Austurland - 24.10.1985, Síða 3
FIMMTUDAGUR, 24. OKTÓBER 1985.
3
1. vetrardagskvöld
nk. laugardagskvöld kl. 2300 — 300
leika
Munið eftir veislukvöldi okkar
nk. laugardagskvöld kl. 1930 — 2 200
Borðapantanir S 7321
Verið velkomin
EGILSBÚÐ
Viðtal við Sigfinn Karlsson:
Bæta þarf samband Vinnueft-
irlitsins og verkalýðsfélaganna
AUSTURLAND náði taii af
Sigfinni Karlssyni, forseta
Alþýðusambands Austurlands
Alþýðubandalag Héraðsmanna
heldur almennan félagsfund í Valaskjálf
Egilsstöðum mánudaginn 28. október nk.
kl. 2100
Fundarefni: 1. Kosning fulltrúa á landsfund
2. Sveitarstjórnarmál
3. Önnur mál
Mætið vel og stundvíslega
Stjórnin
Sigfinnur Karlsson.
á vinnuverndarráðstefnunni á
Iðavöllum og spurði hann um
ráðstefnuhaldið og ástand í
vinnuverndarmálum.
□ Hvers vegna skipuleggið þið
og haldið þessa ráðstefnu?
■ Okkur hefur fundist eftir at-
hugun, að þessi mál séu ekki í
nógu góðu lagi og sambandið á
Viðtal við Skúla Magnússon:
Hugarfarsbreyting er að eiga
sér stað í vinnuverndarmálum
Skúli Magnússon er um-
dæmiseftirlitsmaður Vinnueftir-
lits ríkisins á Austurlandi og er
búsettur á Egilsstöðum. Á
vinnuverndarráðstefnunni á
Iðavöllum átti AUSTUR-
LAND viðtal við hann um ráð-
stefnuna og vinnuverndarmál,
en Skúli og forstjóri Vinnueftir-
litsins fluttu báðir erindi á ráð-
stefnunni og einnig fræðslufull-
trúi Vinnueftirlitsins.
□ Hvað viltu segja um þessa
ráðstefnu og samband Vinnueft-
irlitsins og verkalýðsfélaganna?
■ Þessi ráðstefna er af því góða
og bráðnauðsynleg. Eftir því
sem mér skilst er þetta fyrsta
ráðstefnan sinnar tegundar, sem
haldin er á landinu og forstjóri
Vinnueftirlitsins hvatti MFA til
að halda svona ráðstefnur um
allt land og ég geri þá ráð fyrir,
að Vinnueftirlitið sé reiðubúið
til að koma á slíkar ráðstefnur
um vinnustaðinn og aðbúnaðar-
og öryggismálin til að reyna að
ýta þessum málum áleiðis og
koma upp einhverju kerfi, sem
er virkt í eftirlitsstarfinu.
Ég er ekki búinn að vera mjög
lengi hér sem starfsmaður, en
ég sé þó mikla breytingu í rétta
átt frá því sem áður var. Það er
komin af stað hugarfarsbreyting
og það tel ég mjög mikilvægt,
þó að langt sé frá, að allir vinnu-
staðir séu orðnir góðir.
Fólki finnst hér, að Vinnueft-
irlitið þyrfti að vera miklu virk-
ara í eftirlitsstarfinu en það er
og það viðurkenni ég. En um-
dæmið er stórt og ég er einn og
svo hafði maður í veganesti,
þegar maður fór af stað, örygg-
istrúnaðarmanna- og örygg-
isvarðakerfið, sem lögin gera
ráð fyrir, en það hefur nánast
aldrei náð að virka. En hér hafa
komið fram ýmis jákvæð atriði,
svo að maður vonar, að þetta
fari að lagast.
Ég hef óskað eftir samvinnu
við verkalýðshreyfinguna hér á
þessari ráðstefnu um að koma
skráningu og tilkynningar-
skyldu öryggistrúnaðarmanna í
það horf, að ég geti leitað til
þeirra og þeir til mín.
Flest fyrirtæki eiga að vera
komin á skrá hjá mér, en þó eru
alltaf að koma í ljós skráningar-
skyld fyrirtæki, sem ég hef ekki
haft hugmynd um, að væru til.
Ég hef því beðið formenn
verkalýðsfélaganna að búa til
lista handa mér um skráningar-
skyld fyrirtæki á sínu svæði, af
því að þeir þekkja best til á
stöðunum. Ég tek það fram, að
þeir eru ekki skyldugir að gera
Skúli Magnússon.
þetta, en ég er þegar farinn að
fá inn þessa lista og á einum stað
komu þannig í ljós þrjú fyrir-
tæki, sem ég vissi ekki um.
□ Það er talað um, að það sé
erfitt að ná sambandi við þig.
