Eining - 01.06.1956, Blaðsíða 2
2
EINING
SkrúSgangan.
Fundir setja aðalsvipinn á vetrarstarfið,
en ferðalög og námskeið á sumarstarf-
ið. Börnin eru látin starfa sem mest.
Þau inna af höndum fjölbreytt starf á
hverjum fundi, sem öll miða að aukn-
um þroska þeirra. Gæzlumenn fórna
miklum tíma vegna þessa starfs, sumir
ævilangt. Margir foreldrar viðurkenna
að verðleikum störf barnastúknanna og
vilja láta börn sín starfa þar, enda
eru þær hinn bezti skóli á margan hátt.
Duglegir starfsmenn barnastúknanna
hafa oft valizt til forystu í öðrum félög-
um, síðar á ævinni, ekki sízt vegna
þjálfunar og kunnáttu á sviði fundar-
starfa og félagsmála. —
Auk venjulegra fundarstarfa gera
börnin sitt hvað sér til skemmtunar á
hverjum fundi. Sögur eru lesnar og
sagðar, hljómlist æfð, sjónleikir sýndir
o. fl. o. fl., svo eitthvað sé nefnt. Gæzlu-
menn og aðrir fullorðnir templarar sjá
oft um fræðslu og skemmtiatriði. —
Jólaskemmtanir heldur hver barna-
stúka árlega. Stúkur í fjarlægum lands-
hlutum skrifast á og kynnast á þann
hátt. Hátíðisdagur unglingareglunnar
er nú haldinn í febrúar ár hvert. Margar
barnastúkur eiga aðgang að kvikmynda-
og skuggamyndavélum, svo og segul-
bandstækjum, sem allt eykur fjöl-
breyttni í félagsstarfinu. Margar barna-
stúkur hafa fyrr og síðar fengizt dálítið
við ræktunarstörf, bæði garðrækt og
trjárækt. Síðan 1948 hafa ungtemplar-
ar í Reykjavík haldið námskeið að Jaðri
fyrir börn og unglinga, svo sem frá
hefur verið skýrt í blöðum og útvarpi.
Þar læra börnin gróðursetningu og hirð-
ing plantna, ýmsa innivinnu, leiki o. fl.
Námskeið þessi hafa verið vinsæl og
vel sótt. Síðastl. sumar sóttu nær 300
börn námskeið þessi. Svipuð starfsemi
er fyrirhuguð að Jaðri nú í sumar. For-
stöðumaður verður hinn sami, Ólafur
H. Árnason, skólastjóri í Stykkishólmi.
Á leiksviSinu í Austurbæjarbió.
voru 30. Fyrsti æðsti templar stúkunn-
ar var Friðrik Hallgrímsson, síðar dóm-
prófastur, þá 13 ára gamall, en fyrsti
gæzlumaðurinn var Björn Pálsson.
Æskan er fyrsta barnafélagið, sem
stofnað var hér á landi. Frumkvæði að
stofnun Æskunnar átti St. ,,Verðandi“
nr. 9, sem enn er verndarstúka hennar
ásamt st. ,,Einingin“ nr. 14. Æskan
hefur jafnan verið — og er ennþá —
í röð fremstu barnastúkna á landi hér,
bæði að félagafjölda og framkvæmdum
öllum. Hún hefur oftast átt ágætu starfs-
liði á að skipa og er svo enn. Núver-
andi gæzlumenn stúkunnar eru frú
Sigrún Gissurardóttir og Ólafur Hjartar,
kennari.
Útbreiðslan.
Árið 1886 voru stofnaðar 5 barna-
stúkur alls. Félagar voru 200 í lok
ársins. En síðan fjölgaði þeim stöðugt.
Á 25 ára afmæli félagsskaparins voru
barnastúkurnar 40 með 2400 félögum.
Nú eru þær 60 með um 6400 félögum.
Síðasta áratuginn hafa ungtemplarar
verið um 6000 að jafnaði.
Stjórn og starfsmenn.
