Eining - 01.03.1970, Page 8

Eining - 01.03.1970, Page 8
8 EINING r > FTNT KTr blað um áfengismál, bindindi H. 1 1 VJ 0G öNNUR, MENNINGARMÁL. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: PÉTUR SIGURÐSSON. Blaðið er gefið út með nokkrum fjárhagsstyrk frá ríkinu og Stórstúku íslands og kostar 100 kr. árg., 10 kr. hvert eintak. Utanáskrift til hlaðsins og ritstjórans er: Pósthólf 982, Reykjavík. Sími: 25956. ______________________________________________________ ÁN ÁFENGISBANNS ENGIN LAUSN VANDAMÁLSINS »1 etta er afdráttarlaus yfirlýsing tveggja merkra vísinda- manna — lækna, sem kunnir eru um öll Norðurlönd, og vafalaust víðar. Bæði Svíar og Norðmenn gefa út vönduð fræðirit um áfengismálin. Hið sænska heitir Alkoholfrágan, en hið norska Alkoholspörsmalet. Útgefendur þess eru: Áfengisvarnaráð ríkisins (Statens Edruskapsdirektorat) og Fræðsluráð sam- taka bindindismanna í landinu (Avholdsfolkets Opplysings- rád). Nóvemberhefti þess 1969 er yfir 130 bls. og næstum allt helgað 100 ára minningu Johans Scharffenbergs. Allt heftið er aðallega ritgerðir eftir hann. Þeim sem kynntust Johan Scharffenberg eða fræddust um hann og störf hans, verður liann ógleymanlegur. Mikill var hann í sniðum allavega, andlega og líkamlega: læknir, vís- indamaður, sálfræðingur, vandlátur og mikilvirkur rannsókn- ari áfengismeinsins, tilþrifamikill og geiglaus baráttumaður gegn einum mesta skaðvaldi allra þjóða, áfenginu. Eftir margra ára rannsókn málsins, ígrundun og marg- vísleg kynni þess, er hiklaus úrskurður hans á þessa leið: „Ef ríkið tekur afstöðu með algeru bindindi og stefnir að því, að sigrast á áfengisbölinu eftir fremstu mannlegri getu, er engin önnur leið, rökfræðilega skoðað, til þess að ná þessu markmiði, en löggjöf um takmarkanir á áfengissölu, sem hert er á smátt og smátt, unz algeru áfengisbanni er náð.... Þegar ég viðurkenni réttmæti áfengisbanns, eins og sölu- bann á ópíum og öðrum eiturefnum, til nautna, þá er það sökum þess, hve miklu tjóni áfengisneyzlan veldur samfélagi manna. Þessu tjóni er ekki unnt að afstýra nema meö áfengis- banni, þess vegna er þaö réttur ríkisins aö lögleiöa áfengis- bann. Að þetta er heilshugar álit mitt, kemur ekki sízt af því, að ég er sannfærður um, að miklu meira sannnefnt frjálsræði mun ríkja í ríki áfengisbanns en í ríki áfengissölunnar.“ (Leturbreyting þýðandans). Að baki þessari yfirlýsingu stendur mikill gáfu- og lær- dómsmaður, viðurkenndur af öllum, sem til þekkja, sem geig- laus hetja og afburðamaður til líkams og sálar, og sérfróður í því máli, sem hann hér ræðir. Svo meðhöndlar hann helztu mótbárurnar gegn áfengisbanninu, og þar eru engin vettl- ingatök. Þegar Scharffenberg var 93 ára flutti hann þróttmikið erindi á þingi bindindisfélaga í skólum í Noregi. Fyrir nokkru kom út í Svíþjóð bókin „Medicinska syn- punkter,“ eftir dr. Carl Carlsson. Þar er m.a. sagt: „Við erum á hraðri leið út í eyðileggingu áfengisneyzlunnar," og svo er spurt: „Hefur þjóðin ráð á að halda áfram áfengisdrykkju ?“ Svarið er hiklaust: „Nei. í samfélagi, sem stöðugt verður margbrotnara og vandasamara, verður það frágangssök að halda áfram áfengissölu. Því fyrr, því betra, sem yfirvöldin taka áfengið „hryggspennu,“ því að, án áfengis, ekkert áfengisböl.“ Þannig mælir þessi sérfræðingur, sem er einmitt læknir og hjálparhella drykkj usj úklinganna og veit vel um hvaðhann talar, og sér glöggt að voði er framundan, ef haldið er áfram á sömu braut. Svo halda þjóðir áfram að berja höfðinu við steininn. Því miður kemst skynsemin ekki að, þegar um áfengis- og hernaðarbrjálæðið er að ræða. Það var víst Axel Oxenstjerna, hinn frægi herforingi Svía og um skeið stjórnar- forseti, sem sagði: Þú ættir að vita, sonur sæll, af hve litlu viti heiminum er stjórnað. I heimi manna stjórna oft furðuleg öfl og af furðulegum hvötum, peningurinn er guðinn, og þess vegna heldur áfengis- salan velli. TRÚIN Á MORGUNROÐANN Dr. Richard Beck sendir blaðinu ljóð með þessu nafni, sem hann segist hafa ort fyrir mörgum árum, en fléttað inn í ræð- ur sínar á fundum stúknanna, Framtíðarinnar í Reykjavík, Akurblómsins á Akranesi og umdæmisstúkuþingsins í Reykja- vík sl. sl. sumar, og óskar að ljóðið sé birt í nafni þeirra hjón- anna. Einnig bróðurlegar áramótakveðjur til allra reglusyst- kina heima á ættjörðinni og þakkir fyrir síðustu samveru- stundirnar. Þau hj ón eru bæði félagar í stúkunni Framtíðinni. Ljóðið er á þessa leið: Hreimdjúp og máttug hljómar spámannsröddin hátt yfir storm og brimgný æstra tíða; hvell, eins og lúður hreinum rómi gjalli, hrópar í eyru vegamóðra lýða: „Deyi þín hugsjón, dagar þínir taldir; djásn þín sem hismi, gleymsku seld um aldir.“ Töpum því aldrei trú á fegri daga, trúnni, sem bræddi hlekki ætftarþjóðar; trúnni, sem vígð er saga allra sigra, sóltrú, er skáldsins dýrsta kvæði Ijóðar; trúnni, sem byggir brú að nýjum ströndum, blánar við sjónhring fyrir hennar löndum. Látum, er syrtir, vita stórra vona veginn oss lýsa nýjum himni móti — blys þeirra varða þjóðum þroskaleiðir — þá munu rósir sprejtta upp úr grjóti. Fjærst yfir tímans brimi sollna boða bjarmar af friðardagsins morgunroða. Hugsjóna lát ei slokkna björtu bálin, brennum þau spámannsorð á skjöld og hjarta. Fylgjum þeim djarft, þótt fámenn sveitin verði, feli oss himin nóttin ægisvarta. Bjart er á tindum, burt með sálardoðann, boðum og lifum trúna á morgunroðann. FALLIN HETJA Jakob Peiiersen Þegar blaðið er að fara í prentun berst sú fregn, að fallinn sé einn kunnasti forustumaður bindindismála á Norðurlöndum, Jakob Pettersen, fyrrv. odelstingspresident, rúmlega sjötugur. Hann var á ferð í Ástralíu þegar dánarstundina bar að. Útför lians var gerð í Oslo 23. febrúar sl. — Meira um hann í næsta blaði.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.