Eining - 01.12.1953, Page 11

Eining - 01.12.1953, Page 11
EINING 11 Upphaf og aflgjafi bindindishreyfingarinnar „Heiðra föður þinn og móður þína, svo að þú verðir langlífur í því landi, sem drottinn, Guð þinn, gefur þér“. Þannig er hið fagra boðorð fyrirheits- ins. Sá maður er á ógæfubraut og úr- kynjun ofurseldur, sem gleymir uppruna sínum og afrækir foreldra sína og fósturjörð. Fagnaðarerindi Jesú Krists gaf mann- inum trúna á Guð sem kærleiksríkan föður allra manna, af öllum þjóðum, litarháttum og tungum, trúna á sam- félag heilagra og bræðralag allra manna,, trúna á einstaklinginn, eilíft gildi hans og þroskahæfileika, trúna á mikinn tilgang lífsins og eilíft líf. Þessi fagnaðarríka og máttuga lífs- skoðun og trú er móðir allra mannrétt- inda, siðbóta, framfara og menningar í hinum kristna mannheimi, og bindindis- hreyfingin er aðeins eitt þroskavænlegt afkvæmi hennar. Hún er móðir þess mannúðarverks, eins og annarra líknar- starfa, frelsishugsjóna og kærleiks- verka. ,,Til frelsis frelsaði Kristur yður“, var gleðiboðskapur postulans. Eg má ekki láta neitt fá vald yfir mér“, segir þessi sami mikli postuli allra þjóða. —— Alfrjáls skal maðurinn vera, herra, drottnari, en ekki þræll. Frjáls í frjáls- mannlegu stjórnskipulagi, frjáls og rétt- hár til allra mannréttinda, og frjáls og Ieystur frá öllum nautnum og venjum, er undirokar anda mannsins og gerir manninn að þræli skaðnautnanna og syndsamlegra lífsvenja. Bindindishreyfingin stígur vissulega inn á braut hnignunar og ófarsældar, ef hún glejmiir hinu andlega foreldri sínu og afrækir hugsjón hugsjónanna, afl- gjafann mesta, innspírerandi kraftinn, er kveikir áhugaeldinn og trúna, sem er hið eina afl, er brotið getur á bak aftur alla mótspyrnu, yfirstígið hvers konar erfiðleika, þolað aðkast og níð, og geng- ið sigurglöð gegnum ofsóknir og þreng- ingar. Hin kristna trú er siguraflið, sem hefur sigrað heiminnn. Bindindismenn mega aldrei gleyma því, að bindindið er aðeins ein greinin á hinu ávaxtaríka tré andans: „Ávöxtur andans er: kærleiki, gleði, friður, lang- lyndi, gæzka, góðvild, trúmennska, hóg- værð, bindindi“. í þessari dásamlegu upptalningu höfuðdyggða kristinna manna er bind- indið talið síðast. Samkvæmt þessu, og samkvæmt reynslu kynslóðanna, verð- ur maðurinn að vera siðferðilega þrosk- aður til þess að geta verið góður bind- indismaður í orðsins sönnustu og víð- tækustu merkingu, ekki aðeins bind- indismaður á áfenga drykki, heldur í öllu, vera alfrjáls og hafa fullkomið vald yfir sér. Vonlaust er að nokkur þjóð geti orðið bindindissöm, nema hún sé siðferðilega sterk, en siðferðisþrosk- inn er fæddur og nærður af hinni háleit- ustu hugsjón mannkynsins, trúnni á Guð og eilíft líf. „Mannapinn horfði svo upp í himininn, að hárin hættu að vaxa á enni hans“, segir hið mikla ljóðskáld okkar Islendinga, Einar Benediktsson. Það er þannig hinn himinsækni andi, sem lyftir jarðarbarninu upp frá dýrs- eðlinu og gerir hann hluttakandi í guð- legu eðli. Himnastigi mannanna hefur alltaf verið þrá þeirra eftir Guði, lífs- löngunin og „ódáinsvonin“. En nú er hægt að benda á, að á með- al okkar hafa verið snjallir menn, mátt- ugir brautryðjendur í bindindisstarfi, félags- og menningarmálum, sem hefur orðið ágengt, þótt þeir hafi talið óþarft að styðjast við kristinna manna trú, sem hinn sannasta og raunverulegasta afl- gjafa. En þessir menn gleyma því ævin- lega, að þeir eru sjálfir aldir upp í kristnu þjóðfélagi, eru vaxnir upp úr merkilegri andlegri og kirkjulegri menn- ingu, hafa átt trúaða foreldra og drukk- ið í sig sem börn og unglingar ósjálfrátt og óafvitandi hinn kristilega lífsanda og tileinkað sér það siðgæði, sem vissulega er sprottið upphaflega af guðstrú og kristindómi. Þessir* sömu