Síðan 1925 hefur unglingareglan
háð þing sitt árlega. Áður fjallaði stór-
stúkuþing um öll mál hennar. Unglinga-
regluþingin eru einungis ráðgefandi, því
að framkvæmdavaldið er í höndum
stórstúkuþinga og stórgæzlumanns, sem
á sæti í framkvæmdanefnd Stórstúku
íslands. Til aðstoðar stórgæzlumanni
eru umdæmis- og þinggæzlumenn. Hver
barnastúka hefur gæzlumenn, einn eða
fleiri, en börnin sjálf sjá um stjórn
hvers fundar — og framkvæmdir milli
funda — undir leiðsögn þeirra. Lög
Reglunnar eru þannig, að fjöldi félaga
tekur jafnan þátt í starfinu. Þar, sem
undirstúkur starfa á sama stað og
barnastúkur, eru þær fyrrnefndu vernd-
arstúkur hinna og styrkir þær í starfi,
t. d. með fjárframlögum, ókeypis hús-
næði o. fl. Annars starfa barnastúkurn-
ar sjálfstætt.
Alls hafa 18 menn gegnt starfi stór-
gæzlumanns, síðan 1886. Lengst hefur
starfað Jón Árnason, prentari, 14 ár
alls. Sjö ár voru þeir hver um sig,
Magnús V. Jóhannesson, framfærslu-
fulltrúi, Steindór Björnsson, frá Gröf
og Hannes J. Magnússon, skólastjóri,
en 6 ár þau Þorvarður Þorvarðarson,
prentsmiðjustjóri og frú Þóra Jónsdótt-
ir, Siglufirði. Núverandi stórgæzlumað-
ur er Gissur Pálsson, rafvirkjameistari.
Mikill fjöldi manna hefur gegnt störf-
um gæzlumanna öll þessi ár — sumir
þeirra allt að 50 árum eins og t. d.
Jón Þ. Björnsson skólastjóri á Sauðár-
króki og Sigdór V. Brekkan, kennari á
Norðfirði. Rúmsins vegna er ekki unnt
að nefna fleiri nöfn, en víst er, að allir
þessir sjálfboðaliðar í uppeldisstarfinu
eiga skilið alþjóðarþökk fyrir fórnfýsi,
drengskap og dáð, sem þeir hafa sýnt
í störfum sínum fyrir þetta mikilsverða
menningarmál.
Fjárhagur.
Barnastúkurnar hafa lítil félags-
gjöld og eiga því litla sjóði, en fjárhag-
ur þeirra hefur farið batnandi síðustu
árin. Árið 1946 eru eignir taldar rúml.
30 þús. kr., en 1955, 173 þús. Stór-
stúkan hefur styrkt starfið síðustu árin
með 10 þús. kr. árlega. Hefur því fé
verið varið til útbreiðslu að mestu leyti,
en nú síðustu árin einnig til námskeið-
anna að Jaðri.
Einn sjóður er til hér í Reykjavík,
sem styrkir barnastúkustarfið. Ber hann
nafnið Bryndísarminning. Gissur Páls-
son, stórgæzlum. og kona hans, frú Sig-
þrúður Pétursdóttir, stórvarat. stofnuðu
sjóð þennan til minningar um dóttur
sína, Bryndísi, er andaðist 9. sept. 1948,
níu ára að aldri. Er sjóðstofnun þessi
bæði fögur og eftirbreytnisverð.
Templarar á Akureyri hafa haft með
höndum þróttmikið tómstundastarf í fé-
lagsheimili sínu, svo sem skýrt hefur
verið frá í blöðum og útvarpi. Börn og
unglingar njóta þess í ríkum mæli.
Unglingareglan hefur margvísleg
störf með höndum ár hvert, svo sem
lesendum þessa blaðs er kunnugt. —
Ungmennastúkur.
Nokkuð hefur borið á því að ungl-
ingar hverfi úr röðum templara, þegar
starfi þeirra er lokið í barnastúkunum,
en taki ekki til starfa í undirstúkum.
Til þess að brúa bilið á milli þessara
Starfið.