Eining - 01.07.1955, Qupperneq 8

Eining - 01.07.1955, Qupperneq 8
8 EINING Ge stnr frá hástúknnni — Karl Wennberg Óperusöngkonan Guðrún Á. Símonar. voru þau, að óperusöngkonan, ungfrú Guðrún Á. Símonar, söng einsöng nokk- ur lög, við hljóðfærið var Friz Weis- shappel. Var þessum lið mjög fagnað. Seinna um kvöldið var sýnd kvikmynd af för templara til Vestfjarða 1944. Hið helzta, sem fram fór á fundinum, svo og söngur ungfrúarinnar, var tekið á segulband til kynningar víðar. Ekki var síður vistlegt við kaffiborðið en í fundarsalnum og höfðu stúkusyst- urnar búið það fagurlega og ekkert til sparað. Allmargir tóku til máls og ríkti þar glaðværð og góður andi. Áður í vikunni hafði stúkan Eining- in búið gesti okkar ánægjulegt kaffikvöld í sambandi við fund sinn. Stúkan Frón vildi sýna, að hér kunnum við að halda hátíðlega fundi með fyllsta virðugleik og glæsibrag. Mjög var vandað til fund- arhaldsins að öllu leyti. Á þingi alþjóðahástúkunnar í sumar, í Bournemouth á Englandi, hitti ritstjóri Einingar ýmsa forustumenn bindindis- mála í Svíþjóð og sögðu þeir, að Wenn- berg hefði rómað mjög þær móttökur, sem hann hafði fengið á Islandi. I nokkr- um sænskum dagblöðum hafa birzt greinar, sem eru frásögn Wennbargs um starfsemi templara á Islandi. Er þar minnst allrækilega á starfsemi templ- ara á Akureyri, hótelið, æskulýðsheim- ilið og fleira. Einnig á félagslíf þeirra í Reykjavík. Þess er og getið, að á Islandi taki prestar og kennarar sérlega mikinn þátt í bindindisstarfinu, og að einn rit- höfundur, sem þekktur sé í Svíþjóð, Guðmundur Hagalín, hafi nýlega ferð- ast um sem ,,góðtemplarinstruktör“ — fræðari — og endurvakið og stofnað nokkrar nýjar stúkur. Reformatorn, blað templara í Sví- þjóð, hefur einnig birt allmikið mál um Dagana 19. maí til 1. júní dvaldi hér á landi sendimaður alþjóðahástúk- unnar, Karl Wennberg. Erindi hans var að kynna okkur sem bezt starf og skipu- lag Góðtemplarareglunnar í Svíþjóð, en hún er þar mjög öflug og starfsemi hennar í mörgu mjög til fyrirmyndar, til dæmis í vel skipulögðu og ágætu samstarfi við ýms félagakerfi landsins. Um þetta flutti Karl Wennberg mjög fróðlegt og snjallt erindi á fundi í Stór- stúku íslands 23. maí s. 1. Fjölmenni var á fundinum. I öðru lagi vildi hr. Wennberg kynna sér hag og háttu okkar bindindismanna á íslandi. Hann notaði tíma sinn vel meðan hann dvaldi hér. Auk þess að taka þátt í stórstúkufundinum, heim sótti hann stúkur í Reykjavík, Hafnar- firði, Keflavík og Akureyri og kynnti sér starf þeirra á þessum stöðum. — Einnig var hann á almennum fundi templara í Reykjavík og að síðustu í kveðjusamsæti. Hann hafði og samband við áfengisvarnaráðið, framkvæmda- nefndir umdæmisstúku Suðurlands og Þingstúku Reykjavíkur. Stórstúka Is- lands hélt honum kaffisamsæti, áfengis- varnarráð veitti myndarlegan miðdegis- verð og tvær stúkur í Reykjavík höfðu kaffisamsæti í sambandi við fundi sína, og líkar móttökur voru honum veittar að öðrum stöðum. Á öllum þessum fundum og í samsætunum, hafði hann sinn boðskap að flytja. Mest formfesta og mestur glæsibragur var á fundi þeim, sem stúkan Frón efndi til handa þess- um gesti okkar. Á fundi þessum var há- tíðlegt snið og til alls vel vandað. — Fundarsalurinn var fagurlega búinn, lýstur vel og skreyttur íslenzkum og sænskum fánum og fána reglunnar. Á öllum borðum voru borðfánar, blóm og blaktandi kertaljós, ræðustóll var skreyttur reglufánum, tvö hljóðfæri voru á palli og þar skorti ekki neitt til að setja hátíðarsvip á fundinn. Karl Karls- son, æðstitemplar stúkunnar, stjórnaði fundinum, en fyrsta og aðalávarpið flutti Lúdvig C. Magnússon, umboðs- maður stórtemplars í stúkunni. Hann mælti á dönsku og sagðist vel. Þar næst tóku til máls Karl Wennberg, Bjöm Magnússon, prófessor, þáverandi stór- templar, séra Kristinn Stefánsson og fleiri, og var töluð ýmist íslenzka, sænska eða danska. Karl Wennberg sæmdi nokkra af fundarmönnum merki alþjóða hástúk- unnar. Helztu skemmtiatriði fundarins / ræðustólnum er umboðsmaður stórtemplars í stúkunni, Ludvig C. Magnússon. Fyrir framan hann, talið frá hægri: Karl Wennberg, forstjóri, Björn Magnússon, próf., þá- verandi stórtemplar, Karl Karlsson, æðstitemplar stúkunnar og Jón Hafliðason, fræðshi- stjóri stúkunnar. Framhluti fundarsálsins. Fyrir miðju situr varatemplar, Sigríður Jónsdóttir.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.