Eining - 01.12.1953, Page 5

Eining - 01.12.1953, Page 5
EINING 5 með öllu leggjast niður. En svo er ekki. Gerð verður tilraun með að halda hér uppi almennum skemmtunum, þar sem áfengið er útilokað. Reynslan verður að skera úr, hvernig það tekst. Um það skal engu spáð á þessu stigi málsins. En skemmtiklúbbur templara, sem starf- aði hér í fyrra við vaxandi vinsældir mun starfa áfram í vetur. Mikið er talað um áfengisnautn í sambandi við skemmtanalífið. Talið er, að aldrei hafi ungt fólk hér á landi hneigzt eins mikið til áfengisnautnar og þessi síðustu ár. Þetta er ískyggileg staðreynd. — Skemmtanalífið er sjúkt og hefur á sér ómenningarbrag. Það er mikilvægt menningarmál, ef hægt er að breyta skemmtanalífinu og fá fólkið til að skemmta sér án áfengis. — Það er þetta, sem reynt verður hér. Aður en ég lýk máli mínu, vil ég ekki láta hjá líða að flytja fyrri eigend- um hússins, þeim Erik Kondrup og Jóni Þorsteinssyni, beztu þakkir fyrir frá- bæra lipurð í öllum þessum samskipt- um. Svo og öðrum þeim, sem greitt hafa fyrir okkur við kaup á þessu húsi. Akureyri er vagga Góðtemplararegl- unnar á Islandi. Hér var fyrsta íslenzka góðtemplarastúkan, ísafold nr. 1, stofn- uð 10. jan. 1884. Eftir rétta þrjá mán- uði á Góðtemplarareglan 70 ára af- mæli. Ymis merk spor eru hér í bæn- um eftir þessa starfsemi í 70 ár, og öll hefur þessi starfsemi miðað að því að lyfta félagsmálum bæjarbúa á hærra stig. Templarar byggðu Samkomuhús bæjarins af miklum stórhug 1906 og síðar Skjaldborg 1925. Og nú hafa templarar keypt þetta stórhýsi og sýnt með því, að enn ríkir framfarahugur og bjartsýni innan Reglunnar. — Enn vill Reglan hafa sem víðtækust menningar- leg áhrif á bæjarlífið. Og sannarlega eru miklir möguleikar hér fyrir hendi. íslenzk æska í dag hefur fengið betri menntun og frjálslegra uppeldi en eldri kynslóðir. Hún hefur alizt upp við til- tölulega góð efnaleg skilyrði En hún hefur alizt upp á umbrotatímum, sem siðvenjur tveggja heimsstyrjalda hafa mótað. — Það er hennar veikleiki. — Efniviður hennar er góður, — já, mjög góður. Ef við aðeins erum færir um að skapa henni venjur, sem lyfta henni til andlegs þroska, en draga hug hennar frá skaðlegum nautnum. Þá mun hún eflaust reynast vel fær um að taka við stjórn landsins af þeirri kynslóð, sem nú er miðaldra. — Og það er skylda þeirra fullorðnu að vinna að því að svo verði. Hús þetta, sem hingað til hefur heit- ið Hótel Norðurland, skal frá þessum degi heita: Varðborg, félags- og cssku- lý&sheimili templara. — í dag hefur Góðtemplarareglan tekið sér hér varð- stöðu. Hér vill hún standa á verði um hollar lífsvenjur æskunnar í bænum og heilbrigt skemmtanalíf. Sennilega verð- ur stundum stormasamt á þessari varð- stöðu, en hjá því verður ekki komizt. r————————————— ÆSKULÝÐSÞÁTTUR Æskumönnum er tamara árce&i en gœtni, en kapp er bezt me& forsjá, segir fornt heilrcsSi. Ekki er allt sem sýnist. Sá er ekki alltaf beztur vinur og farscslastur félagi, sem brosir blíðast. ,,Sá er vinur, sem í raun reynist“. ,,Oft er flagð undir fögru skinni og dyggð undir dökkum hárum“. ,,Eins og gullhringur í svínstrýni, svo er frí& kona, sem enga siSprý&i kann“. Orðskv. Gullið þolir eldraunina, en óekta gyllingin og útvortis skrautið svíkur“. Gerfisnyrtingin kemur helzt í sta&inn fyrir hina sönnu og djúpstœ&u fegurð, prjál í sta&inn fyrir manndóm. Sérhver ung stúlka, sem er prúð, lát- laus og elskuleg, þrifalega og snotur- lega búin, mun bera sigur af hólmi í samkeppni . við . sérhverja . skartgefna tildurdrós. Skart y&ar sé ekki ytra skart, me& því . . . a& hengja á sig gullskraut e&a klœ&ast vi&hafnarbúningi, heldur sé þa& hinn huldi maður hjartans í óforgengi- legum búningi hógvœrs og kyrrláts anda, sem dýrmcetur er í augum Gu&s. Þannig skreyttu sig forðum hinar heilögu konur. 