Austurland - 18.07.1985, Page 1
Austurland
Viku - Fœreyjarf sröir
Brottför 25.7. & 22.8.
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
35. árgangur.
Neskaupstað, 18. júlí 1985.
24. tölublað.
VigdísforsetimeðVopnfirðingumað HótelTanga. Ljósm. G. G. Ó.
Forsetinn í Neskaupstað
í dag 18. júlí kemur forseti íslands frú Vigdís Finnbogadótt-
ir í opinbera heimsókn til Neskaupstaðar.
Dagskrá móttökunnar verður eftirfarandi:
Kl. 1530 Forseti og fylgdarlið koma með varðskipi, sem
leggst að hafnargarðinum. Þar mun bæjarstjórn
Neskaupstaðar taka á móti forseta íslands.
Gengið verður upp í skrúðgarð, þar sem bæjarstjóri
flytur stutt ávarp, Skólalúðrasveit Neskaupstaðar
leikur og forsetinn gróðursetur tré.
Því næst verður Fjórðungssjúkrahúsið og Breiða-
blik heimsótt og þar drukkið kaffi. Að því loknu
verður ekið um bæinn og komið við í saltfiskverkun
Síldarvinnslunnar og Náttúrugripasafnið skoðað.
Kl. 1900 verðurkvöldverðuríEgilsbúðíboðibæjarstjórnar.
Kl. 2130 verður opið hús í Egilsbúð þar jem öllum bæjarbú-
um gefst tækifæri á að heilsa upp á forseta íslands.
Það er von bæjarstjórnár að sem flestir bæjarbúar taki þátt
í móttökunni og geri hana sem veglegasta.
Dreift hefur verið nokkuð á annað hundrað smáfánum til
barna og er þess vænst, að börn og fullorðnir fagni komu
forseta íslands á hafnargarðinum og í skrúðgarðinum.
Það er ósk bæjarstjórnar, að sem flestir bæjarbúar komi
og drekki kaffi með forseta íslands í Egilsbúð um kvöldið.
Neskaupstaður:
Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands
í opinberri heimsókn á Austurlandi
Forseti íslands, Vigdís Finn- heimsókn á Austurlandi, einsog
bogadóttir er nú í opinberri sagt var frá í síðasta blaði.
Sumarhátíð UlA frestað
Sumarhátíð UÍA, sem vera
átti að Eiðum um sl. helgi var
frestað á síðustu stundu vegna
illviðris, sem gekk yfir landið
austan- og norðanvert. Þetta
áhlaup var með því versta sem
gerist á þessum árstíma og urðu
fjallvegir á Norðausturlandi og
norðanverðum Austfjörðum
ófærir vegna snjóa. Slíkt er fá-
títt í júlímánuði.
Hundadagarnir byrjuðu með
þessum látum og kalt er enn. Ef
þannig viðrar alla hundadag-
ana, eins og gömul veðurtrú seg-
ir til um, verður engin ástæða
til öfundar í garð Austfirðinga
og Norðlendinga vegna tíðar-
fars næstu vikurnar. En vonandi
rætist hin forna veðurspá ekki.
Sumarhátíð UÍA var frestað
um hálfan mánuð og verður hún
haldin að Eiðum dagana 26. -
28. júlí nk.
Undankeppni í „Pollamóti"
KSÍ og Eimskips, þ. e. knatt-
spyrnu 6. flokks, fór þó fram sl.
föstudag og laugardag. Þróttur
og Súlan unnu undankeppnina
og keppa til úrslita að Eiðum í
kvöld.
Margs konar erfiðleikar og
röskun eru því samfara að þurfa
að fresta hátíð sem þessari.
Nokkrar breytingar verða því á
áður auglýstri dagskrá.
Fram fer Meistaramót UÍA í
frjálsum íþróttum 14 ára og
yngri, en móti eldri flokka verð-
ur frestað vegna Bikarkeppni
FRÍ. Að öðru leyti verða íþrótt-
ir með svipuðu sniði og áætlað
var.
Hátíðardagskrá sem vera átti
á laugardag í tilefni heimsóknar
forseta íslands verður auðvitað
ekki, en hátíðardagskrá verður
á sunnudag kl. 14.
