Eining - 01.12.1953, Síða 10

Eining - 01.12.1953, Síða 10
10 EINING Aflmeiri en vetnissprengjan Eftir Eddie Cantor. Sennilega þarf ekki að kynna yngri kyn- slóðinni höfund eftirfarandi greinarkorns. Hann er einn hinna björtu stjarna í heimi leiklistarinnar, sem hefur ljómað árum saman á Breiðgötu New York borgar, í Hollywood, í útvarpi og sjónvarpi. Helzt mundum við kalla hann gamanleikara, en hann hrífur menn jafnt, er hann flytur mál sitt á prenti og í ræðu. Hann er allra manna fyrstur til hjálpar nauðstöddum, og hefur safnað kvart milljarð dollara til góðgerðastarfsemi, segir Reader’s Digest, er flytur í septemberheftinu 1953 eftirfar- andi grein hans: „Útslitnasta orðið í Bandaríkjunum er öryggi. Fjárhagslegt öryggi, sálfræði- légt öryggi, og þjóðar öryggi. Það er orðið orð, sem skelfir. Aðeins að heyra það rekur okkur æðisgengin út í öryggis- leysi, út í óskaplega kappleit að nýjum ráðum til þess að höndla lykil hamingj- unnar. Hvern dag hrópa yfirskriftir dagblað- anna um ný öryggistæki: jet-flugvél, sjálfstýrð flugskeyti, atómsprengjuna og hið enn skæðara eyðileggingartæki, vetnissprengjuna. En máttugari en allt þetta saman- lagt er kraftur bænarinnar. Hann fram- kallar ef til vill ekki stærstu yfirskrift- irnar í heimsblöðunum, en hann er samt hið einasta fullkomna öryggi og leiðar- ljós mannkynsins. Mér hefur ávallt verið kunnugt um kraft bænarinnar, allt frá þeim árum, er eg sem barn átti heima í neðri austur- hluta New York borgar og rétttrúuð amma mín bað þess, að þessi litli hor- aði og úteygði snáði fengi að tóra, þótt hann skorti nægilegt fæði, nægileg föt, hreint loft og heilsuvernd. Eg er sann- færður um, að sigur fyrstu ára lífs- baráttu minnar var unnin fyrir um- hyggju Esterar ömmu minnar, og eina vopnið, sem hún hafði gegn fátæktinni, var bænin. I heimi leiklistarinnar er talað um mig sem hinn ,,einstaka“, — einþætt- ung. Þetta er ekki rétt. Eg hef aldrei verið einn. Bænin hefur verið félagi og förunautur minn. Við höfðum leiðzt hönd í hönd hvert eitt fótmál vegferð- arinnar. Með árunum kom svo öryggið í öllum myndum — frægð, fjölskylda, álit og peningar. Mér er minnisstæður morguninn, er innrásin var gerð í Normandí 1944. Á leið minni frá hótelinu í New York til æfingar var eg næstum troðinn undir af mannfjöldanum, sem streymdi til St. Patrik’s Cathedral (kirkju hins heilaga Patriks). Einhver ómótstæðileg áhrif rifu mig með straumnum. 1 kirkjunni voru mörg hundruð, sem ekki tilheyrðu hinum kaþólska söfnuði. Þeim var ekki kunnugt messuformið, en undu sér allir vel í húsi drottins. Við báðum, allir sem einn maður, og þrátt fyrir óvissuna framundan, kom undursamleg ró og friður yfir hinn biðjandi söfnuð. Við vissum, að fram undan var ægilegur hildarleikur, en friður og öryggi gagn- tók okkur, og við vorum viss um sigur- inn. Hvenær sem eg minnist þessa morg- uns, verður mér hugsað til Föður Peyton í Los Angeles. Það var hann, sem bjó til orðtakið: ,,Sú fjölskylda, sem biður saman, unir saman (Family that prays together stays together!). (Betri þýð- Fallbyssum og byssustingjum otað að friðarenglinum. ing á þessum orðum væri: sú fjölskylda, er sameinast í bæn, sundrast ekki. En hin þýðingin er þó notuð af ásettu ráði. Þýðandinn). Þetta