Eining - 01.04.1957, Side 2
2
EINING
dvaldi hér einn dag, miðvikudaginn 20.
marz sl. Okkur, Brynleifi Tobiassyni og
undirrituðum, gafst færi á að vera með
honum mestan hluta dagsins og kynn-
ast starfi hans eftir föngum. Forsetinn,
herra Asgeir Ásgeirsson, og forsætis-
ráðherra, hr. Hermann Jónasson, veittu
honum góðfúslega áheyrn. Á fundi með
blaðamönnum og nokkrum forgöngu-
mönnum bindindismála sagði prófessor
Scharffenberg okkur svo nokkrar frétt-
ir af ferðalögum sínum og bindindis-
starfinu. Að þessu sinni var hann boð-
inn sérstaklega til Þýzkalands til þess
að flytja fræðsluerindi í hópi yfirmanna
Bandaríkjahers í Þýzkalandi. Voru þeir
um 250 talsins, og tjáðust ekki hafa
fengið neina slíka fræðslu áður um á-
fengismál, en yfirmönnum hersins er
uppálagt að hvetja til bindindis, sjá um
að hófs sé gætt, en refsa óreglu.
Fordœmi þjóðhöfðingja og þjóðstjóra.
Eitt af því, sem prófessor Scharffen-
berg vinnur að á ferðum sínum, er að
fá konunga, forseta, ráðherra, þing-
menn, háskólarektora og fleiri slíka fyr-
irmenn til þess að undirrita loforð um,
að veita ekki áfenga drykki í neinum
þeim veizlum, er þeir ráða yfir. Scharf-
fenberg sýndi okkur slíkt skjal og skildi
það eftir hjá nokkrum mönnum hér til
athugunar. Einn þurfti ekki að hika neitt
við að undirrita það, Pétur Ottesen al-
þingismaður.
Fimm ríkisstjórnir hafa þegar undir-
ritað plaggið: Indlands, Burma, Ceyl-
ons, Egyptalands og Saudi-Arabíu. For-
sætisráðherra Indlands hafði reyndar
sagt, að hann þyrfti ekki að undirrita
þetta skjal, því að í Indlandi færu þeir
lengra, þeir bönnuðu áfengið algerlega.
Engin þjóð tekur nú þau mál eins föst-
um tökum og Indverjar, og þeim gefst
áfengisbannið vel.
Magsaysay, hinn vinsæli forseti Fil-
ippseyja, sem nýlega fórst í flugslysi, var
góður vinur Scharffenbergs, og harmaði
hann mjög fráfall þess manns, er var
mjög sterkur og ákveðinn bindindismað-
ur um bæði vín og tóbak.
Auk ríkisstjórnanna, er hér voru
nefndar, er vitað, að konungur Svía er
bindindismaður og veitir ekki áfenga
drykki. Hið sama gildir, fullyrti Scharf-
fenberg, í Hvíta húsinu í Bandaríkjun-
um. Forsætisráðherra Hollands tekur
líka algera afstöðu gegn áfengisneyzl-
unni. Um 25 ráðherrar í ýmsum lönd-
um hafa undirritað heitið um áfengis-
lausar veizlur á þeirra vegum. Þá hafa
um hundrað þingmenn í Englandi ýmist
undirritað það eða tjáð sig fúsa til þess.
7 af 15 ráðherrum Finnlands eru bind-
indismenn. Fleira af þessu mætti telja
fram, og allt eru þetta góðar og upp-
örvandi fréttir.
Markmiðið með þessari liðsbón hjá
forustumönnum þjóða er það að
hnekkja valdi drykkjusiðanna, bæði í
veizlum ríkisstjórna og annarra fyrir-
manna og einnig í samkvæmum.
Drykkjusiðirnir eiga ekki að tilheyra því,
sem talið er ,,fínt“, heldur þvert á móti
að víkja sem leifar af fornri villi-
mennsku.
Þetta alþjóðaráð, sem hér hefur verið
greint frá, hefur nána samvinnu við al-
þjóðabindindissambandið — Internatio-
nal Temperance LJnion, sem hefur að-
albækistöðvar sínar í Sviss og stendur
m. a. fyrir alþjóðabindindisþingum.
Prófessor Scharffenberg var hér gest-
ur áfengisvarnarráðs, Stórstúku Is-
lands og landssambandsins gegn áfeng-
isbölinu. Hann var góður gestur og flutti
góðar fréttir.
