Austurland - 14.03.1985, Page 1
Austurland
HJÓLASTILLINGAR
Benni & Svenni
© 6399 & 6499
35. árgangur.
Neskaupstað, 14. mars 1985.
11. tölublað.
í uppnámi.
Ljósm. B. S.
Skák:
Svæðismót Austurlands
'Um sl. helgi fór fram í Nes-
kaupstað svæðismót Austur-
lands í skák. Keppendur voru
16 frá Stöðvarfirði, Fáskrúðs-
firði, Eskifirði, Egilsstöðum og
Neskaupstað. Skákmeistari
Austurlands 1985 varð Hólm-
grímur Heiðreksson, sem hlaut
4V4 vinning af 5 mögulegum.
Mótið var jafnt og margar
skemmtilegar skákir tefldar.
Efstu menn í mótinu voru:
1. Hólmgrímur Heiðreksson
Neskaupstað 4xh vinn.
2. Magnús Valgeirsson Fá-
skrúðsfirði 3V6 vinn.
3. Þorsteinn Skúlason Nes-
kaupstað 3V4 vinn.
4. Viðar Jónsson Stöðvarfirði
3Vi vinn.
E. M. S.
íþungum þönkum.
Ljósm. B. S.
Sjómannaverkfalli lokið
Nýir kjarasamningar sjó-
manna voru gerðir um sl.helgi
og lauk þá sjómannaverkfalli,
sem staðið hafði í þrjár vikur.
Samningarnir, sem sagt var
frá í síðasta blaði,voru felldir
víðast hvar, en nýir samningar
voru síðan gerðir og samþykktir
mjög víða fyrir sl. helgi, enda
var þá verkfallið í raun farið út
um þúfur á Suðurnesjum og
víðar, þar sem undanþágur voru
veittar til veiða, meðan beðið
var eftir atkvæðagreiðslu.
Á Austfjörðum voru samn-
ingarnir felldir í byrjun nema á
Reyðarfirði og Stöðvarfirði. Al-
þýðusamband Austurlands
gekkst þá fyrir sérsamningum
við Útvegsmannafélag Aust-
fjarða og leystist deilan fyrir
milligöngu ríkissáttasemjara sl.
laugardag. Samningarnir voru
alls staðar samþykktir með
miklum meirihluta atkvæða og
skipin fóru að tínast út strax á
sunnudag.
Aðalkjarabót nýju samning-
anna umfram það, sem áður
hafði náðst fram, er það, að 2%
lækkun kostnaðarhlutdeildar í
útgerðarkostnaði framhjá
skiptum kemur til framkævmda
strax og hlífðarfatapeningar
hækka í kr. 750 úr 540. Aust-
fjarðasamningarnir fela í sér
frekari hækkun hlífðarfatapen-
inga eða í kr. 900 og lengingu á
uppsagnarfresti úr einni viku í
tvær auk fleiri smærri atriða.
Allir fagna því, að samningar
hafa tekist og er þess að vænta,
að innan skamms verði atvinna
komin í eðlilegt horf, en at-
vinnuleysi var orðið verulegt í
bæjum og kauptúnum á Aust-
fjörðum. B. S.
Neskaupstaður:
Fjárhagsáætlanir bæjarsjóðs
og stofnana hans samþykktar
einróma í bæjarstjórn
Á fundi í bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar 5. mars sl. voru fjár-
hagsáætlanir bæjarsjóðs og
bæjarfyrirtækja til endanlegrar
afgreiðslu og voru samþykktar
samhljóða af öllum bæjarfull-
trúum, sem fundinn sátu.
Til að fræða lesendur nokkuð
um fyrirhugaðar framkvæmdir
og stöðu bæjarsjóðs náði
AUSTURLAND tali af Ásgeiri
Magnússyni, bæjarstjóra í Nes-
kaupstað.
□ Hverjar eru helstu niður-
stöðutölur fjárhagsáœtlunar
bœjarsjóðs?
■ Heildarniðurstöðurtölur
áætlunarinnar eru kr. 62.316
þús. Á rekstraráætlun eru gjöld
áætluð kr. 48.304 þús. og tekjur
kr. 59.316 þús. Það þýðir, að
tekjur umfram rekstrargjöld eru
áætlaðar kr. 11.012 þús. Gjald-
færð fjárfesting er áætluð kr.
3.995 þús. og eignfærð fjárfest-
ing kr. 3.147 þús. en heildar-
mismunur tekna og gjalda kr.
6.870 þús.
□ Hvað hœkka tekjuliðir
mikið frá fyrra ári?
