Eining - 01.07.1955, Qupperneq 13

Eining - 01.07.1955, Qupperneq 13
EINING 13 og þar á meðal í Reykjavik, enda eru nú vínveitingahúsin þar orðin 6. Það er ómetanlegt að eiga að nefnd í hverjum kaupstað og hreppi í landinu til varðveizlu bindindis og reglusemi. Vér leggjum því kapp á að fá þær til starfa gegn áfengisneyzlunni og til að varðveita fagurt mannlíf í byggðum vorum og bæj- um. Þakka ég hér með mörg góð bréf og uppörvandi frá nefndarmönnum í öllum fjórðungum landsins. Síðastliðinn vetur gaf áfengisvarnaráð út bækling um áfengismál í 30000 eintök- um. Var hann sendur öllum nefndunum, og fræðslumálastjórnin tók góðfúslega að sér að dreifa honum í alla framhalds- og menntaskóla landsins. Ráðið hefur úthlutað styrk til bindindis- félaga og stofnana, sem hafa ekki sérstak- an styrk úr ríkissjóði, með því skilyrði, að þau geri grein fyrir í árslok, hvernig styrknum hafi verið varið, og sendi jafn- framt rekstrarreikning sinn yfir árið til ráðsins. Þessi félög hafa fengið heitorð um styrk og þegar greiddan hluta af hon- um flest: Bindindisfélag kennara (ætlast til að það annist samning handhægs ritl- ings handa barna- og gagnfræðaskólum, en ráðið gefi út. og haldi námsskeið fyrir kennara), Bindindisfélag ökumanna (fær Norðmann hingað til lands í ágúst til þess að leiðbeina hér á sviði umferðarmála m. m.), Samband bindindisfélaga í skólum, Félag fyrrverandi drykkjumanna, Sam- vinnunefnd bindindismanna (mestur hluti til blaðsins EININGAR, sem allir formenn áfengisvarnanefnda fá senda og áfengis- varnaráð fær rúm í fyrir fregnir af störfum sínum og ýmsu öðru), Bindindis- félag presta, áfengisvarnanefnd kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði og Bindindis- bókasafn, sem innan tíðar verður opnað til lestrar hér í bænum. — Hefur dómsmála- ráðuneytið lagt samþykki sitt á þessa út- hlutun. Enn fremur hefur í-áðið úthlutað nokkru fé til áfengisvarnanefnda, til styrktar starf- semi þeirra, að sjálfsögðu yfirgnæfandi til nefndastarfsemi í kaupstöðunum og stærri kauptúna. — Þá hefur ráðið heitið sumar- námsskeiði fyrir börn og unglinga að Jaðri nokkrum styrk á næstu mánuðum. Geta skal þess enn, að ráðið sendir Kjart- an J. Jóhannsson, lækni og alþm., er á sæti í áfengisvarnaráði, á sumarnámsskeið í Genf. er haldið verður 8.—19. ágúst n. k. Að námsskeiðinu stendur alþjóðlegt félag^ er vinnur að því að koma í veg fyrir áfeng- isneyzlu. Flytja þar erindi margir hinir kunnustu sérfræðingar á sviði geðsjúk- dóma og alkóhól-sjúkdóma. Hefur áfengis- varnaráðunautur haft milligöngu, en hann á sæti í framkvæmdanefnd þessa félags af hálfu íslands. Bindindisfélag íslenzkra kennara sendir Guðjón Kristinsson, gagnfræðaskólastjóra á ísafirði, á bindindisfræðslu-námsskeið, er Samband bindindisfélaga kennara í Finn- landi gengst fyrir í júlímánuði, og styrkir áfengisvarnaráð hann einnig til fararinn- ar, en jafnframt fer Guðjón til Stokkhólms í erindum ráðsins til þess að kynna sér nýjungar um fræðslukvikmyndir við