Að síðustu má hér geta þess til gam-
ans, að prófessorinn var gestur hans há-
tignar konungsins í Saudi-Arabíu í átta
daga. Honum var fengið til umráða á
meðan á dvölinni stóð, bæði bíll, bíl-
stjóri og vörður, var vistaður á hóteli,
þar sem allir vissu að hann var gestur
konungsins þessa daga og öll bezta
þjónusta var í té látin. Og svo komu
fjórir sendimenn konungs á flugvöllinn
með gjafir frá konungi, er Scharffen-
bergg hélt leiðar sinnar. Konungurinn
hefur óskað þess, að fyrsta þing hins
fjölmenna, 250 manna alþjóðaráðs
verði haldið í landi hans. I höfuðstað
þessa ríkis gildir sú regla, að sjáizt mað-
ur þar reykjandi, er hann tekinn fastur.
Allt bendir til þess, að þeim valdhöf-
um og áhrifamönnum fjölgi víðs vegar
um heim, sem nú snúast gegn erkióvini
mannkynsins — áfengisneyzlunni.
P. S.
Draumbíllinn
Motorföreren, inálgagn sambands bind-
indisfélaga ökumanna í Noregi, getur þess,
að ekki liafi aðeins mörg mannslíf farizt og
milljóna virði af margs konar dýrmœti,
þegar liafskipin miklu Stockholm og Andrea
Doria rákust á og hið síðarnefnda sökk,
heldur hafi þar og glatazt hlutur, sem óbœt-
anlegur sé Chrysler-bílagerðinni í Ameríku.
betta var nýr bíll, sem skírður hafði verið
Norséman. Hann átti að sýna hámark snilld-
ar stáliðnaðar og bílagerðar. Margir kunn-
áttumenn höfðu unnið að gerð bílsins á
þriðja ár, og til þessa hafði verið v.arið því,
sem svarar til hálfri annarri milljón norskra
króna. Sagt er að einn forstöðumanna
Chryslers hafi grátið, er lionum barst fregn-
in um afdrif bílsins, sem nú liggur á hafs-
botni.
Bíll þessi var hin mesta nýjung í allri
gerð, en ekki verður hennj lýst hér, auk
þess voru þar margir leyndardómar. Bíllinn
var vel tryggður og nú er hafin gerð á öðr-
um af sömu gerð. Blaðið segir, að þessi
nýja bílagerð muni örva hjartslátt allra
bílaunnenda.
Áttrœður:
Hannes Jónasson
bóksali á Siglufirði
Hannes Jónasson, bóksali, Siglufirði,
varð áttræður 10 apríl s. 1. Hannes er
ættaður úr Eyjafirði, fæddur að Ytri-
Bakka 10 apríl 1877, og voru foreldrar
hans Jónas Jónasson, sjómaður og
Maria Sigfúsdóttir.
Ungur missti hann föður sinn og átti
við erfið kjör að búa í æsku, en í Möðru-
vallasókn, æskustöðvum Hannesar, var
Möðruvallaskóli, helzta menntasetur
Norðurlands og þangað sá Hannes unga
menn streyma úr öllum landsfjórðung-
um. Þar lögðu þeir grundvöll að mennt-
un sinni, er þeir síðar juku við í skóla
reynslunnar. Möðruvellingar urðu marg-
ir þjóðkunnir menn og forystumenn í
menningar- og félagsmálum sinna hér-
aða.
Hannes þráði í æsku að komast í
Möðruvallaskóla, og honum varð að ósk
sinni og útskrifaðist úr skólanum 1898,
var hann jafnan síðan þakklátur fyrir þá
skólavist.
Á árunum 1899—1907 dvaldi
Hannes við verzlunarstörf á Akureyri,
en fluttist 1908 til Siglufjarðar. Ekki
mun hann í fyrstu hafa ætla sér að setj-
ast þar að, en hér fór sem oftar, að dvöl-
in varð lengri en í fyrstu var ætlað, og
hefur Hannes átt heima í Siglufirði öll
þessi ár og komið þar mjög við sögu.
Fyrstu árin var hann við verzlunar-
störf, en síðar verkstjóri hjá Sören
Goos, síldarkaupmanni, um 15 ára
skeið. En 1927 gerðist hann bóksali og
rekur enn bókaverzlun í Sigðlufirði.
Hannes Jónasson hefur komið mjög
við sögu Siglufjarðar um hálfrar aldar
skeið. Hann hefur gegnt fjölda trúnað-
arstarfa fyrir bæjarfélagið, verið í bæj-
arstjórn, stjórn sjúkrasamlags og bóka-
safns, sögufélags Siglufjarðar, svo
nokkuð sé nefnt.