Eining - 01.01.1964, Blaðsíða 1

Eining - 01.01.1964, Blaðsíða 1
^^ijróti g-eátur áróinó nijjci Stíg inn um dyrnar — okkar fyrstur ársins gesta, Drottinn Kristur. Vígðu bæ með blessun þinni, birta lát í veröldinni. Sérhver höll og hreysi verður helgidómur fagurgerður, þar sem inn þú, Kristur kemur, kveikir ljós og friðinn semur, unað veitir, eyðir kvíða, eflir þá, sem líða og stríða. Með þér kemur ársins auður, auðgast sá, sem fyrr var snauður, blessast störf og bóndans hagur, bjartur verður hver einn dagur. Ef þú blessar land og lýð, leysist vandi, endar stríð. Sældar öld og ár upp rennur og í hjörtum manna brennur ást til Guðs og allra manna, alls hins góða, fagra, sanna. Veröld drottins verður ný, víkja burt öll stormaský. Kveð þú dyra, Drottinn Kristur, dagsins nýja allra fyrstur. Ársins nýja góði gestur, gjöfull, ríkur, allra beztur. Vertu fylling fátæks hjarta, ferðavilltum ljósið bjarta, helgur vörður heimilanna, Herra og Drottinn allra manna. Já, komi Drottinn Kristur inn, komi í bæinn þinn og minn, víkja mun þá voði og fár, og verða gott hið nýja ár. Góðtemplarareglan á íslandi áttatíu ára Afmæli þetta var allmikill viðburður í sögu reglunnar hér á landi. Á slíkum tímamótum líta félagar hennar um öxl og hyggja að sögu hennar, til lærdóms og ánægjulegra minninga, og fram á við í trú á forsjónarhandleiðslu, trú á góðan málstað, trú á sigurmátt sann- leika og réttlætis, og í trausti til góðra manna um mikilvæga liðveizlu. I sambandi við þetta merkisafmæli reglunnar, sýndu margir aðilar henni gestrisni og vinsemd. Dagblöðin og út- varp gerðu henni góð skil, og nokkrir æðstu menn þjóðarinnar sendu henni hlýjar heillaóskir. Skeytin sendu: for- setinn herra Ásgeir Ásgeirsson, forsæt- isráðherra Bjarni Benediktsson, menntamálaráðherra Gunnar Thorodd- sen, biskupinn yfir íslandi herra Sigur- björn Einarsson, vígslubiskup Bjarni Jónsson, Eysteinn Jónsson fyrrv. ráð- herra og borgarstjórinn í Reykjavík, Geir Hallgrímsson. Fleiri heillaskeyti bárust, þótt ekki verði þau talin hér. Öll voru þessi skeyti uppörvandi og fallega mælt. Hér verður birt aðeins efni bréfspjalds þess, sem barst frá borgarstjóra Reykjavíkur ásamt fagurri blómakörfu. Það er á þessa leið: Pétur SigurSsson. Akureyri, vagga reglunnar.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.