bind- indisfræðslu, en Svíar og Finnar standa mjög framarlega um bindindisfræðslu. — Væntum vér góðs af för þessara tveggja ísfirðinga austur um haf á næstu mán- uðum. Um þessar mundir skrifar áfengisvarna- ráð ýmsum félögum og félagasamböndum og býður þeim aðild að Landssambandi gegn áfengisbölinu, sem ráðið gengst fyrir að stofna í október n. k. Um það leyti hefur ráðið og áformað að stofna til bindindis- sýningar hér í bænum, er skólar hafa tekið til starfa. Þá hefur talsvert mætt á áfengisráðu- naut, ráði og skrifstofu um að vera til ráðuneytis ríkisstjórn um samning reglu- gerða og erindisbréfa, samkvæmt áfengis- lögunum. Þýdd eru nú og gefin út áfengis- lögin á dönsku, ensku, þýzku og frönsku, og hefur skrifstofan sent þau til margra Frá áfengisvarnaráði Áfengisneyzla. Ár A. Sterkir drykkir B. Heit vín og borðvín A+B Ltr. á íb. Hlutf.t. Ltr. á íb. Hlutf.t. Ltr. á íb. Hlutf.t. 1951 1.304 155 0.099 155 1.403 155 1952 1.245 148 0.089 139 1.334 148 1953 1.356 162 0.096 150 1.452 161 1954 1.453 173 0.107 167 1.560 173 Áfengisneyzla norrænu þjóðanna í 100% alkohol-lítrum á hvert mannsbarn: Ár Danmörk Finnland ísland Noregur Svíþjóð 1951 3.00 1.79 1.40 2.08 3.49 1952 3.02 1.87 1.33 2.12 3.71 1953 3.20 1.84 1.45 2.05 3.83 1954 1.56 2.14 3.72 Skrá um tölu þeirra, er sviptir hafa verið ökuleyfi vegna ölvunar árin 1953 og 1954: Reykjavík 184—204 Akranes 2— 1 Akureyri 16— 12 Gullbr. & Kjós. og Hafnarfj. 23— 23 (fyrra árið 2 seinna árið 11 ísafjarðarkaupstaður 3— 1 Keflavíkurflugvöllur . 3— 68 Keflavík 2— 5 Kærur fyrir ölvun í Reykjavík Ár Á þúsund íbúa {%) 1951 34.9 1952 34.0 1953 46.7 1954 57.9 + 3 Am. Sala á hvert mannsbarn á fslandi af áfengi frá Áfengisverzlun ríkisins eftir útreikningi Hagstofunnar: Árið 1951 ............................... kr. 457,00 — 1952 ..............................— 433,00 — 1953 .............................. — 507,00 — 1954 ..............................— 547,00 Hreinn ágóði ríkissjóðs af áfengissölu 1951—1954 incl. í hlutfalli við heildartekjur Ár Ágóði ríkissjóðs % 1951 54.6 millj. kr. 13.2 1952 52.3 — — 12.5 1953 62.8 — — 12.3 1954 68.5 — — Ekki enn vitað. Sala áfengis. Áfengisverzlun ríkisins hefur sent oss eftirfarandi skrá um sölu áfengis 1. og 2. ársfjórðung 1955: l./.l—31.3. 1./4.—30.6. Samtals kr. í og frá Reykjavík ...... kr. 16.049.421,00 kr. 18.860.337,00 = 34.909.758,00 ---------Seyðisfirði ....... — 261.613,00 — 434.920,00 = 696.533,00 ----— Siglufirði ....... — 1.035.387,00 — 1.286.629,00 = 2.322.016,00 Samtals kr. 17.346.421,00 kr. 20.581.886,00 = 37.928.307,00 Árið 1954 var selt allt árið: í og frá Reykjavík fyrir ......................kr. 76.891.088,00 ----— Akureyri .............................. — 384.590,00 ----------Seyðisfirði ............................ — 1.899.429,00 ----— Siglufirði ............................ — 5.022.422,00 Samtals kr. 84.197.529,00 Áfengisvarnaráðunauturinn. Reykjavík, 20. júlí 1955. Brynleifur Tobiasson.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.