■ Útsvör er áætluð kr. 28.325
þús. og hækka frá áætlun fyrra
árs um 25.5% en íbúum hefur
reyndar fjölgað um 2.5%. Að-
stöðugjöld eru áætluð kr. 6.971
þús. og hækka um 30% og fast-
eignagjöld eru áætluð kr. 7.295
þús. og hækka um tæp 30%.
□ En hvað um framkvœmdir
og helstu gjaldaliði?
■ Almannatryggingar og fé-
lagshjálp hækka mest eða úr
14% af heildarútgjöldum í 17%.
Þar munar m. a. miklu, að verið
er að opna nýja deild á dagheim-
ilinu, en eftirspurn eftir plássum
þar hefur verið miklu meiri nú
en oftast áður.
Æskulýðs- og íþróttamál taka
8.2% af heildargjöldum. Þar
verður unnið áfram að uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja, t. d.
skíðaaðstöðunnar við
Oddsskarð, en áætlað er að full-
gera skíðaskálann þar fyrir
haustið. Hlutur Neskaupstaðar
í þeim framkvæmdum er áætl-
aður kr. 537 þús. Einnig verður
unnið við anddyri íþróttahúss-
ins o. fl.
Fræðslumálin taka sinn
skammt, en til þeirra fara kr.
11.944 þús. eða 19.1% af heild-
arútgjöldum. Unnið verður
áfram við nýbyggingu Fram-
haldsskólans s. s. að frágangi á
anddyri og einnig við umhverfi
hans og keyptur ýmiss stofnbún-
aður. Við hefðum gjarnan viljað
setja meira fé í tækjakaup, ekki
síst í Nesskóla. Unnið verður að
viðhaldi skólahúsanna, en þar
er um að ræða aðkallandi verk-
efni.
Unnið er að endurnýjun á
sturtuklefum í sundlaugarhús-
inu og standa vonir til, að því
verki verði lokið það tímanlega,
að hægt verði að opna sundlaug-
ina á venjulegum tíma í vor.
í gatnagerðarframkvæmdum
komum við til með að fara okk-
ur hægar en oftast áður. Hringn-
um í útbænum verður þó lokað
og lagt malbik á Nesgötu og upp
á Mýrargötu og framhald verður
á yfirlagningu Strandgötu og
Hafnargötu. En það er ekki
endanlega búið að ganga frá
áætlun um gatnagerðarfram-
kvæmdir á komandi sumri í
smærri atriðum.
□ Hvað viltu segja um fjár-
hagsáœtlunina almennt?
Sl. laugardag tryggði 2. ald-
ursflokkur Þróttar sér íslands-
meistaratitilinn í blaki. Fór þá
fram leikur við HK úr Kópavogi
í Neskaupstað og sigraði Þrótt-
arliðið þessa hættulegustu and-
stæðinga sína í jöfnum og þræl-
spennandi leik.
Lið Þróttar er afar vel að þess-
um sigri komið og hefur unnið
alla sína leiki í vetur. Reyndar
er það undravert, hve góðum ár-
angri Þróttarar ná í þessari
íþrótt og er ljóst, að ýmis félög
fyrir sunnan og norðan gætu
margt lært af því góða uppbygg-
ingarstarfi, sem innt er af hendi
í Neskaupstað á þessu sviði.
Þeir Ólafur Sigurðsson og
Ásgeir Magnússon.
■ Einkenni þessarar fjár-
hagsáætlunar er fyrst og fremst
aðhald. Skuldir bæjarsjóðs eru
orðnar mjög þungar vegna
mikilla framkvæmda á undan-
förnum árum. Nægir þar að
nefna t. d. byggingu Framhalds-
skólans, byggingu íbúða fyrir
aldraða og miklar framkvæmdir
í gatnagerð. Við höfum þannig
ágæta stöðu nú til að andæfa
svolítið. Lántökur verða í lág-
marki og meira verður unnið að
viðhaldi mannvirkja en að nýj-
um framkvæmdum. Við hefðum
gjarnan viljað, að við gætum
Framh. á 2. síðu.
Grímur Magnússon, forystu-
menn blakdeildar Þróttar, eiga
heiður skilið fyrir störf sín.
Sl. laugardag fór einnig fram
í Neskaupstað leikur í 2. deild
fslandsmótsins í blaki og áttust
þar einnig við lið Þróttar og HK.
Þróttur fór með sigur af hólmi
og er nú nokkuð víst, að Þrótt-
arliðið verður í 3. sæti í deild-
inni, en keppni þar er ekki að
fullu lokið. S. G.
Félagsvist AB
er í kvöld í Egilsbúð
og hefst kl. 2045
Alþýðubandalagið
Glœsilegur árangur:
s
Þróttur Islandsmeistari
í 2. flokki í blaki