Eining - 01.06.1962, Page 7
EINING
7
þessu æskufólki örlítið föstudagskvöldið 19.
maí, þá var danskvöld í æskulýðsheimilinu.
Ég sá unglinga dansa eftir grammófóns og
segulbandsmúsík. Mér var þá hugsað til ís-
lands, þar sem helzt duga ekki minna en
3—4 hljómsveitarmenn, svo unga fólkið geti
dansað. En þarna í Kiel blessaðist þetta á-
gætlega, og ekki var annað að sjá en allir
skemmtu sér hið bezta. Þess skal getið að
dansað var í tveimur stofum. í annarri
dönsuðu 14—16 ára unglingar, en í hinni
17 ára og eldri. Nagler hefur slík danskvöld
vikulega í æskulýðsheimilinu. Mér sýndist
mjög geðþekkur blær yfir þessu kvöldi, sem
mér gafst tækifæri að sjá og fylgjast með.
Unga fólkið dansaði af miklu fjöri og
Nagler umsjónarmaður sagði mér að þýzk
æskulýðsheimili teldu mikinn ávinning að
slíkum unglinga dansleikjum, þar sem ung-
lingar skemmtu sér án áfengis og foreldrar
gætu verið óhrædd um börn sín fyrir spill-
andi nætursvalli og slæmum félagsskap.
í samræðum við unga fólkið heyrði ég,
að það taldi áfengið mesta slysavald í hinni
miklu umferð bæjanna, spillti hamingju
fjölda heimila og stefndi æskunni á óhollar
brautir. Dagurinn ber mér ijúfar minning-
ar um æskuglaða unglinga með heilbrigðar
lífsskoðanir.
G. Þ.
-K -)< -K
Gunnar Þorláksson, for-
maöur UT-félags stúkunn-
ar Einingar, var á vor-
þingi Umdæmisstúkunnar
nr. 1 kosinn umdæmis-
gæzlumaður ungtemplara
á Suöur- og Vesturlandi. —
Við bjóSum Gunnar vel-
kominn til slarfa.
-x -K *
Ágætur félagsskapur, ÞjóSdansafélagiS,
hefur starfað í Reykjavík um rúmlega 10
ára skeið. Þjóðdansafélagið vinnur merki-
legt brautryðjendastarf á sviði þjóðdansa.
Tilgangur félagsins er fyrst og fremst sá,
að endurvekja gamla íslenzka dansa og
þjóðlög og gamla búninga. Árlega efnir fé-
lagið til námskeiða í þjóðdönsum, bæði fyr-
ir börn og fullorðna, en kenndir eru þar
hvorutveggja íslenzkir og erlendir dansar,
auk söngkennslu. Hefur starfsemi þessi not-
ið vinsælda. Félagslíf hefur verið gott hjá
þjóðdansafélaginu. Á samkomum og
skemmtunum þess hefur alltaf ríkt heil-
brigt skemmtanalíf, þar sem áfengisneyzla
er óþekkt.
Mgnd þessa af Grund í EyjafirSi lók norskur ferðamaður, P. .1. Sörk, fyrir nokkrum
áratugum.
Hættum að dýrka heimskuna
Sl. Sunnudag hélt Félag ungra Fram-
sóknarmanna unglinga-„Bingó“ að Hót-
el KEA. Húsfyllir var og mikill áhugi
ríkti meðal hinna ungu samkomugesta.
Guðmundur Karl Pétursson, yfir-
læknir, flutti þarna kjarnyrt og þrótt-
mikið erindi um skaðsemi tóbaks. Yf-
irlæknirinn skýrði m. a. frá niðurstöð-
um nefnda, sem skipaðar voru færustu
vísindamönnum, og komust þær allar að
sömu niðurstöðu, að sígarettureykingar
auka og margfalda hættuna á lungna-
krabba, hjartasjúkdómum og bronkítis,
og eru því viðsjárverð drápstæki. Þá
minntist yfirlæknirinn líka á, að lungna-
krabbi er þjáningarfullur og ógnvekj-
andi sjúkdómur. Og þar sem reyking-
ar eru höfuðorsök hins ört vaxandi
lungnakrabba er ljóst, að við sjálf höf-
um það á valdi okkar, að fækka stór-
lega lungnakrabbatilfellum með því ein-
faldlega, að reykja ekki. Þeir, sem aldrei
byrja á því að reykja, eiga ekki á hættu
að verða lungnakrabbanum að bráð.
Því mælir öll skynsemi með því að
byrja aldrei á þeirri vitleysu, því að
enginn veit fyrirfram um afleiðingarn-
ar. Að lokum hvatti ræðumaður hinn
fríða hóp til að mynda öflugt tóbaks-
bindindisfélag, sjálfum sér til heilla og
hamingju, en Akureyrarbæ til mikils
sóma og vegsauka. Yfirlækninum var
þökkuð þessi ágæta ræða með dynjandi
lófataki.
Ég þakka F.U.F. fyrir þeirra góða
framtak, sem var þeim til sóma og ég
vona góðu málefni ávinningur. — Þessi
skemmtun var til fyrirmyndar og ein-
mitt þannig á allt ungt fólk að skemmta
sér — hvar sem er — í skólunum, á
opinberum stöðum, úti og inni — án
tóbaks og án áfengis. Æskufólk, þið
vitið, að áfengi og tóbak á ekki neina
jákvæða hlið, en fjölmargar neikvæðar,
sem þið öll þekkið, fleiri eða færri. Tó-
baks- og áfengisnautn flytur með sér
sjúkdóma og sorgir, og oft fjárhagslega
erfiðleika og áhyggjur. Það eru því síð-
ur en svo æskilegir förunautar, og þið
eigið að hafna þeim skilyrðislaust.
Einhvers staðar stendur: „Mannap-
inn horfði svo lengi upp í himininn, að
hárin hættu loks að vaxa á enni hans.“
Við viljum víst ekki láta telja okkur
til apa, nú á tímum, og hárið er löngu
dottið af enni okkar. En sýnum það þá,
að við stöndum öpunum eitthvað fram-
ar. Hættum að apa heimskuna hvert
eftir öðru. Horfum til himins, til ljóss-
ins. Þar býr gæfa okkar í nútíð og
framtíð, og það mun áreiðanlega auð-
velda okkur að vaxa frá soranum og
gleyma jafnauvirðilegum hlutum sem
áfengi og tóbak vissulega er.
J. K.
-□-
GJAFIR OG GREIÐSLA
TIL BLAÐSINS
Stefán Guðmundsson, Hólum, Dýrafirði,
150 kr., frú Hjaltína M. Guðjónsdóttir,
Núpi, Dýrafirði, 150 kr., frú Sigurlaug Er-
lendsdóttir, Laugarvatni, 100 kr., NatManael
Mósesson, Þingeyri, Dýrafirði, 100 kr., Sig-
urður Kristjánsson, Leirhöfn, N-Þing., 500
kr., Kristján Sigfússon, kaupmaður, Reykja-
vík, 200 kr., frú Guðný Gilsdóttir, Arnar-
nesi, Dýrafirði, 100 kr., Árni Vilhjálmsson,
Reykjavík, 100 kr. frú Bjargey Pétursdóttir,
ísafirði, 300 krónur. Guðjón Jónsson,
Tunguhálsi, Skagafirði, 300 kr. Þórarinn
Magnússon, Reykjavík, 100 kr., Carl Ryden,
kaupmaður, Reykjavík, 100 kr. Sigurður
Vilhjálmsson, Hánefsstöðum, Seyðisfirði,
100 krónur. Bezlu þakkir.