Austurland - 20.12.1985, Blaðsíða 2
2
FOSTUDAGUR, 20. DESEMBER 1985.
---------Austurland-------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason, Einar
Már Sigurðarson, Sigrún Þormóðsdóttir og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) ©7750 og 7756.
Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir - Pósthólf 31
- 740 Neskaupstað - ©7756.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
©7750 og 7756.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Ostjórn í efnahagsmálum magnast
í dag munu fjárlög fyrir árið 1986 sennilega verða endanlega
afgreidd á Alþingi. Þar er um að ræða fyrstu fjárlög íhaldsfor-
ingjans Þorsteins Pálssonar, en hann kastaði fyrir róða sem
kunnugt er fjárlagafrumvarpi Alberts Guðmundssonar, sem
trúlega hefir þó ekki verið eins vitlaust né hrollvekjandi og
það plagg, sem nú hefir verið keyrt í gegnum þingið og gert
að fjárlögum.
Fjárlögin benda ekki til neinnar stefnubreytingar í skyn-
semisátt, eins og látið hefir verið í veðri vaka. Þau benda ekki
til markvissari stjórnar á efnahagsmálum þjóðarinnar. Þau
sýna ekki, að aðhalds verði gætt í ríkisútgjöldum. Þau sýna
ekki, að dregið verði úr erlendum lántökum eða þær nær
stöðvaðar og þau hafa ekki inni að halda uppfyllingu á einu
helsta gylliloforði íhaldsins - lækkun beinna skatta.
Þessi nýju fjárlög staðfesta þvert á móti, að sömu stefnu verður
haldið í efnahagsmálum og verið hefir og allir vita, að leitt hefir
sífellt til aukinnar þenslu og verðbólgu og hefir einkennst af
óstjóm öðru fremur, eins og tilviljanakenndar aukafjárveitingar
eftir duttlungum fjármálaráðherra bera einna ljósastan vott um.
Ekkert bendir til, að á þessu verði nein breyting önnur en sú,
að á næsta ári mun þessi óstjóm ráðast af duttlungum Þorsteins
Pálssonar í stað Alberts Guðmundssonar.
Halli á fjárlögum þessa árs mun nema yfir tveimur milljörð-
um króna, kannski allt að tveimur og hálfum milljarði, en það
er þreföldun á þeim halla, sem gert var ráð fyrir. Slík er
óstjórnin.
Aðhald í ríkisútgjöldum hefir verið eitt af vinsælli slagorðum
íhaldsins. Raunin er hins vegar sú, að ríkisútgjöld hafa stór-
hækkað ár frá ári og á næsta ári munu þau verða tveimur og
hálfum milljarði hærri en árið 1984 og er sú hækkun miðuð
við raungildi. Um leið og ríkisútgjöld hækka svona stórkost-
lega í heild, lækka framlög til verklegra framkvæmda - þar er
niðurskurðinum beitt, en hins vegar ekki í eyðsluþáttunum.
Erlendar lántökur áttu að minnka, ef einhver hefði tekið
mark á máli þeirra stjórnarsinna. Raunin er hins vegar sú, að
á næsta ári verða nýjar erlendar lántökur 3.7 milljarðar kr.
eða 800 millj. kr. umfram afborganir erlendra lána, en marg-
yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar er, að erlendar lántökur
nemi eigi hærri upphæð en afborganir eldri erlendra lána. í
þessum efnum er óstjórnin söm við sig.
Eitt helsta og hástemmdasta loforð íhaldsins hefir verið af-
nám beinna skatta, þ. e. tekjuskattsins. í haust var loforðið
komið í það, að á næsta ári yrðu heildartekjuskattar almenn-
ings lækkaðir um 400 millj. kr.
Hverjar eru svo efndirnar? Þær eru auðvitað engar. Öll
gefin loforð í þessum efnum reynast svik ein. í fjárlögum næsta
árs er ekki gert ráð fyrir neinni lækkun tekjuskatts. Þorsteinn
Pálsson mun því leggja hann á íslenskt launafólk á næsta ári
með sama þunga og verið hefir. B. S.
Seyðisfjörður:
F ullor ðinsfr æ ðsla
í 36. tölublaði AUSTUR-
LANDS var greint lítillega frá
gangi mála í Seyðisfjarðarskóla
við upphaf 105. starfsárs hans.
Þar féll því miður niður að
greina frá fullorðinsfræðslu.
Skólinn sendi út bréf til bæjar-
búa og birti tilkynningu síð-
sumars í bæjarblaðinu þar sem
bent var á möguleika á námi í 5
- 6 greinum. Var þar um kvöld-
námskeið að ræða og að sitja sem
óreglulegur nemandi í framhalds-
deild skólans. Allir sem náð hafa
18 ára aldri eiga rétt á að fá að
stunda framhaldsnám.
Reyndin varð sú, að aðeins
var nægjanleg þátttaka í einni
grein, þýsku. Nú þegar þetta
birtist hefur hins vegar tæplega
helmingur nemenda í þýsku-
náminu helst úr lestinni.
Yinningar
Dregið hefur verið í happ-
drætti Kvennadeildar Slys-
avarnafélagsins. Eftirtalin nr.
hlutu vinning:
567 - 558 - 730 - 331
JÓLA-
DANS-
LEIKUR
hefst kl. 2400 á
jóladagskvöld 25/i2
Bumburnar
sjá um fjörið
EGILSBÚÐ
ARA-
MÓTA-
DISKÓ-
TEK
Fagnið nýju ári á
diskóteki í Egilsbúð
Húsið opnað kl. 24°°
á gamlárskvöld
Plötusnúður Pétur
Hallgrímsson
EGILSBÚÐ
Undanfarin ár hefur víða um
landið verið reynt að gefa full-
orðnum kost á að auka þekk-
ingu sína og sennilega er sá þátt-
ur einhver jákvæðasta þróunin
í skólamálum okkar. Flestir sem
kennt hafa fullorðnum ljúka
upp einum rómi um, að þangað
komi menn, sem viti hvað þeir
vilja og takist á við verkefnin af
áhuga, en ekki af þeim skiln-
ingsvana lífsleiða, sem alltof oft
virðist bera á í skyldunáminu.
En því miður brestur stundum
úthaldið hjá þeim fullorðnu eins
og hér varð raunin á, en sú saga
er vel þekkt víðar að.
Seyðisfjarðarskóli mun á vor-
önn bjóða upp á námskeið í
nokkrum greinum bæði bókleg-
um og verklegum á sama grund-
velli og fyrr. J. J. t S. G.
NESKAUPSTAÐUR
Kjörfundur
vegna atkvæðagreiðslu um heimild til
opnunar áfengisútsölu í Neskaupstað fer fram
laugardaginn 28. desember nk. í
barnaskólanum og hefst kl. 1000 og lýkur kl.
2000 Kjörstjórn
Atvinna
Starfsmenn vantar á sjúkradeild
Fjórðungssjúkrahússins Neskaupstað frá
áramótum
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
S 97-7403 og 97-7466
Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað
Nýkomið
Mikið úrval af loftljósum, veggljósum,
borðlömpum, standlömpum og kösturum
Litaðar perur, inniseríur, útiseríur
Black & Decker rafmagnshandverkfæri
Opið í jólaösinni kl. 9-22
Sveinn Ó. Elíasson
Raftækjavinnustofa — Verslun
Urðarteigi 15 S 7660 & 7720
Neskaupstað