Eining - 01.12.1956, Qupperneq 8

Eining - 01.12.1956, Qupperneq 8
8 EINING E I N I N G MánaSarblaS um bindindis- og menningarmál. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Pétur Sigurðsson. Blaðið er gefið út með nokkrum fjárstyrk frá Stórstúku íslands og ríkinu. Afgreiðsla þess er á skrifstofu blaðsins, Suðurbraut 6, Kópavogi. Árgangurinn kostar 30 krónur. í lausasölu kostar blaðið 2 krónur. Sími: 5956. Huggun fyrirheitanna ndislegt er að lifa í eftirvæntingu þess, sem hjart- fólgnast er. T. d. að eiga von á samfundum bezta vinarins eða ná því marki sem heitast er þráð. Á öllum öldum hefur mannkynið lifað í eilífri þrá, en sjaldnast gert sér ljóst, hvað það hefur þráð, og enn síður, hver væri öruggasta leiðin til uppfyllingar hinna hjartfólgnustu óska mannssálarinnar. Sökum vöntunar á þessum skilningi og sjálfsþekkingu, hafa menn oftast girnst að sitja við skilningstréð og njóta ávaxta þess, öllu fremur en una í barnslegri einfeldni við lífstréð. Við hlaupum ákaft eftir öllum fróðleik og trúum slægum orðum freistarans, að á þann hátt getum við orðið Guði líkir, og í þessari ákefð okkar gleymum við svo að rækta góðleikann í hjörtum okkar og mannfélaginu. Þetta er þó hin eina endanlega lausn allra vandamála þjóðanna. Menn bera sig borginmannlega og telja sig ekki hafa þörf fyrir neinn lausnara, en breytni þeirra afsannar þessa hreystimennsku þeirra. Sést það bezt á því, hve fljótar þjóð- ir eru að hnypra sig upp að einhverjum djörfum mönnum, sem kjósa sig sjálfir til þess að vera leiðtogar þeirra. Þetta á sér stað enn í dag og eru dæmin deginum ljósari. Ef til vill hefur mannkynið aldrei þráð heitar en einmitt nú lausn frá geigvænlegum vandamálum þess. Enn í dag þarfnast það frelsara, og enn einu sinni eru jólin að koma til þess að minna okkur, kristna menn á friðarhöfðingj- ann. Hann kom í ,,fy|ling tímans“ og var fylling fyrirf heitanna, sem verið höfðu huggun undanfarinna kynslóða. Þegar hann kom voru þar nokkrir, sem „væntu huggunar fsraels." Hin mikla hætta okkar er enn þessi, að friðarhöfð- inginn er ekki hávaðamaður, hann hrópar ekki eins hátt og sumir þeirra manna, er kjósa sig leiðtoga þjóða, og þess vegna fá þeir oft meira fylgi en hann. Enn í dag er heimsins mesta þörf friður, rósemd hjartans og huggun. Að minnsta kosti um jólin megum við unna sál- um okkar hvíldar frá öllum eltingaleiknum um fróðleik og ástunda í þess stað góðleik og flytja þannig Guðs ríkið niður á jörðina. Við snúum okkur þá að fyrirheitunum og finnum þar hugsvölun. Sá, sem leitar hælis hjá mér, mun erfa landið og eignast mitt heilaga fjall. Og sagt mun verða : Leggið braut, leggið braut, greiðið veginn, ryðjið hverjum ásteitingarsteini úr vegi þjóðar minnar ! Því að svo segir hinn hái og háleiti, hann sem ríkir eilíflega og heitir Heilagur : Ég bý á háum og heilögum stað, en einnig hjá þeim, sem hafa sundurkram- inn og auðmjúkann anda, til þess að lífga anda hinna auð- mjúku og til þess að lífga hjörtu hinna sundurkrömdu. — Jesaja 57,13-15. Þér þekkið náð drottins vors Jesú Krists, að hann, þótt ríkur væri, gerðist yðar vegna fátækur, til þess að þér auðguð- ust af fátækt hans. — 2. Kor. 8, 9. Og engillinn sagði við þá : Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum, því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur drott- inn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks : Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu. Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu : Dýrð sé Guði í upphœðum, og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hann hefur velþóknun á. Og sjá, í Jerúsalem var maður að nafni Símeon, og maður þessi var réttlátur og guðrækinn og vænti huggunar ísraels, og heilagur andi var yfir honum. Og honum hafði verið birt það af heilögum anda, að hann skyldi ekki dauðann sjá, fyrr en hann hefði séð drottins smurða. Hann kom af tillaðan andans í helgidóminn, og er foreldrarnir komu inn með barn- ið Jesúm, til að fara með það eftir reglu lögmálsins, þá tók hann það í fang sér og lofaði Guð og sagði : Nú lcetur þú, herra, þjón þinn í friði fara, eins og þú hefur heitið mér því að augu mín hafa séð hjálprœði þitt, sem þú hefur fyrirbbúið í augsýn allra lýða, Ijós til opinberunar heiðingjunum, og til vegsemdar lýð þínum ísrael. — GLEÐILEG JÓL. Lúk. 2,10-14; 25-32. Hinn mikli misskilningur rottinn alvaldur sat í hásæti sínu. Um hann var hin mikla hirð : höfuðenglar, fulltrúar, hjálpar- sveitir og vérndarenglar þjóða. Frá Jörðu berast kynleg tíðindi, sagði drottinn alvaldur. Hver vill fara til Jarðar og kynna sér til hlýtar lífskjör og háttu mannanna ? Þá stóð upp höfuðengillinn, Réttsýnn og sagði: Ég skal fara. Gott er það, sagði drottinn alvaldur. Þú sér alltaf hið rétta og munt skýra frá satt og rétt. Höfuðengillinn Réttsýnn brá sér til Jarðar, fór víða um álfur og lönd, kom á mörg heimili ríkra og fátækra, í kirkj- urnar, skólana, kvikmyndahúsin, leikhúsin, danssalina, veit- ingahúsin og knæpurnar, í löggjafarþingin, herbúðir her- mannanna, fangelsin, sjúkrahúsin, í skipin til sjómannanna, verksmiðj urnar, kolanámurnar, og yfirleitt alls staðar þar sem menn búa og hafast að eða dvelja sem fangar eða frjálsir. Að loknu öllu sínu mikla rannsóknarverki á Jörðu, hvarf höfuðengillinn Réttsýnn heim aftur og gekk fyrir drottinn alvaldan. Mér sýnist þú vera orðinn fremur fölur yfirlitum og hár þitt hafa gránað, herra Réttsýnn, sagði drottinn alvaldur. Er svo, herra ? sagði höfuðengillinn Réttsýnn. Það er ekki sársaukalaust að litast um hjá Jarðarbúum og kynnast lífi þeirra. Búa Jarðarbúar við þjáningar ? spurði drottinn alvaldur. Já, herra, svaraði Réttsýnn. Margir þeirra búa við þjáning- ar. Sumir eru sjúkir og þjáðir, aðrir líða skort, og þeir, sem hafa alls nægtir, skapa sér alls konar armæðu og erfiðleika, og búa því margir í ósátt við sína nánustu og samverkamenn sína. Slys eru tíð á sjó og landi er valda miklu manntjóni, einnig náttúruhamfarir, jarðskjálftar, flóð og eldgos. Og svo heyja þjóðirnar hryllilegar styrjaldir, milljónir manna farast, fjöldi manna sitja fangar við illa aðbúð, milljónir barna verða munaðarleysingjar, konur einstæðingar og fjöldi manna að- þrengdur á marga vegu. Margir eiga um sárt að binda, tára- flóð rennur, angistarstunur stíga víða upp til himins, og á öðrum nær hatur og gremja tökum. Hvar unir fólkið sér bezt og um hvað hópast það helzt ? spurði drottinn alvaldur. Leitar það sér ekki huggunar og

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.