Austurland - 05.09.1985, Síða 1
Austurland
LJOSA-
STILLINGAR
Benni & Svenni
0 6399 & 6499
35. árgangur. Neskaupstað, 5. september 1985. 31. tölublað.
Merkur aðalfundur SSA
Björn Hafþór Guðmundsson kosinn formaður
Björn Hafþór Guðmundsson.
Aðalfundur Sambands sveit-
arfélaga í Austurlandskjördæmi
var haldinn á Reyðarfirði 29. og
30. ágúst sl. Tvö aðalmál fund-
arins voru samstarf sveitarfé-
laga á Austurlandi um verk- og
tæknimenntun og byggðamálin
frá sjónarhóli heimamanna.
Voru haldin framsöguerindi um
þessi mál af heimamönnum og
samþykkt áskorun til sveitar-
stjórnanna um að samþykkja
samning um kjarnaskóla iðn- og
tæknimenntunar á Austurlandi,
sem sagt er frá á öðrum stað í
blaðinu.
Fundurinn var vel sóttur af
sveitarstjórnarmönnum og allir
þingmenn kjördæmisins sátu
fundinn nema Sverrir Her-
mannsson, sem var erlendis.
Stjórn sambandsins er kjörin
á hverjum aðalfundi til eins árs,
en enginn má sitja í stjórn leng-
Ritnefnd
AUSTURLANDS
Á aðalfundi AB í Neskaup-
stað er árlega kosið í ritnefnd
AUSTURLANDS. Þær breyt-
ingar urðu einar á ritnefndinni
nú, að Þórhallur Jónasson, sem
fluttur er frá Neskaupstað,
hverfur úr nefndinni, en í hans
stað var kosin Sigrún Þormóðs-
dóttir. Hún er málefnum blaðs-
ins kunnug, því að hún var um
skeið starfsmaður þess og sá um
fjármál og auglýsingar.
Er Sigrún boðin velkomin til
starfa í ritnefndinni og Þórhalli
þökkuð störf þar á undanförn-
um árum.
Aðrir ritnefndarmenn eru:
Elma Guðmundsdóttir, Guð-
mundur Bjarnason, Einar Már
Sigurðarson og Smári Geirsson.
B. S.
ur samfellt en þrjú ár. Allmiklar
breytingar urðu á stjórninni að
þessu sinni, m. a. af þessum
ástæðum. Þannig gekk fráfar-
andi formaður, Þorvaldur Jó-
hannsson, bæjarstjóri á Seyðis-
firði, úr stjórn nú, en hann hefir
setið þar 3 ár, tvö síðustu árin
sem formaður.
Aðalstjórn skipa nú: Björn
Hafþór Guðmundsson, Stöðv-
arfirði, formaður, Björn
Ágústsson, Egilsstöðum, vara-
formaður, Reynir Gunnarsson,
Búlandshreppi, Alexander
Árnason, Vopnafirði, Sigfús
Guðlaugsson, Reyðarfirði,
Smári Geirsson, Neskaupstað,
Unnsteinn Guðmundsson,
Höfn, Ólafur Óskarsson, Seyð-
isfirði og Aðalsteinn Valdimars-
son, Eskifirði.
Varastjórn skipa: Sigurður
Þorleifsson, Beruneshreppi,
Hreinn Sveinsson, Vopnafirði,
Guðjón Björnsson, Eskifirði,
Guðmundur Bjarnason, Nes-
kaupstað, Guðmundur Þor-
steinsson, Búðahreppi, Páll
Helgason, Mýrahreppi, Magnús
Guðmundsson, Seyðisfirði,
Magnús Þorsteinsson, Borgar-
firði og Einar Baldursson,
Reyðarfirði.
Framkvæmdaráð SSA er
skipað fjórum mönnum, sjálf-
kjörnir eru formaðurinn, Björn
Hafþór Guðmundsson og fram-
kvæmdastjórinn, Sigurður
Hjaltason, en aðrir í ráðinu eru
Unnsteinn Guðmundsson og
Aðalsteinn Valdimarsson.
□ AUSTURLAND náði tali af
hinum nýja formanni SSA, Birni
Hafþóri Guðmundssyni, og
spurði hann, hvað hann vildi
segja um aðalfundinn og starf
sambandsins framundan.
■ Merkasta mál fundarins tel
ég vera þann áfanga, sem náðist
varðandi kjarnaskóla iðn- og
tæknimenntunar í fjórðungn-
um. Endanleg ákvarðanataka er
reyndar eftir þar heima í hverju
sveitarfélagi, en ég fagna þeim
áfanga, sem hefur náðst.
Fyrsta verk hinnar nýju
stjórnar verður að vinna úr þeim
verkefnum, sem aðalfundurinn
fól henni og halda áfram með
þau verkefni, sem í gangi eru og
má þar nefna skólamálin, ferða-
málin o. fl.
í sambandinu er góð sam-
staða, þó að menn greini á um
einstök mál, en hina góðu sam-
stöðu hafa menn áhuga á að efla
enn frekar, - sagði Björn Haf-
þór að lokum. B. S.
Framhaldsskólinn í Neskaupstað. Ljósm. Guðni K. Agústsson.
