Eining - 01.12.1953, Side 3

Eining - 01.12.1953, Side 3
EINING 3 Jól hjá afa og ömmu Stjáni litli sat á dúnmjúka, rósótta og fallega gólfteppinu og hafði um sig hrúgu af jólagjöfum. Allt í einu setti hann upp ólundarsvip, var niðurlútur og fór að kjökra. Hvað er þetta, sagði mamma hans, ertu að kjökra? Heldurðu að þú megir skæla á sjálfa jólanóttina? Hvað gengur eiginlega að þér? Hann Bjössi fékk fallegra, sagði Stjáni ólundarlega. Eg er nú alveg hissa! sagði mamma hans. Ertu ekki ánægður með allar fallegu jólagjafirnar þínar. Líttu nú bara á! Skoðaðu það sem þú hefur feng- ið! Á eg að segja þér sögu af jólunum hjá afa og ömmu, hvernig þau héldu jól og hvaða jólagjafir börnin þeirra fengu? Stjáni færði sig til mömmu sinnar og það gerðu hin börnin líka. Þau vildu gjarnan hlusta á söguna. Sagan var á þessa leið: Afi og amma áttu heima í sveit, lengst inni í afdal. Húsið þeirra var lágr og lítill torfbær. Veggirnir voru úr torfi og grjóti og torfgólf var einnig í baðstof- unni. Þakið var Iíka úr torfi og því hald- ið uppi af röftum, og milli raftanna sást alls staðar í torfið. Þar voru engin falleg húsgögn eins og hér hjá okkur, ekki píanó, engir stólar, ekki útvarp né sími, engin málverk á veggjunum, engir fallegir ljósahjálmar, ekki einu sinni falleg borð, heldur aðeins eitt lítið og ómálað timburborð við gaflinn í öðrum enda baðstofunnar, á milli rúma afa og ömmu. I baðstofunni voru engin rafmagns- ljós, heldur aðeins litlir olíulampar, og í eldhúsinu, sem allt var úr torfi, var engin eldavél, heldur aðeins hlóðir, sem gerðar voru úr steinum, á þá voru pott- arnir settir, þegar maturinn var eldað- ur, og eldiviðurinn var svörður eða sauðatað. Og afi og amma áttu ekki nein verulega falleg föt og skórnir þeirra voru ekki skínandi fægðir eins og okkar. Þeir voru heimagerðir úr sauðaskinn- um. Haldið þið, að þið munduð kunna við ykkur í þess konar baðstofu, úr torfi og allslausri, nema rúmunum til að sofa í og sitja á á daginn? Haldið þið ekki, að jólin hafi verið daufleg hjá afa og ömmu. En nú skulið þið heyra, hvernig afi og amma héldu jól. Nokkrar vikur fyrir jólin notaði amma allar stundir, sem hún var ekki við hin venjulegu heimilisstörf, til þess að kemba ull, spinna og prjóna. Og þegar afi kom inn frá gegningum, var búinn að sinna skepnunum, þá fór hann einnig að prjóna. Og hvað haldið þið nú, að þau hafi verið að prjóna? Þau voru að prjóna litla sokka, litla vettlinga og litla íleppa í skóna. ílepparnir og vettling- arnir voru oftast með fallegum, rauðum og bláum röndum, og stundum prjón- uðu þau líka litla hálstrefla. Og svo bjó amma til fallega krakkaskó úr sauð- skinni og bryddi þá með hvítu elti- skinni. Og hvað átti svo að gera við alla þessa sokka, vetlinga, íleppa og skó? Þetta var geymt til jólanna. Þetta voru jólagjafirnar, sem börnin fengu, en svo fengu þau líka ofurlítið fleira. Börnin hlusta hugfanginn, er ævintýra- skáldið góða, H. C. Andersen, segir þeim sögur. Rétt fyrir jólin gerði amma eins vel hreint í baðstofunni og hún frekast gat, og hið síðasta, sem hún gerði á aðfanga- daginn var að þvo börnunum um höf- uðið. — Stundum voru