■ Já, ég er eini starfsmaður
þessarar stofnunar á Austur-
landi. Ég er búinn að sækja um
að fá starfsmann á skrifstofu í
hálfa stöðu einfaldlega til þess
að ég geti sinnt sjálfu eftirlits-
starfinu mun meira, eins og ég
reiknaði með í upphafi, þegar
ég réðist í þessi störf. Landbún-
Framh. á 4. síðu.
milli Vinnueftirlitsins hér á
Austurlandi og félaganna er að
mínu mati ekki nógu gott. Það
hefur verið þannig, að vinnueft-
irlitsmaðurinn hefur ekki haft
samband beint við félögin, held-
ur mikið meira við vinnustað-
ina. Kannski er það eftir þeim
fyrirmælum, sem hann hefur og
í anda laganna, en það er and-
vígt því, sem ég hef hugsað
þetta.
Sennilega er það víða svo á
Austurlandi, að ekki eru til ör-
yggistrúnaðarmenn og ekki ör-
yggisverðir heldur á vinnu-
stöðunum. Þetta þarf að laga og
það er m. a. þess vegna, sem
við höfum kallað saman þennan
hóp til að kanna, hvernig þetta
er og vinna út frá því. Þegar við
ákváðum í ASA og MFA að
hafa þessa ráðstefnu og fórum
að undirbúa hana, þá sendum
við spurningalista til allra aðild-
arfélaga og báðum þau að koma
þeirn út á vinnustaðina til þess
að á hverjum vinnustað væri
hægt að fylla út þessa spurninga-
lista um aðbúnað, hollustuhætti
og annað, sem tilheyrir vinnu-
staðnum.
□ Og h vernig er ráðstefnan sótt?
■ Hún er nokkuð vel sótt, því
að hér eru 43 fulltrúar frá 11
félögum af 14 félögum á svæð-
inu. Sum þeirra félaga, sem ekki
eiga hér fulltrúa, eru fámenn og
liggja fjær og senda ekki alltaf
fulltrúa á ráðstefnur og þing
sambandsins. Það var lögð
áhersla á, að hér kæmu trúnað-
armenn og öryggistrúnaðar-
menn og stjórnir félaganna.
Þessi hópur hér er blandaður
þessum aðilum.
□ Er það rétt með tilliti til þess
sem þú sagðir hér áðan, að þér
finnist skorta nokkuð á nœgilega
samvinnu Vinnueftirlitsins og
verkalýðsfélaganna í vinnu-
verndarmálum?
■ Já, mér finnst skorta dálítið
á það, að vinnueftirlitsmaður-
inn, sem er búsettur á Egilsstöð-
um og ferðast hérna um, að
hann hafi nógu mikið samband
við starfandi skrifstofur verka-
lýðsfélaganna. Ég get t. d. sagt
fyrir mitt félag, sem er stærsta
félagið á sambandssvæðinu, að
ég hef séð þennan mann tvisvar
sinnum og í bæði skiptin á ráð-
stefnu hér á Iðavöllum. Ég hef
kannski gert lítið í því að ná
sambandi við hann, en í þau fáu
skipti, sem ég hef hringt, hefur
símsvari svarað. Ég hef ekki tal-
að við þennan símsvara, svo að
ég get kannski kennt mér að ein-
hverju Ieyti um þetta. En mitt
mat er það, að þetta þurfi að
lagast og þetta verði ekki gott
nema viðkomandi maður vilji
að einhverju leyti hafa samband
við félögin sjálf. Hins vegar geri
ég mér það vel ljóst, að einn
maður, sem er með svona geypi-
stórt umdæmi og verður að
sinna öllum landbúnaðartækj-
um líka, kemst ekki yfir þetta.
Það væri kannski nóg verkefni
fyrir einn mann að huga að öxl-
unum í öllum traktorunum og
öðrum landbúnaðartækjum á
skoðunarsvæðinu.
□ Að lokum, Sigfinnur, hvernig
finnst þér þá ráðstefnan hafa tek-
ist og telurðu, að hún skiliykkur
einhverjum árangri?
■ Mér finnst ráðstefnan hafa
tekist vel. Hér hafa komið fram
mjög athyglisverð erindi og ég
verð að segja, að þau erindi,
sem framsögumennirnir fluttu,
voru miklu betri en ég var búinn
að gera mér í hugarlund, að þau
yrðu og ég trúi ekki öðru en
þessi ráðstefna skili einhverju.
Og ég er alveg sannfærður um,
að það verða einhver för, sem
koma eftir hana út á vinnustað-
ina.
Ég vil svo taka það fram, að
öll svona fræðsla er uppbyggj-
andi fyrir verkalýðshreyfinguna
og þegar hún er svona nákvæm-
lega útfærð eins og á þessari ráð-
stefnu, getur hún ekki annað en
skilað árangri.
□ Að svo mœltu slitum við Sig-
finnur talinu og hann hélt á ný
inn í ráðstefnusalinn og
A USTURLAND þakkar hon-
um viðtalið. B. S.
Atvinna
Fjórðungssjúkrahúsið vantar starfsmann
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
S 97-7403 og 97-7466
Fjórdungssjúkrahúsið Neskaupstað