Austurland - 24.10.1985, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR, 24. OKTÓBER 1985.
Austurland
MALGAGN ALÞYÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason, Einar
Már Sigurðarson, Sigrún Þormóðsdóttir og Smári Geirsson.
RitBtjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) 5S7750 og 7756.
Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir- Pósthólf 31
- 740 Neskaupstað - ©7756.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
©7750 og 7756.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Ótti við niðurskurð
Það er öllum ljóst, að fjárlagafrumvarpið, sem lagt var fram á
Alþingi í þingbyrjun er marklaust plagg og gefur litla vísbendingu
um það, hvernig endanleg fjárlög koma til með að líta út. Einnig
er það ljóst, að frjálshyggjulið íhaldsins fann frumvarpinu það
helst til foráttu, að þar væri ekki gert ráð fyrir nógu miklum
niðurskurði á fjárframlögum ríkisins til framkvæmda og samfélags-
legrar þjónustu.
Sú staðreynd gefur ákveðna vísbendingu um það, hvers megi
vænta í fjárlögum næsta árs, því að efiaust mun Sjálfstæðisflokkur-
inn ráða því, sem hann vill ráða í þeim efnum. Yfirlýsingar for-
sætisráðherrans og annarra framsóknarmanna um það, að þeir
ljái ekki máls á skerðingu félagslegrar þjónustu, eru marklitlar og
að engu hafandi, ef dæma má af reynslu yfirlýsinga úr þeirri átt.
Nú ríkir því almennur ótti í landinu við ótæpilegan niðurskurð
á framlögum til hinna ýmsu félagslegu málaflokka svo sem heil-
brigðis- og tryggingamála, skólamála og húsnæðismála, svo að
nokkuð sé nefnt. Einnig óttast menn mjög, og ekki síst fólk úti
á landsbyggðinni, aðframkvæmdaþættirríkisinst. d. ívegamálum,
flugmálum og hafnamálum verði skertir gífurlega að raungildi og
stuðningur við hina ýmsu þætti atvinnulífsins verði minnkaður að
miklum mun.
Allt eru þetta atriði, sem skipta fólk og afkomu þess og búsetu-
öryggi afar miklu og skerðing þessara þátta flestra kemur verr við
fólk utan höfuðborgarsvæðisins en innan þess.
Þingmenn landsbyggðarinnar hafa því verk að vinna á næstu
vikum og það verður fylgst með störfum þeirra.
Ef þeir sameinast, hafa þeir afl til að ráða ferðinni og koma í
veg fyrir óhappaverk þessarar heillum horfnu ríkisstjórnar í sam-
bandi við fjárlagagerðina.
Byggðastofnun til Akureyrar
Byggðastofnun, sem er nýr arftaki Framkvæmdastofnunar, er
í mótun og eitt af því, sem ber hátt í umræðunni um hana, er
hvar hún á að hafa aðsetur.
Margir hafa sett fram þá skoðun og þá kröfu, að aðsetur hennar
verði á Akureyri. Undir það skal tekið hér heils hugar og í fullri
alvöru.
Það hlýtur að vera eðlilegt, að slík stofnun hafi aðsetur utan
höfuðborgarsvæðisins. Fyrir því má færa óteljandi rök.
Stjórn Byggðastofnunar hefur nú ákveðið að fá ráðgjafa til að
kanna kosti þess og galla að flytja stofnunina til Akureyrar. Út
úr slíkri könnun kemur vart annað en viðkomandi embættismenn
vilja, að út úr henni komi og líklegast verður niðurstaðan einhvers
konar skoðanaleysi.
Til þess bær yfirvöld eiga því að taka um það hiklausa ákvörðun,
að Byggðastofnun skuli vera á Akureyri. Það mun örugglega auka
notagildi þeirrar stofnunar fyrir hinar dreifðu byggðir landsins.
B. S.
FRA ALÞINGI
Nú þegar Alþingi er komið saman í 108.
sinn frá endurreisn þess fyrir 140 árum, mun
AUSTURLAND birta stutta pistla um þing-
störfin. Þar verður fyrst og fremst staldrað
við þau þingmál, er varða landsbyggðina og
Austurlandskjördæmi sérstaklega.
Uppstokkunin innan ríkis-
stjórnarinnar í þingbyrjun hef-
ur verið helsta fréttaefnið og
vissulega er þar um einsdæmi
að ræða í íslenskri stjórnmála-
sögu.
Fjárlagafrumvarp Alberts
var fyrsta þingmálið, sem lagt
var fram, en þegar er búið að
dæma það úr leik. Fjárveit-
inganefnd þingsins fær ekki
einu sinni að fjalla um frum-
varpið, heldur er sett upp sér-
stök nefnd á vegum ríkis-
stjórnarinnar til að ganga í
endurksoðun þess. Slíkt eru
vissulega óþingleg vinnubrögð
og eftir er að sjá, hver afrakst-
urinn verður. Talið er, að Þor-
steinn Pálsson fái sinn dóm
hjá frj álshyggj uliði Sjálfstæð-
isflokksins, eftir því hvernig til
tekst.
