Eining - 01.03.1970, Page 6

Eining - 01.03.1970, Page 6
6 EINING Þáttur Halldóru Bjarnadóttur í NOREGI UM ALDAMÖTIN 1900 ÁHRIF ALDARFAR LANDSSIÐIR Ínlendingar í Noregi áriö 1898. Halldóra Bjamadóttir með skautafaldinn. Ellefu ára dvöl í Noregi við nám og kennslustörf. (1896—1908). „Guð minn þökk sé þér, þú að fylgdir mér aftur hingað heim. Hér vil ég þreyja. Nýtt hvað í mér er, ísland helga ég þér. Fyrir þig er ljúft að lifa og deyja.“ J. Ól. að mun ekki fjarri sanni, að marga ýJMJf íslenzka unglinga hafi langað til að 1X'.Á~ kynnast Noregi öðrum löndum frem- ur, þegar leystar voru landfestar til náms og frama. — Bar margt til þess: Lestur íslendingasagna, skyldleiki. Margt skylt: Barátta upp á líf og dauða fyrir frelsi og jafnrétti. — Atvinnuvegir líkir: Sjómennska og jarðrækt. — Fréttir af vinsemd og virð- ingu íslendingum sýnd í Noregi. — Fréttir frá Stend landbúnaðarskóla og Voss lýðhá- skóla. — í þeim skólum báðum var margt um manninn frá íslandi, og þaðan bárust hinar ágætustu fréttir. — En „Austan fjalls“ svonefndum: Höfuðstaðnum og döl- unum miklu: Guðbrands- og Austurdal, og hinum breiðu, fögru, frjósömu byggðum, austur þar, var fátt um kynni íslendinga. — En þá kom Ólafía Jóhannsdóttir til skjalanna, þekkti þar nokkuð til, var mikils metin og tillögur hennar. Ég átti hana þarna að og kynni hennar af vinsælu Kvennaheimili. — Því réðst það svo að fara til Noregs þetta haust, 1896, til náms í Kennaraskóla. Það var mikið um að vera í Noregi þetta haust: Friðþjófur Nansen að koma frá Grænlandi með mikinn orðstír. — Þjóðin var í uppnámi, fagnaðarvímu! Gaman að lenda í þessu. — Skólinn var hinn ágætasti, kennararnir miklir íslandsvinir, nemendur ágætir, sem áratugum saman hafa haldið tryggð við hann, allt fram á þennan dag. Já, margt var nú nýtt og nýstárlegt, fyrir 22 ára gamla manneskju, sem kom frá af- skekktum stöðum á íslandi. — Búin að vera heimiliskennari í 5 ár, víðs vegar um land, þar sem safnað var saman börnum og ungl- ingum til náms. — Og gerð var krafa um, að kennarinn gæti líka saumað fötin á heimilisfólkið. (Sumurin notaði maður, að gefnu tilefni, til þess að læra fatasaum). Já, þarna var maður þá kominn, og drakk, eins og dauðþyrstur maður hin nýju fræði, bæði í þjóðlífi og kennarafræðum: Leikhús, listasöfn, sönglist, íþróttir, allt sem nöfnum tjáði að nefna. — Þetta var allt svo nýtt, svo áhrifaríkt, svo ljúffengt! Námið veittist auðvelt, svo það gafst góð- ur tími til að sökkva sér niður í bókmenntir, sækja leikhús og listasöfn og stunda íþróttir. Það vildi líka svo vel til, að herbergis- félagi minn var ákafur aðdáandi leiklistar, og sótti leikhús kostgæfilega. — Létum við ekki fátæktina aftra okkur, heldur sátum við á efstu svölum, þar sem sætin kostuðu 40 aura, heldur en missa af sýningunum. — Ég hafði ekki séð leikið nema skólapilta, þegar ég var barn að aldri í Reykjavík. — Þarna opnaðist manni nýstárlegur heimur, fullur af raunsæi og snilld. Og svo voru það íþróttirnar, fyrst og fremst leikfimin í skólanum, ágæt æfing. — Svo tóku skólafélagarnir mig með sér og kenndu mér á skíðum, lögðu allt til, fóru með mig upp á Holmenkollen, þar sem skiðastökkið var. — Það var ég alveg viss um, að piltarnir dræpu sig þegar niður kæmu úr háalofti, og lagði aftur augun. Mikið hlógu