Eining - 01.12.1953, Page 4
4
EINING
Vícjd Vatíbwcf
félags- og æskulýðsheimili templara á Akureyri
Utdráttur úr rœðu Eiríks Sigurðssonar, yfirkennara.
Hann er formaSur hússtjórnar félagsheimilisins, og œSstitemplar
Umdœmisstúku NorSurlands.
Eitt af þeim skáldverkum, sem líta
má í Listasafni Einars Jónssonar, er
myndin ,,Sindur“. Hún er stórfenglegt
listaverk um smiðinn, sem kveikir fyrsta
lífsneista mannlegrar veru, og neist-
arnir sindra út um umhverfið. Og þessi
fyrsti lífsneisti kviknar í brjósti mann-
verunnar, sem verið er að skapa. —
Annars skal ekki lengra farið út í skýr-
ingu á þessu fagra listaverki, því að
sjálfsagt má finna margar skýringar á
því eins og öllum skáldskap.
En mér er þessi lífsneisti tákn þess
guðdómsneista, sem falinn er í hverri
mannssál. Hjá sumum er hann bjart-
ur og skær, hjá öðrum er hann alger-
lega falinn, af því að ekkert er að hon-
um hlúð. Það er vilji þess félagsskapar,
sem er að hefja starf sitt í þessu húsi
að hlúa að þessum neista hjá unga fólk-
inu í bænum, og fjarlægja ýmsar óholl-
ar venjur, er skyggja á hann. Og því
vilja þau taka sér í munn orð skáldsins
og templarans Guðmundar Magnússon-
ar og beina þeim ti! æsku bæjarins:
,,Því gæt þess vel, sem göfgast
hjá þér finnst
og glæddu vel þann neista, sem
liggur innst.
Tilgangur Góðtemplarareglunnar
með væntanlegri starfsemi sinni hér er
sá að hæta bæjarlífið, göfga skemmt-
analífið, gefa æskunni verkefni í tóm-
stundum hennar og forða henni frá af-
leiðingum áfengra drykkja. Hvernig
þetta tekst, verður reynslan ein að skera
úr . . .
Með styttingu vinnutímans í 8 stund-
ir, hafa tómstundir unga fólksins aukizt
að mun. Það er mikill vandi að verja
tómstundunum vel. Oft hefur það úr-
slitaáhrif um það, hvað úr mönnum
verður. Ekki eru þær öllum til blessun-
ar. Sumir verja þeim sér til aukins
þroska en aðrir til tjóns. Margir mæta
illa fyrirkallaðir til starfs á mánudög-
um, af því að helginni var varið við vín-
drykkju og svall.
Hjá frændþjóðum okkar á Norður-
löndum hafa verið gerðar ýmsar ráð-
stafanir bæði af félagssamtökum og því
opinbera til að veita unglingunum holla
tómstundaiðju og kenna þeim að verja
tómstundunum vel. Auk skólanna hafa
verið stofnsett tómstundaheimili með
fjölbreyttri starfsemi. Allt kostar þetta
bæði fé og fyrirhöfn, en þar er litið svo
á að þetta sé þjóðfélagsleg nauðsyn. —
Þetta hlutverk vill Reglan rækja hér á
Akureyri svo sem hún hefur getu til.
I Svíþjóð hafa farið fram ýmsar vís-
indalegar athuganir á áfengisvenjum.
Meðal annars hefur þar starfað nefnd,
sem birt hefur margt athyglisvert í
þessu efni. Einkum viðvíkjandi æsku-
lýðnum. Hún hefur meðal annars kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að unglingar
frá bindindisheimilum séu hlutfallslega
fleiri bindindismenn en frá öðrum heim-
ilum. Hún hefur einnig skýrt frá, að
hlutfallslega séu fleiri unglingar bind-
indissamir, sem séu í einhverjum menn-
ingarfélögum, íþróttafélögum og ýms-
um æskulýðsfélögum, en hinir. Þetta er
athyglisvert. Það sýnir, að því betri
menningarskilyrði, sem æskan fær, því
bindindissamari verður hún, og um leið
betri þjóðfélagsborgarar. Þetta meðal
annars bendir til, að bindindissamtökin
hér séu að stíga rétt spor með því starfi,
sem hér er að hefjast.
Skal nú skýrt frá í fáum orðum,
hvernig æskulýðsstarfið hér er fyrirhug-
að í vetur. Segja má, að það verði í
fjórum þáttum: Almennir fundir, handa-
vinnunámskeið, lestrarstofa og leik-
stofur.
Almennir fundir fyrir ungt fólk eru
fyrirhugaðir við og við með ávörpum,
kvikmyndum og söng. Væntanlega
verða þessir fundir í sambandi við aðra
æskulýðsstarfsemí.
í fyrra vetur hafði Reglan tvö út-
skurðarnámskeið. Þau voru vel sótt og
mjög vinsæl. Fyrirhugað er að halda
þeirri starfsemi áfram og bæta við fleiri
starfsgreinum. M. a. hefur verið rætt
um námsskeið í bastvinnu, og fleira
hefur komið til greina. Það mun bráð-
lega verða hér námskeið í þjóðdönsum
undir stjórn Hermanns Sigtryggssonar.
I lestrarstofunni verða ýmsar bækur,
blöð og tímarit. Hafa nokkur bókafor-
lög gefið safninu forlagsbækur sínar og
fleiri munu ókomnar. Má þar nefna
barnablaðið Æskuna, Þorstein M. Jóns-
son, Árna Bjarnason og Mál og menn-
ingu. M. a. hefur þessu bókasafni bor-
izt 35 bækur í bandi að gjöf frá Krist-
jáni S. Sigurðssyni, kirkjuverði. Flyt
eg öllum gefendum beztu þakkir. Þá
er til ofurlítill vísir að bindindisbóka-
safni. Æskilegt væri, ef hægt reyndist
að koma upp einhverjum lesflokkum í
sambandi við lestrarstofuna.
I leikstofunum verða ýms leiktæki til
dægradvalar t. d. borðtennis, knattborð,
bob ásamt smærri leikföngum. — Þar
verða einnig manntöfl. Er knattborðið
nýtt. Og þó að þessi skemmtilegi leikur
hafi oft verið misnotaður í þágu gróða-
fíknar, væntum við að hann verði til
ánægjuauka hér í heimilinu, enda verð-
ur hér ekki spilað um peninga. Þá er
borðtennis eins og kunnugt er mjög
skemtileg íþrótt.
Lestrarstofan og leikstofurnar verða
væntanlega opnar frá 5—7 og 8—10
vissa daga vikunnar. Sérstakir aðgöngu-
miðar gilda að þeim
Þá er í undirbúningi að koma upp
vasagólfi hér á lóðinni fyrir vestan. —
Ekki reyndist unnt að útvega áhöld til
þess í sumar, en væntanlega getur það
tekið til starfa næsta sumar. — Hefur
þetta reynzt vinsæl íþrótt í Reykjavík.
Eins og kunnugt er hefur þetta hús
verið aðalskemmtistaður bæjarins. Mikið
hefur verið um það spurt undanfarið,
hvort almennar skemmtanir hér munu