Austurland


Austurland - 24.10.1985, Side 1

Austurland - 24.10.1985, Side 1
Austurland HELGARFERÐIR TIL AKUREYRAR Benni & Svenni S 6399 & 6499 35. árgcingur. Neskaupstað, 24. október 1985. 38. tölublað. Tilbúnar í slaginn. (Basamefnd '74). andlitssnyrtingu, hársnyrtingu (almenn umhirða hárs) og lík- amsbeitingu svo ég nefni sum þeirra námskeiða, sem haldin hafa verið, en síðan fór að draga úr þátttöku. □ Virðist þér þá að áhugi fari dvínandi fyrir starfi félagsins? ■ Það er erfitt að fullyrða nokkuð um slíkt, en ég get ekki neitað því, að við höfum nokkr- ar áhyggjur af því, hvað lítið hefur fjölgað í félaginu á seinni árum, og þá á ég við yngri konur. Félagskonur eru nú 93. □ Hvernig hyggist þið bregðast við því? ■ Við reynum að koma til móts við breyttan tíðaranda með breyttum starfsháttum og höf- um það að leiðarljósi að gera félagsstarfið aðlaðandi fyrir konur á öllum aldri. □ Pað er sern sagt hugur íykkur með að efla félagið? ■ Já, við erum sannfærðar um að félagið á fullan rétt á sér og látum ekki deigan síga. Allt félagsstarf er mjög þroskandi og ég er þess fullviss að allar eða flestar konur hafa bæði þörf og ánægju af því að hittast í frjálsu félagsstarfi þrátt fyrir mikla vinnu utan heimilis. Verkefnin framundan eru óteljandi og ég vona að okkur auðnist að halda uppi þrótt- miklu starfi í félaginu og getum þannig haldið áfram því starfi, sem unnið hefur verið í gegn- um tíðina. □ Að þessum orðum Sólveigar mœlturn slógum við botninn í þetta spjall okkar. Um leið og ég þakka Sólveigu fyrir óska ég Kvenfélaginu Nönnu alls hins besta í framtíð- inni og árna konum þar heilla í starfi. S. Þ. Viðtal við Sólveigu Jóhannsdóttur: Um starfsemi Kvenfélagsins Nönnu □ Senn líður að lokum kvenna- áratugar Sameinuðu þjóðanna, og í dag, 24. október, er 10 ára afmœli kvennafrídagsins, sem á sínum tíma vakti mikla athygli og umrœðu um stöðu kvenna. Snemma kusu konur sér að starfa t kvenfélögum og hér í Norðfirði hefur Kvenfélagið Nanna starfað um áratuga skeið. Ég átti á dögunum stuttspjall við formann félagsins, Sólveigu Jó- hannsdóttur um félagið og starf þess. Bað ég Sólveigu fyrst að segja ífáum orðum fráfélaginu. ■ Kvenfélagið Nanna er stofn- að 27. janúar, 1907 og er því á 79. aldursári. Félagið er aðili að SAK, Sambandi austfirskfa kvenna, sem svo aftur er aðili að Kvenfélagasambandi ís- Sfldveiði að glæðast Fyrri hluta vikunnarhefir ver- ið góð síldveiði við Austfirði. Hefir síldin veiðst inni á all- mörgum fjörðum, en mest þó í Reyðarfirði. Allar söltunar- stöðvar hafa nú fengið síld til söltunar og hefir verið mikið um að vera á plönunum. í gær höfðu verið saltaðar um 6.500 tunnur í Neskaupstað, um 4.000 tunnur hjá Mána og um 2.500 tunnur hjá Síldarvinnsl- unni. B. S. lands. Starfsvettvangur hefur verið hefðbundinn, þ. e. að efla og styðja líknar- og menningar- starf, og hefur kröftunum verið beint að mismunandi verkefn- Sólveig Jóhannsdóttir. um á hverjum tíma. Væri of langt mál að telja það allt upp hér. □ Að hvaða verkefnum er verið að vinna núna? ■ Safnaðarheimilið er efst á baugi þessa stundina en þar á undan var það Fjórðungssjúkra- húsið, auk ýmissa annarra verk- efna, sem félagið hefur styrkt, s. s. dagheimilið, skíðaskálinn sunnan Oddsskarðs, bókasafn Nesskóla svo að eitthvað sé nefnt. Auk þess er félagið aðili að samnorrænu verkefni í þriðja heiminum, sem miðar að því að auka fræðslu um hreinlæti, með- 24. október: Kröfuganga - Opiö hús Konur á Norðfirði hafa ákveð- ið að minna á launamál kvenna með kröfugöngu og opnu húsi í Egilsbúð í dag 24. okt. Gangan hefst við bræðsluna kl. 14 og gengið verður að Egilsbúð, þar sem opið hús verður til kl. 18. Þá er vitað um aðgeðir í tilefni dagsins á Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði og Vopnafirði. ferð vatns, matvæla o. fl., með gerð myndbanda. □ Hvernig er innra starfi félags- ins háttað? ■ Innan félagsins starfa nefndir eða starfshópar, sem sjá um ákveðin verkefni, s. s. jólatrés- nefnd, sem sér um jólatrés- skemmtun fyrir börn og fjár- öflunarnefnd, basarnefnd og mæðrastyrksnefnd, sem starfa allt árið. Þá er einnig að nefna eldri borgara nefnd, sem við köllum svo, er hefur aðstoðað við samverustundir í safnaðar- heimilinu fyrir eldra fólkið, í samvinnu við séra Svavar Stefánsson. □ Hvað með námskeið á vegum félagsins? ■ Já, félagið hefur alltaf af og til beitt sér fyrir námskeiðum og sýnikennslu af ýmsu tagi s. s. í saumum, matreiðslu, félags- málanámskeiðum o. fl. og fyrir þremur árum kusum við sér- staka fræðslu- og skemmti- nefnd, sem er ætlað að vinna að þessum málum, þ. e. við reyn- um að gera meira fyrir félags- konur sjálfar og lífga þannig upp á félagsstarfið. □ Eru þessir fræðslu- og skemmtifundir opnir öðrum en félagskonum? ■ Já, hingað til hefur þetta að mestu verið frjálst, þannig að öllum er heimill aðgangur. □ Hvernig hefur þetta mœlst fyrir, hefur aðsókn verið góð? ■ Til að byrja með var hún mjög góð, t. d. á námskeið í Fríður hópur. F. v. Svanfríður Sigurðardóttir, Kristrún Helgadóttir, Magnea Guðmundsdóttir, Ólöf Gisladóttir, Guðrún Eiríksdóttir, Álfhildur Sigurðardóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir og Björg Helgadótlir.

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.