kennararnir, þegar ég sagði þeim frá þessu. — Kvenfélög voru að koma þarna, og kvennablaðið hennar Maríu Jörstad: „Hus- moderen," var prýðilegt. — En um tugi ára höfðu konur, víðs vegar um landið, haft með sér félagsskap, svo hundruðum skipti. — Studdu þau öll heiðingjatrúboðið. — Svo almennt var það og áhrifaríkt, að Noregur var landa hæstur á því sviði, eftir fólks- fjölda, og hefur svo jafnan verið. Við íslendingar, sem þarna vorum stadd- ir stofnuðum með okkur félagsskap. — Nokkrir landar voru þar fyrir, sem veittu okkur húsaskjól. Kristni og kirkjulíf var mikils metið, og varð það ekki sízt til fyrirmyndar og upp- örvunar. — Kirkjurnar voru fullar út úr dyrum. — Mikill og almennur safnaðar- söngur. — Þá voru skörungarnir: Thv. Klaveness og Kristofer Bruun, allsráðandi. Þetta fyrsta ár af þrem í Kennaraskóla varð áhriíaríkt um samstarf og vináttu. — Ég bjóst ekki við, frekar en verkast vildi, að vera nema þetta eina ár í skólanum, vegna fjárhagsins, og að um próf væri varla að ræða, enda ekki svo áríðandi þá, vegna stöðu á íslandi, svo sem síðar varð. En það greiddist úr þessu með aðstoð góðra manna: Móðir mín seldi jarðarparta sína og húseign, og faðir minn í Ameríku hljóp líka undir bagga, svo ég gat verið tvö ár í viðbót í Kennaraskólanum og náð prófi. Nú varð að taka á kröftunum, notfæra sér sem bezt hina ágætu kennslu: Kristin fræði, stílaæfingar, leikfimi, kennsluæfing- ar. — Þar var fyrsta boðorðið, að börnin lærðu að tala skýrt, opna munninn! — Okk- ur gafst kostur á að hlusta á kennslu beztu kennara í barnaskólum höfuðstaðarins. — Var það hin ágætasta fræðsla. — Þá kynnt- umst við um leið nokkuð tilhögun skól- anna. — Á þessum árum kom hin ágæta „Læsebok for Folkeskolen," eftir Nordahl Rolfsen, sem um tugi ára var endurprentuð og notuð um allan Noreg (fyrsta prentun 1892). Prófið gekk vel, kennararnir létu sér mjög annt um að þessi eini útlendingur, sem þarna var, stæði sig, fylgdust með öllu af kostgæfni, og glöddust þegar vel gekk. Að sjálfsögðu hafði það alltaf verið hug- myndin að læra til þess að gera gagn á ís- landi. — Enda jafnskjótt lagt land undir fót að loknu prófi. — Nóg kennslustörf að fá í höfuðstaðnum, tímakennsla (35 aurar), en þegar farið var fram á fasta stöðu með 500 króna árskaupi, var því harðlega neitað af Bæjarstjórn. (Tímakennarar voru þarna margir, sem að sjálfsögðu mátti ekki snið- ganga). Þá var haldið aftur til Noregs og stað- næmst þar. Þá var gott að hafa prófið, og á það fékk ég góða stöðu í barnaskóla Nor- egs. — Þegar ég hafði fengið fasta stöðu, kom móðir mín til mín. Hún undi sér ágæt- lega í Noregi. — Samstarf við yfirmenn og félaga var ágætt og börnin voru skemmti- leg. — Okkur var uppálagt að láta þau tala skýrt, opna munninn! — Við áttum líka að lesa með þeim borðbæn, áður en þau fóru heim til matar. * Já, það var margt, sem haldið var fast við frá fyrri tímum. Það eru nú nær 200 ár síðan hinn merki kennimaður þeirra Norð- * Það kom hérna nýlega kennslukona frá Noregi. — Ég spurði hana að gamni, meðal annars, hvaða borðbæn væri lesin núna í barnaskólum Noregs. — Hún var ekki lengi að hafa yfir gömlu, góðu bænina frá aldamótun- um! Norðmenn halda fast við gamlar venjur. — Garnlar, góðar venjur!

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.