Sama gjald fyrir
símaþjónustu
Hjörleifur Guttormsson og
Helgi Seljan flytja ásamt
þremur öðrum þingmönnum
Alþýðubandalagsins þingsá-
lyktunartillögu um, að innan
fimm ára verði símgjöld innan-
lands jöfnuð til fulls, þannig
að sama gjald verði fyrir símtal
óháð vegalengd, jafnframt að
kostnaður vegna símtala við
stjórnsýslustofnanir verði hinn
sami, hvar sem er á landinu
fyrir árslok 1987. Þess verði
gætt, að þessar breytingar
verði ekki íþyngjandi fyrir elli-
og örorkulífeyrisþega.
Hér er um stórmál að ræða
fyrir landsbyggðina, sem lagt
var fram seint á síðasta þingi,
en nú reynir á, hverjar undir-
tektir verða.
Ný byggðastefna
og valddreiflng
Hjörleifur og Steingrímur J.
Sigfússon endurflytja tillögu til
þingsályktunar um nýja
byggðastefnu og valddreifingu
til héraða og sveitarfélaga. Þar
er m. a. gert ráð fyrir nýju
stjórnsýslustigi, sem fái í hend-
ur fjármagn og verkefni, sem
nú eru í höndum Alþingis og
ríkisstofnana í Reykjavík. Til-
lagan er mjög ítarleg og gerði
Hjörleifur grein fyrir hug-
myndum sínum hér í blaðinu
á liðnu sumri.
Fyrirspurnir
Helgi og Hjörleifur hafa lagt
fram nokkrar fyrirspurnir til
ráðherra.
Helgi spyr heilbrigðisráð-
herra, til hverra úrræða verði
gripið til að tryggja læknis-
þjónustu í Vopnafjarðarlækn-
ishéraði.
Hjörleifur spyr mennta-
málaráðherra um ráðningu
réttindalausra í kennarastöður
nú í haust og hvenær vænta
megi lögverndunar á starfs-
heiti og starfsréttindum
kennara. Um það efni flutti
hann frumvarp á síðasta þingi
og var því vísað til ríkisstjórn-
arinnar.
í svari menntamálaráðherra
á Alþingi í fyrradag kom fram
að réttindalausir kennarar eru
nú 441 eða um 20% kennara,
þar af 13 í Reykjavík, en 71 á
Austurlandi.
Hvað segja bændur nú?
Ekki dylst neinum að Fram-
sóknarflokkurinn hefur fjarlægst
uppruna sinn og fyrri stefnumið
með hraða ljóssins í seinni tíð.
Sjálfur formaður hans leiðir
frjálshyggjuna til valda og heldur
dyggilega forystu um þá stefnu í
öllum greinum. Og áhrifin láta
ekki á sér standa. Ungur maður
á uppleið í Framsókn skrifar
grein í NT á dögunum um það
hver sé brýnasta nauðsyn
flokksins. - Orðrétt segir þessi
ungi maður, Bjarni Hafþór
Helgason frá Akureyri svo:
Kirkja
Barnastarfið í Norðfjarðar-
kirkju hefst nk. sunnudag, 27.
október kl. 1030 f. h. Allir vel-
komnir.
Almenn samkoma í safnaðar-
heimilinu föstudagskvöld, 25.
október kl. 2030. Benedikt Arn-
kelsson og Skúli Svavarsson,
kristniboðar tala og sýna myndir
frá kristniboðsstarfinu.
Sóknarprestur.
„Til að vinna Framsóknar-
flokknum sem borgaralegum
miðjuflokki fylgi í þessu þétt-
býlisþjóðfélagi er nauðsynlegt
að „vöruþróa" framboðslista
hans og eitt helsta einkenni
slíkrar vöruþróunar verður að
vera veruleg fækkun bænda á
framboðslistum flokksins."
Þá hafa menn það - reyndar
hafa bændur ekki þjakað fram-
boðslista Framsóknar eystra og
fá þar ekki að fara upp fyrir
miðju, svo að „vöruþróunin" er
þegar um garð gengin þar.
En meira blóð er í kúnni hjá
Bjarna Hafþóri. Hann vill
„uppa“ „töff“ línu hjá sam-
vinnuhreyfingunni, sem hann
hefur með stórum staf enda
máski í vinnu hjá KEA og á
uppleið þar.
Orðrétt: „Á sama hátt og
„Moggauppunum" er haldið á
„töff-línunni“ - er það eitt af
hlutverkum Samvinnuhreyfing-
arinnar að laða til sín fólk, sem
vill vera „töff og á uppleið“ og
sem hefur þannig þau áhrif á
almenning að hinum finnist
hreyfingin virkilega: „töff,
smart og æðisleg“.“
Og til áherslu í lokin: „Við-
brögðin eiga að vera: Bændur
út af framboðslistum flokksins,
að öllu óbreyttu, og bylting í
áróðursmálum Samvinnuhreyf-
ingarinnar."
Þar hafa menn það. Hvernig
lýst nú góðum og gegnum vinstri
framsóknarmönnum á, þeim
sem þó eru ennþá til í þessum
„borgaralega miðjuflokki“? Er
annars nema von að blessuðu
„barninu" bregði í ættina -
frjálshyggjuættina, sem Stein-
grímur, Halldór og allir hinir
hafa leitt í öndvegi?
En ömurlegt er orðið hlut-
skipti þeirra sem þannig bregð-
ast öllum sínum ágætu stefnu-
miðum.
Og bændur ættu að hugsa sig
um tvisvar áður en þeir halda
áfram að fylgja flokki, sem á að
vera fyrir „uppana", fyrir „töff-
línuna" og þarf mest á þvf að
halda að losa sig með öllu við
þau óþrif, sem eru að bændum.
H. S.