Dagskráin er áætluð þannig:
Skrúðganga aðildarfélaga
UIA, setning hátíðardagskrár:
Hermann Níelsson, leikþáttur í
flutningi Leikfélags Fljótsdals-
héraðs, skrikkdanssýning,
ávarp heiðursgests hátíðarinn-
ar, Hermanns Guðmundssonar,
fyrrv. framkvæmdastjóra ÍSÍ,
karatesýning félaga úr umf.
Sindra á Höfn, Jón Páll Sig-
marsson og Ursus sýna listir
sínar, Austurlandsmót í kapp-
göngu, hlaupari í hálfa öld:
Rögnvaldur Erlingsson og
mótsslit.
Skólahljómsveit Neskaup-
staðar leikur fyrir setningu dag-
skrárinnar og á milli atriða.
Kynnir verður Sigurjón Bjarna-
son. B\ S.
Forsetinn hefir nú lokið heim-
sókn sinni í Norður-Múlasýslu,
Seyðisfjörð og héraðshreppa
Suður-Múlasýslu.
Þó að veður hafi ekki verið
eins og best verður á kosið, hefir
heimsókn forsetans heppnast
vel og móttökur hafa hvarvetna
verið hlýjar og innilegar. Ljóst
er að Vigdís forseti skipar veg-
legan sess í hugum Austfirð-
inga. Henni er fagnað sem ást-
sælum þjóðhöfðingja og góðum
vini.
í dag, 18. júlí, heimsækir for-
setinn Mjóafjörð og Neskaup-
stað og er sagt frá dagskrá mót-
tökunnar í Neskaupstað annars
staðar í blaðinu.
Framhald heimsóknarinnar
er sem hér segir:
19. júlí:
Forsetinn heimsækir
Eskifjörð og Reyðarfjörð.
20. júlí:
Forsetinn heimsækir Fá-
skrúðsfjörð og Stöðvarfjörð og
fer að Staðarborg.
21. júlí:
Forsetinn heimsækir Breið-
dalshrepp, Beruneshrepp og
Búlandshrepp.
22. júlí:
Forsetinn fer frá Djúpavogi,
heimsækir Geithellnahrepp og
heldur heimleiðis á hádegi með
flugvél frá Höfn. B. S.
Ofugþróun í
skólamálum mótmælt
Á fundi sínum í Reykjavík 9. - 10. júlí gerði þingflokkur
Alþýðubandalagsins eftirfarandi samþykkt um skólamál:
Góður afli togara
lélegt hjá smærri bátum
Mjög góður afli hefur verið
hjá togurunum að undanförnu.
Aflahrotan byrjaði á Vest-
fjarðamiðum, og var þar veidd-
ur þorskur af smærri gerðinni.
Meðalþyngd fisks frá 1.8 til 2
kg, og talsvert af undirmálsfiski.
Nú að undanförnu hefur verið
mjög góður afli á Austfjarða-
miðum og er aflinn að uppistöðu
til ýsa og þorskur.
Afli smærri báta hefur verið Frá áramótum er afli Norð-
mjög lélegur að undanförnu fjarðartogarannasemhérsegir.
jafnt á línu sem færi.
Síðasti
afli (tonn) löndunardagur
Barði............................. 1.806 12/7
Birtingur ....................... 1.655 16/7
Bjartur........................... 1.692 9/7
Þingflokkur Alþýðubandalagsins vekur athygli á þeirri
háskalegu þróun sem er í fuilum gangi í menntakerfi landsins.
Launastefna ríkisstjórnarinnar hefur m. a. bitnað á kennur-
um og lamaði skólastarf í grunnskólum og framhaldsskólum
á síðasta vetri. Stefna Sjálfstæðisflokksins í menntamálum
hefur þegar brotið niður ýmsa ávinninga liðinna ára og beinist
gegn öllum hugsjónum um jafnrétti til náms, óháð búsetu og
efnahag.
Nýjasta dæmið um þessa öfugþróun er stofnun einkaskóla
sem innleiðir lögmál markaðarins og mismunun f skólastarfi
í áður óþekktum mæli.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins fordæmir þessa þróun og
hvetur foreldra, nemendur og skólamenn til að rísa upp gegn
niðurrifsstefnu ríkisstjórnarinnar í menntamálum.
Fræðslumál og skólastarf er undirstaða fyrir menningarlíf
og efnahagsstarfsemi í landinu og því er núverandi stefna í
skólamálum tilræði við uppvaxandi kynslóð og h'fskjör á ís-
landi til lengri tíma litið.
G. B.