menn hafa hvorki sýnt né sannað, að hægt sé að ala upp næstu kynslóðir, svo að vel fari, án allrar guðstrúar og hins kristilega siðgæðis. I þessu hafa þjóðirnar þegar rekið sig á hörmulega. Glæpafaraldur, bindindisleysi, alls konar óregla og sið- ferðisleg lömun hefur uppskeran orðið af fráhvarfi þjóðanna frá hinni kristi- legu trú og lífsskoðun. Og bindindis- hreyfingin hefur uppskorið hér og þar dáðleysi og vesaldóm af þessu fráhvarfi frá móðurfaðminum, hinu andlega for- eldri sínu. Það hafa verið menn trúarinnar, sem fyrr og síðar hafa ráðizt gegn drykkju- skaparbölinu og hafizt handa til lausn- ar þjáðum meðbræðrum sínum. Þetta hefur átt sér stað um öll helztu trúar- brögð heimsins. í löndum kristinna manna voru það fyrst og fremst kirkj- unnarmenn, trúarsterkir menn, sem hófu bindindisstarfið. Þeir trúðu á mik- inn tilgang lífsins, og þess vegna brann áhugaeldurinn í brjóstum þeirra. Þeir trúðu, ekki aðeins á tímanlega, heldur og eilífa glötun drykkjumannsins, og þess vegna var það þeim lífsspursmál að bjarga honum, og leysa um leið nán- ustu vandamenn hans frá hörmungum áfengisbölsins. Þessi trú brautryðjenda bindindishreyfingarinnar kann að hafa verið oftrú, hvað áhrærir eilífa glötun, drykkjumanns, en hvað um það, trú þeirra var máttug, innspírerandi og frels- andi. Ekkert annað hefði dugað til þess að brjóta fyrstu varnir ofurvaldsins, sem ríkti í skjóli vanþekkingarinnar, undir- okunar, afvegaleidds almenningsálits og allsráðandi peningavalds. — Þessir brautryðjendur, þessir menn andans og trúarinnar, verða ævinlega í sögu bind- indishreyfingarinnar hetjurnar, sem „fyrst hafa strítt yfir veglaust og grýtt“, og ef við gleymum þeim, svíkjumst um að Iyfta merkinu í anda þeirra og trú, þá erum við að tapa, þá erum við að verða ættlerar, þá erum við að kasta fyrir borð óskasteininum, er vísar bezt veginn um völundarhús mannlegrar lífs- baráttu, vísar veginn til sigurs. Það voru trúaðir menn, sem flúðu ófrelsi og andlega kúgun vestur yfir Atlantshaf og hófu landnám í nýjum heimi, til þess að geta dýrkað Guð sinn samkvæmt sannfæringu sinni og notið frelsis og mannréttinda. Það voru þessir menn, sem gerðust brautryðjendur í frelsisbaráttu þjóðanna, og þeir sömdu sín lög og sína stjórnarskrá með hlið- sjón af trúnni á Guð og bræðralag mannanna. Upp úr þessum jarðvegi óx einmitt bindindishreyfingin, sem einnig er frelsishreyfing, og nú í dag eru það söfnuðir trúaðra í Ameríku, sem bera fram bindindishugsjónina af miklum áhuga og krafti. Þeir eru lífið og sálin í allri bindindisbaráttu þjóðarinnar, öll- um bindindissamtökunum, bæði á veg- um safnaðanna og utan þeirra. Þeir miklu sigrar, sem unnizt hafa þar í landi á síðari árum í sambandi við áfengis- löggjöf og héraðabönn á mörgum stöð- um, eru þessu trúaða fólki fyrst og fremst að þakka. Þar hefur bindindis- starfsemin ekki ríkisstyrki. Söfnuðirnir leggja sjálfir til að allt fjármagn til starfsins, sem er ekki lítið, og eiga þar að etja við svo ægilegt áfengisauðmagn, sem varið getur 100 milljónum dollara á ári til áfengisauglýsinga í stærstu blöðum og tímaritum þjóðarinnar, í út- varpi, í bókmenntum, kvikmyndastarf- semi, og með öllu móti fyrir augum al- þjóðar í borgum og byggðum, meðfram þjóðvegum og hvar sem því verður við- komið. Þessi bindindisstarfsemi kristinna safnaða í Bandaríkjunum, viðheldur og eflir þróttmikla fræðslustarfsemi, gefur út mikið af bókum, blöðum og ritum til framdráttar áhugamáli sínu. Hvergi í heiminum er áfengisauðmagnið jafn- voldugt og í Bandaríkjunum, og þýðir því lítt að sækja fram gegn því í hálf- velgju og með hálfum hug. Þjónar kirkjunnar, jafnt á Islandi sem í hinum Norðurlöndunum, verða að

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.