Eining - 01.03.1970, Qupperneq 12

Eining - 01.03.1970, Qupperneq 12
12 E I N I N G spara? Eigum við aö Sparnaður, nýtni, samvizkusemi við öll störf og ósvikin vinnuafköst, eru mannbætandi dyggðir og mjög mikilvæg þjóðhollusta. Heimilispóstm'inn, fjölritaða blaðið, sem forstjóri Elli- og hjúkrunarheim- ilisins Grundar, Gísli Sigurbjörnsson, gefur út, víkur að þessu alvörumáli í maíheftinu 1968. Eitthvað kunna skoðanir manna að vera skiptar á þessu máli, eins og flestu öðru, en hvatningarorð Gísla eiga erindi til okkar allra. Þau eru á þessa leið: „Nýlega sá ég auglýsingu í blaðinu Degi á Akureyri. Auglýsingin var frá Búnaðarbanka Islands og var ábending um sparnað — voru menn hvattir til að leggja peninga til hliðar — að leggja þá í sparisjóð bankans. Slíkar auglýsingar eru því miður of sjaldséðar, enda segja of margir, það tekur því ekki að leggja fé í banka, þeir verða verðminni með hverju ári. — Jú, þarna er alvarlegasta vandamálið —gengisfelling á gengisfell- ingu ofan — og svo missir fjöldinn traustið á krónunni — og eyðir henni HWM, Bindindisfélag ökumanna I'ramhald af bls. 11 8. Aukinn verði áróður í útvarpi og sjónvarpi um rétta notkun bifreiða- ljósa. 4. „Gulir steinar" verði fjarlægðir frá þeim stöðum, sem þeirra sýnist lítil eða engin þörf. Ljósa- og símastaur- ar verði fjarlægðir frá akbrautum. Jafnframt verði athugað, hvort ekki sé hægt að lýsa akbrautir á fullnægj- andi hátt án þess að götuljósin séu staðsett yzt við gangstéttarbrúnir. 5. Bílar, sem byrjendur á fyrsta ári aka, séu greinilega merktir. 6. Jafnframt því að sambandsþing BFÖ þakkar greinargóða þætti í útvarp- inu um umferðarmál, lætur það í ljós þá skoðun sína, að það telur þörf á enn auknum áróðri í útvarpi og sjón- varpi um ýms atriði umferðarmála, og bendir í því sambandi einkum á rétta notkun stefnuljósa. oft í alls konar óþarfa. — Þetta þekkj- um við öll — ekki sízt eldra fólkið, sem hjá okkur dvelur. Krónurnar eru nú svo lítils virði, miðað við það, sem áður var — allt verðlag og kaupgjald hefur farið alveg úr skorðum. En sparnaður er þrátt fyrir allt jafn nauðsynlegur hverjum manni í landinu — án peninga, án fjármagns og þar er fyrst og fremst að tala um sparifé lands- manna — er svo ósköp lítið hægt að gera. — Erlend lán — erlent fjármagn og helzt þó hreint og beint framlag kalla þeir það — er í raun og veru ekkert ann- að en gjafafé, sem aumustu vanþróuðu löndunum er veitt bókstaflega oft sem ölmusa. Af þessu höfum við fengið góð- an skerf. — Fyrir nokkru fengum við svona peninga til þess að geta keypt Skaftafell og gert að þjóðgarði og nú er sagt frá því, að einhver alþjóðastofnun gefi okkur (kallað framlag) tíu þúsund dollara til þess að gera athugun á gróð- urlendi á öræfum. Svo borga þeir fyrir alla sérfræðinga, sendinefndir og ráðu- nauta — stundum er það um mó, salt eða Töluverðar umræður urðu á þinginu um áhugamál Bindindisfélags öku- manna. Þingið sendi Ásbirni Stefáns- syni þakkar- og heillaóskaskeyti, sem allir fundarmenn undirrituðu. Framkvæmdastjóraskipti. Öll undanfarin ár hefur Ásbjörn Stefánsson unnið öll sín framkvæmda- stjórastörf BFÖ í hjáverkum og yfir- vinnu, er auðvitað tekinn að þreytast og heilsa verið tæp um tíma. Hann sagði því af sér framkvæmdastjórastarfinu og skilaði af sér — mjög prýðilega — á stjórnarfundi BFÖ 11. janúar sl. Beztu þakkir flutti félagsstj órnin hon- um fyrir mikil og dyggilega unnin störf. Þegar við stofnuðum BFÖ fyrir rúm- um áratug, gekk ég (P.S.) hikandi á fund vinar míns Ásbjarnar Stefánsson- ar, því að ég veit af langri reynslu, hví- líkan vanda félagsstörf leggja mönnum jafnan á herðar, en ég falaði hann samt skipulag — en náttúrlega vitum við þetta allt miklu betur sjálfir — og för- um okkar eigin leiðir — enda er svo allt öðruvísi hjá okkur og þeir þekkja ekki austanveðrin eða rigningarnar og þeir geta því ekki kennt okkur neitt. — En samt fáum við þá — gaman að tala við kurteisa menn, sem hæla okkur fyrir gestrisni og bókmenntir forfeðranna. Án þess að þjóðin fari að spara — hver og einn eftir efnum og ástæðum, kemur sá tími — og það áður en varir — að ekkert verður hjá mönnum að spara — þá verða hjól atvinnulífsins hætt að snúast að mestu. Ríkisstjórnin verður náttúrlega að hafa forystu — án forystu er þjóðin illa stödd. Útgjöld ríkisins skipta þúsund- um milljóna króna og verður að freista þess að spara hér verulega, ekki 100— 150 milljónir, heldur 5—6% af útgjöld- unum — þá fer að muna um það. Við gleymum því oftast, að þjóðin er aðeins 200.000 manns og við hegðum okkur eins og milljóna þjóð. Á þessu höfum við illa ráð lengur — höfum reyndar aldrei haft. — Framundan er vorið og sumarið. Mesti annatíminn fer í hönd, en hvar er atvinnu að fá þegar fjár- magnið vantar? — Fyrirhyggjan var til liðveizlu við okkur, og fékk undir- tektir góðar. Þetta mál þarf svo ekki að lengja. Ásbjörn tók að sér framkvæmdastjóra- starfið og hefur annast það af mikilli árvekni, dugnaði og samvizkusemi frá upphafi. Hann hefur verið okkur hinn áhugasami, prúði og samvinnuþýði fé- lagsbróðir og á skilið hinar hjartanleg- ustu þakkir okkar allra. Góðhug okkar á hann óskiptan, og hin ágæta fjölskylda hans. Öllum okkur, sem sátum stjórnarfund BFÖ 11. janúar 1970, var það mikið ánægjuefni, að við framkvæmdastjóra- starfinu tók ungur ágætismaður, Hauk- ur ísfeld, sonur séra Jóns Kr. ísfelds. Af góðum er hann kominn, gott uppeldi hefur hann hlotið og kynnt sig hefur hann sem sannur manndómsmaður. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn til samstarfs og væntum af honum hins bezta. Siðlaus heimur verður ávallt friðlaus heimur

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.