varð uppistaða hins ágæta útvarpsþáttar: ,,fjölskyldu-leik- húsið“. Það yrði einnig góð uppistaða í lífi allrar þjóðarinnar, þetta: ,,Sam- einuð þjóð í bæn, er í sannleika sam- einuð. Hún sundrast ekki“. Síðasta sönnun mín um kraft bæn- arinnar, kom yfir mig í september s. 1., er eg varð að leggjast í sjúkrahús, vegna hjartabilunar. Um stund voru læknarnir vondaufir, og eg var einnig efabland- inn. En þá tóku bréfin og símtölin að streyma til mín. I Pennsylvaníu gáfu 143 menn, konur og karlar, blóð í blóð- banka Rauðakrossins, sem fórn mér til fulltingis. Mér fannst sem hver dropi þess blóðs yfirfærast til styrktar mínu bilaða hjarta. Prestur í Ohio símaði, að beðið væri fyrir mér og kertaljós hefðu verið tendruð mér til heilla. Fjölskylda í Boston gaf peninga til háskóla sem áheit vegna mín. Allar voru orðsending- amar um fyrirbænir. Þúsundum saman skrifuðu menn eða símuðu, og lokaorð þeirra allra var: ,,Við biðjum fyrir þér, Eddie“. Hvert skipti er ný orðsending barst mér, streymdi til mín nýr kraftur. Ótt- inn hvarf. Oryggistilfinningin kom aftur. Eg var sannfærður um batann. Kraftur bænarinnar var að verki. Bænalífið er hið eina fullkomna ör- yggi. Eisenhower forseti, maður þjálf- aður í hernaði, er fyrstur manna til þess að kveða upp úr á meðal okkar um þetta, að sameinuð þjóð í bænaiðju, mundi verða aðnjótandi þess yfirgnæf- andi kraftar og öryggis, sem engin eyði- leggingartæki, gerð af mannahöndum, fengju yfirbugað. Hættið að fálma eftir svikulu öryggi. Hið óbrigðula öryggi verður okkar, ef við aðeins göngum hvert fótmál í bænar- hug“. Þannig er vitnisburður þessa merka gamanleikara. Ungmenni safna mynd- um af frægum leikurum, en þenna vitnisburð gamanleikarans ættu æsku- menn, og hinir eldri einnig, að gaum- gæfa á vegferð sinni. Fávíslegt áfengisnöldur í erlendu riti, sem heitir The Inter- national Record, og safnar upplýsing- um um bindindis- og áfengismál um allan heim, segir í síðasta blaði þess: „Síðastliðin fimm ár hefur áfengis- neyzla á íslandi minkað úr 2 lítrum á mann í 1,39. (Hér er átt við 100% áfengi). Þannig er þetta norðlæga ey- land orðið bindindissamasta land álf- unnar“. Þetta er sem betur fer satt. Það er minna drukkið á íslandi en hjá nokk- urri annarri menningarþjóð, sem verzl- ar með áfengi. — Þetta er samkvæmt skýrslu Áfengisverzlunar ríkisins. Svo eru einstöku menn að nöldra og jagast á því seint og snemma, hve ferða- menn eigi erfitt með að ná sér hér í ,,hressingu“. Þá er látið skína í það, að okkur skorti einhverja „áfengismenn- ingu“ annarra þjóða. Vilja ekki þeir góðu hálsar, sem seint og snemma staglast á þessu, vera svo góðir og stinga höfðinu út um gluggann og litast um hjá öðrum þjóðum. — Það er argasta slúður, blekking og ósann- indi, að nokkur þjóð eigi til það, sem kallast gæti áfengis-,,menning“. Þeir sem stöðugt halda slíku fram, gera ekki annað en auglýsa fáfræði sína í þessum efnum og smásálarlega keypa óþægra krakka. Þá ættu menn ekki að gleyma, hversu ægilegum slysum um allan heim þessar ,,hresingar“ valda oft, sem áfengisrellu- skjóðurnar stöðugt nöldra um. Það er óskiljanlegt ábyrgðarleysi að vilja greiða götu áfengisins til manna.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.