Eining - 01.12.1953, Síða 2

Eining - 01.12.1953, Síða 2
2 EINING þjóða, og öll endimörk jarðarinnar skulu sjá hjálpræði Guðs vors“. „Huggið, huggið lýð minn, segir Guð yðar. Hhghreystið Jerúsalem og boðið henni, að áþján hennar sé á enda“. Þannig flytur spámaðurinn kröftugan boðskap um huggun, um lausnarverk Guðs á jörðu, um komandi frelsara, um lausn þjóða, lausn hinna fjötruðu, lausn hinna kúguðu og undirokuðu, lausn frá synd, hræðslu og hugarvíli. — Sjálfur heimfærði meistarinn orð þessa spámanns til köllunar sinnar: ,,Andi drottins er yfir mér, af því að hann hefur smurt mig til að flytja nauð- stöddum gleðilegan boðskap, og sent mig til að græða þá, sem hafa sundur- marið hjarta, til að boða herteknum frelsi og fjötruðum lausn, til að boða náðarár drottins og hefndardag Guðs vors, til að hugga alla hrellda“. „Sjá þjón minn, sem eg leiði mér við hönd, minn útvalda, sem sál mín hefur þóknun á; eg legg anda minn yfir hann, hann mun boða þjóðunum rétt. Hann kallar ekki og hefur ekki háreysti og læt- ur ekki heyra raust sína á strætunum. Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sund- ur, og dapran hörkveik slökkur hann ekki; hann boðar réttinn með trúfesti. Hann daprast eigi og gefst eigi upp, unz hann fær komið inn rétti á jörðu, og fjarlægar landsálfur bíða eftir boðskap hans“. Þora nú hinir bölsýnu menn, er segja, að aldrei verði friður á jörðu, að mót- mæla og kasta frá sér þessum spádóms- orðum: ,,Hann daprast eigi og gefst eigi upp, unz hann fœr komið inn rétti á j'örðu“. Á þessum fyrirheitum grundvallað- ist, trú, von og huggun hinna heilögu manna fornaldarinnar, sem væntu „huggunar Israels“. Og „allt það, sem áður er ritað, er áður ritað oss til upp- fræðingar, til þess að vér fyrir þolgæði og huggun ritninganna héldum von vorri“. — Þetta hefur verið huggun og von kynslóðanna á liðnum öldum. Messíasarboðun hinna miklu spá- manna var forspil tímaskiptanna miklu — fæðingar mannkyns leiðtogans. En viðburðurinn sjálfur varð hin bjarta og skæra stjarna allra vitra manna og ein- lægra sálna, er vísað hefur veginn að jötunni lágu, en þar hafa kynslóðirnar lært lífsspekina, sem hefur opnað þeim guðsríkið og gefið órórlegum sálum mannanna þann frið, sem yfirstígur all- an skilning. Viðburðurinn sjálfur gaf kristnum mönnum jólahátíðina, er gerir albjart í húsum manna og sálum þeirra, jafnvel í dimmasta skammdegi vetrarmyrkurs og kulda. Dýrðaróður innblásnu skáld- anna hefur svo verið hið ómfagra eftir- spil jólaundursins. Þeir dýrðarsöngvar hafa ómað huggunarríkast í höllum og hreysum þjóðanna öld fram af öld, og svo er enn. Þjóðskáldið, Matthías Jochumsson, segir: Vér hyllum þig, ó blessað barn, þú brosir yfir dauðans hjarn, svo kuldinn ber oss kærleiks arð og klakinn snýst í aldingarð. Þú brosir, — jörð og himinn hlær, og hjarta hvert af gleði slær; þú talar, — böl og beiskja þver; þú bendir, — allir lúta þér. Þú blessar, — heift og hatur flýr; þú horfir, — syndin burtu snýr; þú kallar, — dauðinn kastar