Verkmenntaskóli Austurlands
Aðalfundur SSA skorar á sveitarstjómir á Austurlandi
að samþykkja aðild að samningi um skólann fyrir áramót
Aðalfundur Sambands sveitar-
félaga í Austurlandskjördæmi, sem
haldinn var á Reyðarfirði dagana
29. og 30. ágúst sl., samþykkti sam-
hljóða áskorun tii sveitarstjóma á
Austurlandi um að þær gerðust að-
ilar að samningi um kjamaskóla
iðn- og tæknimenntunar í fjórð-
ungnum. Samkvæmt sérstökum
samningi við Menntamálaráðu-
neytið frá árinu 1981 hefur Fram-
haldsskólinn í Neskaupstað gegnt
þessu hlutverki, en Neskaupstaður
hefur eitt sveitarfélaga í fjórðungn-
um rekið og byggt upp skólann
ásamt ríkinu. Nú er hins vegar
ætlunin að sveitarfélögin bindist
samtökum um rekstur og uppbygg-
ingu skólans á móti ríkinu og hljóti
skólinn þá heitið Verkmenntaskóli
Austurlands. Gerir aðalfundurinn
ráð fyrir að samningur um Verk-
menntaskólann taki gildi 1. janúar
1986.
Hér er um að ræða tímamót í
austfirskum skólamálum og ætti
þessi ráðstöfun að efla mjög fram-
haldsmenntun í fjórðungnum og
stuðla að því að austfirsk ung-
menni geti í ríkari mæli en áður
lokið verknámi á heimaslóðum.
Framhaldsskólinn í Neskaupstað
hefur barist fyrir mikilvægum um-
bótum varðandi iðn- og tækni-
menntun á Austurlandi að undan-
förnu. Má þar t. d. nefna bygg-
ingu heimavistar við skólann og
byggingu verknámshúss með til-
heyrandi aðstöðu. Eftir að
skólinn er orðinn sameign sveitar-
félaga á Austurlandi og ríkisins
ætti baráttan fyrir framgangi þess-
ara mála að verða auðveldari,
enda má minna á að samkvæmt
iðnfræðslulögum ber ríkissjóði að
kosta heimavistaraðstöðu alfarið
við skóla sem þennan, ef sveitar-
félög standa saman að honum.
Neskaupstaður:
Ráðinn bæjartæknifræðingur og byggingafulltrúi
Á fundi sínum í fyrradag réð
bæjarstjórn Neskaupstaðar
Guðmund Helga Sigfússon,
námi sem byggingatæknifræð-
ingur frá Tækniskóla íslands um
næstu áramót.
Hann hefir unnið við ýmis
framkvæmdastörf m. a. hjá
Bæjarsjóði Neskaupstaðar og
einnig við byggingavinnu, raf-
lagnir, bílaviðgerðir o. fl.
Eiginkona Guðmundar er
Ásrún B. Sveinsdóttir, sjúkra-
liði. Hún er Norðfirðingur einn-
ig, fædd 25. okt. 1962, dóttir
hjónanna Guðrúnar Árnadótt-
ur og Sveips H. Sveinssonar.
Þau eiga eina dóttur, Kristínu
Eliu, sem er á öðru ári.
AUSTURLAND býður þau
hjón velkomin til starfa í Nes-
kaupstað um næstu áramót.
B. S.
Nýr formaður AB Neskaupstað
Guðmundur Helgi Sigfússon.
byggingatæknifræðing sem
bæjartæknifræðing og bygginga-
fulltrúa frá og með næstu ára-
mótum. Um starfið sóttu auk
hans byggingaverkfræðingarnir
Friðrik Guðmundsson og Helgi
Samúelsson.
Guðmundur Helgi Sigfússon
er Norðfirðingur, fæddur 19.
sept. 1961, sonur hjónanna El-
ínborgar Eyþórsdóttur og Sig-
fúsar Guðmundssonar. Guð-
mundur stundaði nám í Háskóla
íslands og Tækniskóla íslands
að loknu stúdentsprófi og lýkur
Aðalfundur Alþýðubanda-
lagsins í Neskaupstað var haldinn
28. ágúst sl. Þar voru rædd ýmis
málefni félagsins og m. a. kosin
Nýi formaðurinn metur stöð-
una. Ljósm. B. S.
ritnefnd AUSTURLANDS og
16 aðalfulltrúar í kjördæmisráð
og 16 til vara og verður fulltrúa-
listinn birtur síðar.
Nokkrar breytingar urðu á
stjórn félagsins, en hana skipa
nú: Einar Már Sigurðarson, for-
maður og Viggó Sigfinnsson,
Ásthildur Lárusdóttir, Kristín
Lundberg og Bjarni Aðalsteins-
son, en þau munu skipta með
sér verkum.
í varastjórn eru: Ásgeir
Magnússon, Elma Guðmunds-
dóttir og Elísabet Karlsdóttir.
Endurskoðendur eru Þórður
Þórðarson og Lilja Hulda Auð-
unsdóttir og til vara Sigfinnur
Karlsson og Ragnar Sigurðsson.
B. S.