Eining - 01.03.1970, Síða 13
EINING
13
HEIMILISSÆLA
Hugþekka og vinsæla kvæðið, Litli
fossinn, endar Páll Ólafsson á þessa
leið:
Hann væri sæll, er svona gæti
til sinna gengiö kvikum fæti
og létt sér hverja lífsins þraut
sem lækur falli’ í unnar skaut.
»-----------------------------------«
lítil — margir drukku frá sér fé, vit og
stundum líka æru — svo svo er talað um
gróða — áfengisgróða, sem ríkissjóður
fær. Ríkið græðir en þjóðinni blæðir.
Sparnaður er ekki aðeins það að eyða
minna, heldur er það líka sparnaður, að
fara betur með hlutina, nýtnin þarf aft-
ur að koma til skjalanna. Sparnaður er
það, að fara vel með tímann — vinnu-
svik eru líklega eitt mesta böl þjóðar-
innar. Vinnuafköstin eru oft léleg, þess-
vegna m.a. erum við líka að verða eftir-
bátar hinna — vörur okkar óseljanlegar
af því þær eru of dýrar — kostnaðurinn
við framleiðsluna of mikill, þeir hafa
ekki ráð á að kaupa þær, enda þótt mat-
væli vanti víða um heim.
Aldraða fólkið í landinu þekkir sparn-
að og nýtni — á þessu hvoru tveggja
þurfti oft að halda á langri æfi og án
þessa hvoru tveggja hefði leiðin orðið
enn erfiðari en raun varð á. Unga fólkið
þarf að læra sparnað og nýtni — vissu-
lega mun á hvoru tveggja þurfa á næst-
unni, frekar en nokkru sinni fyrr. For-
ysta þjóðarinnar verður að vera örugg
og markviss, ekki sízt á alvarlegum tím-
um, sem nú eru að koma yfir þjóðina, á
forystunni veltur allt.“
Þessar línur minntu á sig við lestur
bókarinnar, Öldufall áranna, þar sem
Hannes J. Magnússon kemst svo að
orði:
„Mesta og ógleymanlegasta gleði allra
foreldra hlýtur að vera sú að vera þátt-
takandi í gleði barna sinna. Jólin á
Akureyri voru ógleymanleg. Svo komu
allar fj ölskyldu-hátíðirnar. Við létum
skíra öll börnin okkar í heimahúsum.
Við tímdum ekki að láta skíra þau í
kirkjunni. Seinna komu svo fermingar-
veizlurnar, sem ekki voru þó íburðar-
miklar. Enn seinna stúdentsprófin og
loks giftingarnar. Þetta var eiginlega
allt samfelld liátíð. Hvílík auðlegð af
góðum minningum! Og þetta er allt
bundið við okkar ógleymanlegu Akur-
eyri. Hún gaf okkur þetta allt.
Það ættu engir foreldrar að eiga fleiri
börn en svo, að þeir gætu sinnt þeim öll-
um vel, elskað þau öll jafnt og átt nóga
fórnarlund handa þeim öllum." — 151.
bls.
Þessi fagri vitnisburður Hannesar, um
sanna heimilissælu, á vissulega erindi
til margra nútímaheimila. „Þetta var
eiginlega allt samfelld hátíÖ.“ Hvílík
undirstaða væri hverju þjóðfélagi, ef
öll heimili þess væru eins og hér segir.
Og hvílík blessun og heilsulind öllum
landsins börnum. Ekkert er þjóðfélagi
mikilvægara, að engu þarf að hlúa bet-
ur. Gefi Guð foreldrunum öllum vísdóm
og góðan vilja til að rækta og efla slíkt
sæluveitandi fjölskyldulíf.
UPPTÍNINGUR.
Yfirlæknir í Noregi, Victor Borg, full-
yrðir, að í Noregi séu nú minnst 100 þúsund
ofdrykkjumenn. — Slík er uppskera áfeng-
issölunnar.
Tveir ölvaðir ökumenn urðu tveim mönn-
um að bana í Noregi. Þeir sluppu við dóm,
en dóm hlaut ódrukkinn ökumaður, sem ók
á konu svo að hún féll í götuna. — Folket.
*
Á Spáni eru eitt hundrað vínknæpur til
samanburðar við hvert bókasafn.— Accent.
*
Vaxandi trúaróhugi.
í smáriti, sem Gideonfélagið á íslandi
hefur gefið út og heitir Höfuðmarkmið
Biblíunnar, segir: „Trúarlegur áhugi hefur
aukizt svo í Ameríku, að tala safnaðarfé-
laga er orðin 85 milljónir.“
Menn mega vara sig á því, að tala um of
um trúleysi og lélega kirkjusókn. Væri unnt
að rannsaka þetta til hlítar, kæmi sennilega
í ljós, að hjörtu manna hungra eftir full-
nægjandi trú og að áhugi á trú í einhverri
mynd er meiri nú en oftast áður. Sennilega
eigum við í vændum andlega vakningu og
vaxandi trúaráhuga. Eitthvað verður að
breyta því uppeldi þjóða, sem leiðir til
ófarnaðar, friðleysi og siðlegrar hnignunar.
A A. félögin.
Samkvæmt skýrslu þeirra frá aðalskrif-
stofunni í New York árið 1969 er vöxtur
A. A. félaganna (Alcoholics Anonymous)
meðal þjóða utan Bandaríkjanna og Canada
um 20% á ári. í þessum 90 löndum eru fé-
lögin 15.030.
í Norður-Ameríku eru A.A. félögin 78%
af félögunum um heim allan. Tala félags-
manna mun vera um 425.000, sennilega
hærri, en nákvæm ekki til. Af öllum ríkjum
Bandaríkjanna eru félögin flest í Californíu
— 1.258.
Um allan heim eru þessi félög eins konar
björgunarsveitir og vinna mikið og gott
verk. Önnur samtök bindindismanna vinna
einnig að björgun, en aðalstarf þeirra eru
varnirnar, það að forða mönnum frá að
lenda í ógæfunni.
/-------------------------------------------------------------------------------------------
Myndirnar eru báðar nokkuð gamlar. Sú af hvalnum, sem á standa 16 menn, er sjálf-
sagt frá árunum laust eftir síðustu aldamót. Hin er sennilega eins gömul eða eldri,
en al *ur trésins er þúsundir ára. Rótin ofan jörðu hefur klofnað og um það op aka
menn hestvögnum. Sýnir þetta gildleik trésins og mun liæðin vera mikil. — Heilög
ritning spáir því, að sú öld muni renna, þá aldur fólksins verði „eins og aldur trjánna."
Á slíkri xvi ættu menn að geta lært hyggindi.