krakkarnir hálf óþæg og vildu ekki láta þvo sér um höf- uðið. Þá sagði amma þeim, að það kæmu fallegar gullnálar í hárið þeirra, þegar búið væri að þvo það, og þá vildu börnin láta þvo sér um höfuðið til þess að þau fengju gullnálar í hárið. Þessar gullnálar, sem amma talaði um, voru auðvitað sum hárin, sem glóðu eins og gull á Ijóshærðu glókollunum, þegar hárið var orðið vel hreint. Svo kom afi inn frá gegningum. — Hann hafði fataskipti og þvoði sér, og nú var öll fjölskyldan búin að þvo sér og klæðast beztu fötum sínum. Öll fjöl- skyldan settist svo á rúmin og afi tók fram stóra bók og las í henni um Jesú- barnið, sem fæddist á jólunum og var lagt í jötu í fjárhúsi, af því að móðir þess gat ekki fengið aðra gistingu. — Hann las einnig um vitringana, er sáu stóru fallegu stjörnuna, er vísaði þeim á fæðingarstað jólabarnsins. Og þar var líka sagt frá fjárhirðunum, sem heyrðu englasöng, og englarhir sögðu þeim hvar jólabarnið væri. Þegar afi var búinn að lesa, þá sungu þau, afi og amma jólasálm, og börnin reyndu að syngja líka. Þannig varð að fagna jólunum, áður en hugsað var um mat og jólagjafir, en svo kom líka fögn- uðurinn. Nú voru teknar fram allar jólagjafirnar, sokkarnir, skórnir, vettl- ingarnir og ílepparnir. Og svo fengu þau sitt kertið hvert, en kertastjakarnir voru ekki annað en lítil fjöl. I annan enda fjalarinnar var borað gat fyrir kertið, hinn endinn var tálgaður mjór og honum svo stungið inn í vegginn hjá rúmum barnanna. Börnin fengu ýmsar sætar kökur, lummur, pönnukökur, kleinur, laufabrauð, jólabrauð og fleira. Svo fengu þau hangikjöt, nokkuð af bringukolli, magáli, sneið af súrsuðum lundabagga og fleira þess háttar, einnig flatbrauð og pottbrauð og smjörsneið. Allt þetta fengu þau venjulega í ofur- lítinn kassa, sem hvert þeirra átti út af fyrir sig. Þetta gátu þau átt til margra daga og var það ekki lítill fengur, því að þau voru ekki ævinlega vel södd. Með sætabrauðinu fengu þau súkku- laði. Og hvernig haldið þið svo að hafi legið á börnunum hjá afa og ömmu, þegar þau voru búin að fá þessar jóla- gjafir, sem allar voru þó heima unnar, súkkulaði, kökurnar, allan matinn og kertin, og búið var að kveikja á þeim og koma þeim fyrir hjá rúmum barn- anna. Þá fannst börnunum torfbað- stofan vera orðin dýrðleg höll, þar var bjart og hlýtt, þeim fannst þau vera rík, og þau ljómuðu af fögnuði og gleði. Og ánægja barnanna gerðu afa og ömmu líka hamingjusöm. Hvernig haldið þið nú að þessum börnum hefði geðjast að því að vera hér í þessari stofu, sem er björt og skrautleg, og að fá allar gjafirnar, sem þið eruð búin að fá? Þeim hefði fundizt þau vera komin í aðra veröld, haldið líklega að þau væru komin til himna. Börnin í litlu torfbaðstofunni hjá afa og ömmu voru glöð og sæl af því að þau voru þakklát fyrir allt, sem þau fengu, og nú skulið þið kyssa mömmu og pabba fyrir allar jólagjafirnar, og þakka Guði fyrir blessuð jólin og miklu jólagjöfina hans — Jesúbarnið, sem kenndi mönnunum bezt að vera góðir við börnin og fara vel með þau. Og svo skulið þið vera glöð og kát og góð börn. GLEÐILEG JÓL!

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.