu og lýsing-
um á því sem fyrir bar. Það skal
tekið fram að höfun,dur bókarinnar
er ekki lengur íhaldsmaður.
Bókin hefur haft víðtæk áhrif hér
á Norðurlöndum og virðist raunar
hafa fengið marga til að endurskoða
afstöðu sína, sem áður áttu Banda-
ríkin að fyrirmyndarríki og litu
þangað þegar hjalað var um ágæti
hins vestræna þjóðskipulags og lýð-
ræðis. Jacob Holdt sýnir skýrt framá
í bók sinni að Bandaríkin hafa tvær
hliðar. Önnur hliðin er auglýst án
afláts og sýnir hið vel þekkta alls-
nægtalíf, fegurð og ómælda ham-
ingju. Þetta er hliðin sem ferða-
mcnnum í stuttri heimsókn er sýnd
og það var hluti af þessari hlið sem
ritstjóri þessa blaðs barði augum
ekki alls fyrir löngu. Hinni hliðinni,
þeirri svörtu hlið eymdar og fátækt-
ar sem Holdt lýsir og milljónir
manna búa við í þessu landi, er að
mati höfundarins að miklu leyti
haldið leyndri. Við skulum í formi
upptalningar stikla á örfáum atrið-
um, sem eru lýsandi fyrir ,.bakhlið“
Bandaríkjanna og sem koma fram
í bók Jacob Holdt:
Um 20 milljónir Bandaríkja-
manna eru ólæsir. í negrahverfum
stórborganna eru fleiri uni hvern
lækni en í Mið-Afríku. í Chicago
einni dóu 600 börn á einu ári af
vannæringu og rottubiti. Meðalald-
ur negra er 10 árum lægri en með-
alaldur hvítra og negrar þéna að
meðaltali helmingi minna en hvítir.
i 0 milljónir Bandaríkjamanna svelta
beinlínis. f borgarhverfinu Bronx í
New York deyja níu af hverjum
tíu af ónátturulegum orsökum, p.
e. af völdum hungurs, eiturlyfja-
neyslu, rottubits, eða pá að þeir eru
beinlínis myrtir. Almannatryggingar
eru á svo lágu stigi að eftirlauna-
menn eða lífeyrisþegar líða skort
og ýmsar atvinnustéttir fá ekkert
til að lifa af að lokinni starfsævi.
Þetta er upptalning, sem gæti orð-
ið mörgum sinnum lengri, en hún
ætti að duga til þess að gefa örlitla
innsýn í ríkasta land heims. Aðal-
efni bókarinnar og kannski það
átakanlegasta er myndefnið og því
verður ekki lýst með orðum.
Vonandi á þessi bók eftir að ber-
ast til íslands og upplýsa fólk þar.
Eins og fyrr sagði hefur bókin breytt
afstöðu margra á Norðurlöndum til
forystu og fyrirmyndarríkis hinna
svokölluðu vestrænu þjóða. Bókin
hefur fengið marga sannfærða til að
efast í einlægri trú sinni. Þeir menn,
franrbjóðendur sem aðrir, sem bera
fána þessa ríkis utan á sér, hefðu
alveg sérlega gott af þeirri upp-
fræðslu sem bókin veitir.
Bergen 3/12 1978
Sinári Geirsson
MINNING
Kristin Áskelsdóttir f. Í0.08.Í? d. 01.12.78
Háspenna án
lífshæilu
„Maðurinn með ljáinn" hefur enn
á ný gengið hér um garð, óvæginn
og miskunnarlaus, og minnl okkur
á, að við erum einskis megnug gegn
valdi hans.
Við sviplegt fráfall Kristínar Ás-
kelsdóttur er efst í hugum okkar,
samstarfsfólks hennar á Sjúkrahús-
inu og Heilsugæslustöðinni, rninn-
ingin um hana, rólynda, hjálpfúsa,
styrka og umfram allt trausta. Við
þökkum fyrir að hafa átt þess kost
að kynnast og starfa með henni,
Eiginmanni Kristínar og börnunum
ungu og öðrum ættingjum vottum
við okkar dýpstu samúð og biðjum
þann, sem öllu ræður að styrkja
þau og styðja á komandi tímum.
Starfsfólk Sjúkrahúss og
H eilsugœshistöö var
Egilsstöðum.
Þegar eg var að rölta héma on-
ettir áðan kom leikfimikennari á bíl
og kippti mér uppí. „Hvað er að
frétta?“ spurði eg. „Þeir eru komnir
maður“ svaraði hann og hló við.
Það var ómögulegt að kenna fyrir
þeim í Valaskjálf svo eg fór með
krakkana útí móa. Það síðasta sem
eg heyrði þegar eg fór úr húsinu var
einhver sem endaði ræðuna á SKÁL
og pá hvein í öllum áttum SKÁL
SKÁL SKL. Svo heyrði eg ekki
ekki meir“.
Þessir þeir munu vera 30 sem
komu fljúgandi til að halda veislu
útaf Hundinum eða Norðanhundin-
um eins og jafnvel framsóknarmenn
kölluðu fyrir eina tíð pá hugsaða,
en nú raunverulegu, línu norðan frá
Laxá. Eg þurfti helst að hitta mann.
en var sagt að hann væri staddur í
skjálfinni í „fullum fagnaði“ eins
og ágætur maður komst að orði um
dýrðlegar veislur þar sem etið var
fjórréttað í hvert mál eins og við
Lagarfoss hér um árið. Fleira mun
par vera austanvéra og hafa að
höfðingjaþjóðfélagssið verið tíndir
úr múgnum, framámenn kallaðir á
nútímamáli af því orðið heldrimenn
er gengið úr sér.
Veðri er svo háttað hér á mið-
héraði á þessum merkisdegi 8. des.
að logn er á jörðu, hlýtt sem á há-
sumri, loft þrungið skýjum og svo
dimmt yfir að vart muna elstumenn
þvílíkt myrkur um miðjan dag, enda
skammdegi. Einu glætuna hér í
kauptúninu leggur frá ljósastaurun-
uin sem stara þvölum og sljóum raf-
augum út í rakt loftið — augnaráðið
dálítið eins og þeir sjái allt í móðu.
Ótíndur neytandi.
\\\\\\\\ \ \\\\\\\\\\A\\\\A\VVWWVWVV\V\VV\
TIL SÖLU
Skíði til sölu KÁSTLE 205 cm
með bindingum.
Upplýsingar í síma 7644, Nesk.
wvvwwvvwwwwwwwwwwvwwwvwwv
Þróttur Neskaupstað var annað árið i röð kjörið prúðasta lið
II. deildar, og hlaut félagið Dragostyttuna —Ljósm. K Ingvarss.