hjúp; Þú kennir, — lífsins skína djúp . . . Þú, herrans barn, sem boðar jól og birtir hverju strái sól: ó, gefðu mér þann gæfuhag, að geta fæðzt með þér í dag. Og þegar þjóðskáldið fagnar hækk- andi sól nýja ársins, sem framhaldi jóla- gleðinnar, þá ómar þar sami skæri tónn- inn: „I sannleik hvar sem sólin skín er sjálfur Guð að leita þín“. Hvað annað en eitthvað guðdómlegt getur framkallað af vörum manna dýrð- aróð, eins og Jólanótt Guðmundar Guð- mundssonar: Dýrðarnótt! — Þér hneigir veröld hljóð, heilagsanda návist kennir Ijóst, — andblær þinn er hjartnæmt helgi-ljóð, himinn opinn við þitt móður-brjóst, — blæjan stjörnum stráð stafar friði, náð, voldug himindjúpin, lög og láð. Stillt er sérhver sál samklið djúpum rótt, við þitt móðurmál, milda jólanótt Himnesk einning guðdóms-lífs og ljóss lægst frá dufti’ að yztu vetrarbraut, tengir allt í hljómi sigurhróss hátíðlegum við þitt mikla skaut. Sigur sannleikans, sólvor kærleikans, boðar öllu fæðing frelsarans! Fram í ljóssins flaum fegra lífið brýzt. Sjá, í dýrðardraum dauðinn sjálfur snýst! Drottins anda duftkorn sérhvert minst, dásamlegra undra safn, er fylt, — hljómbrot lægsta’ í okkar vitund inst, æðra hljómvalds leiftursprota’ er stilt. Sjáið sigur hans, sigur skaparans: duftið orðið íbúð kærleikans! Ó, sú undra dýrð elsku, máttar, vits, birtist bjartri skýrð blikrún stjörnu-glits! Syngið, syngið, — heyrið hjartaslög heilags Guðs í jólanætur blæ! Hringið, hringið, — ódauðleikans lög leiftra staðfest yfir mold og sæ! Mikli meistarinn, mannkyns leiðtoginn, Hann er kominn, kominn — frels- Honum syngi sætt I arinn! sérhver tunga á jörð, drótt af drottins ætt, dýrð og þakkargjörð! Hvergi ómar jólaboðskapurinn un- aðslegar en frá hörpu góðskáldanna og sálmaskáldanna, sem bezt ná háu tón- unum. Þar er guðmál flutt af hjörtum, sem jólaeldurinn hefur vermt og tendr- að í skærasta trúarljósið, og frá þeim heitu hjörtum nær fagnaðaróðurinn til hjartnanna: „Kirkjan ómar öll, býður hjálp og hlíf. Þessi klukkna köll boða ljós og líf. Heyrið málmsins mál. Lofið Guð, sem gaf. Og mín sjúka sál verður hljóma haf. Flutt er orðsins orð, þagna hamars högg. Yfir stormsins storð fellur drottins dögg. Lægir vonzku vind, slekkur beiskju bál. Teigar lífsins lind mannsins sjúka sál. Kveikt er ljós við Ijós, burt er sorans svið. Angar rós við rós, opnast himins hlið. Niður stjörnum stráð, Engill fram hjá fer. Drottins nægð og náð boðin alþjóð er. Guð er eilíf ást, engu hjarta er hætt. Ríkir eilíf ást, sérhvert böl skal bætt. Lofið guð, sem gaf, þakkið hjálp og hlíf. Tæmt er húmsins haf, allt er ljós og líf“. Svo hjartnæmt ljóð og fagra lofgerð lagði „Förumaðurinn“, skáldið frá Hvítadal, í munn allra förumanna, er létta sér brattgönguna með slíkum píla- grímssöngvum. Við tökum þá undir með öllum fagnaðarboðum aldanna og skær- um röddum barnanna, og syngjum af hjarta: Heims um ból, helg eru jól, og bjóð- um hver öðrum GLEÐILEG JÓL!

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.