Austurland


Austurland - 24.10.1985, Blaðsíða 5

Austurland - 24.10.1985, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR, 24. OKTÓBER 1985. 5 Gæðamat Fátt er viðkvæmara meðal sjómanna en gæðamat á fiski. Er það auðskilið vegna þess að miklu máli skiptir hvort fiskur- inn fer í fyrsta, annan eða þriðja gæðaflokk vegna hins mikla verðmunar sem er á milli þess- ara flokka. Oft ganga um það sögur hversu matið sé miklu betra á einum stað en öðrum. Á það skal ekki lagður dómur hér. Hins vegar er það augljóst mál að fiskur er hærra metinn á ein- um stað en öðrum, hvort sem það stafar af mismunandi gæð- um fisksins eða mismunandi forsendum sem lagðar eru til grundvallar við matið. Fiskifélag (slands hefur tekið saman yfirlit um gæðaflokkun á þorski fyrstu 5 mánuði þessa árs. Hér á eftir fer tafla um gæðamat á þorski veiddum í net og lönduðum í verstöðvum aust- anlands. í næsta blaði verður birt tafla yfir gæðamat á þorski hjá Aust- fjarðatogurunum fyrstu 5 mán- uði þessa árs. G. B. Slaður Magn (tonn) i.n.(%> 2.n.(%) 3. n. (%) Óflokkað (%) Bakkafjörður 133 70.2 14.2 15.5 0.1 Vopnafjörður 230 70.0 16.7 13.3 Borgarfjörður 27 68.0 17.2 14.8 Neskaupstaður 107 79.9 18.6 1.5 Eskifjörður 740 49.1 30.7 20.1 0.1 Reyðarfjörður 260 51.1 17.8 30.5 0.6 Fáskrúðsfjörður 425 56.6 29.0 13.9 0.5 Stöðvarfjörður 11 32.6 31.0 36.4 Breiðdalsvík 683 57.3 19.5 21.9 1.3 Djúpivogur 307 78.8 16.0 5.1 0.1 Hornafjörður 5.891 62.5 20.3 17.2 Landsmeðaltal (68.3) (20.2) (11.3) (0.2) Islendingur, . . . Framh. af 4. síðu. og kannski kjarnorkuvopn svo að nábúar þessa svæðis eru í stöðugri lífshættu? Nægir það þér meðan börn þín haldast ósnortin af erlendum áhrifum, enda þótt börn í ná- grenni herstöðvanna verði fyrir hvers konar áhrifum af hernaðar- anda, miði leikföng sín og leiki við stríð og manndráp, blandi ís- lenskuna sína erlendum orðskríp- um og eigi á hættu að komast í snertingu við hina erlendu „menn- ingu“ s. s. fíkniefnaneyslu o. fl.? Mig hefði langað til að spyrja þig um svo margt fleira, en ég læt þetta nægja að sinni. Hugs- aðu þig vel um, áður en þú svar- ar spurningunum mínum. Ég ávarpaði þig með heitinu íslend- ingur. Pað getur farið eftir svör- um þínum, hvort framtíðin læt- ur þig halda því heiti eða gefur þér eitthvert annað í þess stað. Og síðasta „afrek" þeirrar heillum flúnu ríkisstjórnar, sem nú situr að völdum með hinn þjóðholla utanríkisráðherra í fararbroddi, er að heimila her- námsþjóðinni að reisa nýjar radarstöðvar austan lands og vestan auk aukinna annarra um- svifa. Hvenær verður þessi blettur undirlægju og ódrengskapar þveginn af okkur íslendingum? Kannski ekki fyrr en land okkar verður þurrkað út í næstu kjarnorkustyrjöld og þá fyrst þeir staðir, sem ógæfumennirnir íslensku heimiluðu herraþjóð- inni að útbúa sem víghreiður og árásarvettvang gegn 30 silfur- peningum. r VERKAFOLK VINNA VINNA Okkur vantar nú þegar fólk til vinnu: Við frystingu . . . . Upplýsingar S 7505 Við síldarsöltun . Upplýsingar S 7650 |/svn\) Síldarvinnslan hf. Neskaupstað Vísnahom Austurlands Nú á veturnóttum þykir AUSTURLANDI tilhlýðilegt að hefja vikulegan vísnaþátt, örstuttan hverju sinni. Tekið verður með þökkum vísum lesenda og næstum einu birtingarskilyrðin eru, að hortittir og aðrir hnökrar séu ekki mjög áberandi. Vísur ortar af ákveðnu tilefni eða um dægurmál eru vel þegnar og stuttar skýringar með, þar sem ástæða er til. Og þá byrjum við og látum Sverri Haraldsson á Borgarfirði ríða á vaðið, er hann segir um gagnsemi stökunnar. Ef að þú átt orðið bágt eftir langa vöku, þá er ráð að þylja lágt þokkalega stöku. Sverrir segir einnig um minnið og minninguna. Eitt er týnt og annað gleymt, œskan horfin sýnum. Er þó stundum eins og reimt enn í huga mínum. Og síðasta vísan að sinni er frá undirrituðum og þarf engrar skýringar við. Sá er treður troðna slóð tálma enga brýtur, aldrei vermist andans glóð eða lífsins nýtur. B. S. Bæjarfógetinn í Neskaupstað Nauðungaruppboð sem auglýst var í 80., 84. og 87. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á húseigninni Hrafnsmýri 1, Neskaupstað, með tilheyrandi lóðarréttindum, þinglýstri eign Karls Jóhanns Birgissonar, fer fram eftir kröfu Árna Halldórssonar, hrl., o. fl. á eigninni sjálfri föstudaginn 25. október 1985, kl. 1400 Bæjarfógetinn í Neskaupstað Bæjarfógetinn í Neskaupstað Nauðungaruppboð sem auglýst var í 80., 84. og 87. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á húseigninni Strandgötu 43, Neskaupstað, með tilheyrandi lóðarréttindum, þinglýstri eign Gylfa Gunnarssonar, fer fram eftir kröfu Ásgeirs Thoroddsen, hdl., á eigninni sjálfri föstudaginn 25. október 1985, kl. 1530 Bæjarfógetinn í Neskaupstað

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.