1. Péturs bréf. Að ver&a betri, réttlátari, sterkari, í þessu er öll framför falin, sem er eftir- sóknarverð. Wagner — Manndáð. Gott mannorð er dýrmcetara en mikill au&ur, vinsceld er betri en silfur og gull. Hygginn þrcell ver&ur drotnari yfir spilltum syni. Sá, sem ávítar mann, mun á síðan ö&last meiri hylli heldur en tungumjúk- ur smja&rari. Sá, sem dylur yfirsjónir sínar, ver&ur ekki lángefinn. Sá, sem breiðir yfir bresti, eflir kcer- leika. Orðskv. Drengir heita vaskir menn og batn- andi. Snorri- Amerískur Rhodes-stúdent í Oxford var spur&ur um þa&, hvað honum þœtti merkilegast í háskólalífi Englendinga. Hann svara&i: ,,Það þykir mér merki- legast, a& hér eru þrjú þúsund ungir menn, er hver og einn kysi heldur að tapa leik en leika ódrengilega“. G. F. Islendingar. Ef börn og unglingar geta lcert a& sýna slíkan drengskap í leik, hvar sem er og hvernig sem á stendur, þá eru mestar líkur til a& drengskapurinn prý&i þá einnig, þegar út í alvöru lífsins kem- ur, hvort heldur er í þjónustu, embcett- isstörfum, vi&skiptum, við algenga vinnu og í allri sambúð við menn. Aðeins slíkum ceskumönnum er trú- andi fyrir dýrmcetum arfi fe&ranna. — Allar umbótahugsjónir hljóta ein- hvern mótvind. — En það er ósk mín ídag, að sú starfsemi, sem hér fer fram megi verða bænum okkar til heilla og blessunar, og Góðtemplarareglunni til gæfu. — Eins og neistarnir hrukku víða undan hamri smiðsins á myndinni ,,Sindur“, eins óska ég þess fyrir hönd þessarar stofnunar, að héðan úr Varð- borg megi berast neistar frá starfi Regl- unnar út um þennan bæ, sem fela í sér heilbrigða manngildishugsjón hennar. — Guð blessi Varðborg, félags- og æskulýðsheimili templara og það starf, sem hér verður unnið. — Guð blessi bæinn okkar, Akureyri, í nútíð og fram- tíð. — Eiríkur Sigur&sson. Ræðiuneim Abraham Lincoln á að hafa sagt: „Mér geðjast lítt að kemdum og stroknum ræðu- mönnum. Þegar eg hlusta á ræðumann, vil eg helzt að hann hafizt að, eins og hann væri að berja frá sér bíflugnasverm á alla vegu“. Óvíst er að öllum íslendingum geðjist slíkt handapat ræðumanna. Hálfa vitið Margt er þjó&a starf og strit. Stundum reynslan dýrt er keypt. Heimsins barna hálfa vit heilli veröld getur steypt. Lávaxin mikilmeimi Hinn frægi herforingi Englendinga, Nelson, var aðeins 5 fet og 4 þumlung- ar á hæð, sömuleiðis Beethoven. — En heimsspekingurinn Immanuel Kant og skáldið John Keats voru báðir aðeins 5 fet. Heilagur Francis Xavier var ekki nema 4 fet og 6 þumlungar. Og þá er það alkunna að Napóleon mikli var mjög lágvaxinn, þótt honum hlotnaðist nafnbótin mikli Ef allt hernaðarbrölt hans og allt það blóð, sem rann hans vegna, hefur átt að bæta honum upp það, er á vantaði líkamshæðina, þá voru það dýrir þuml- ungar, sem lífinu hafði láðzt að bæta við hæð hans. Heimurinn má vara sig á lágvöxnum mönnum. Þeir tylla sér stundum full- mikið á tá.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.