Okkar á milli - 01.06.1983, Page 2
„Heiðarlegur falsari byrjar nýtt líf" hefst þegar
Jóni Aðalbjörnssyni er sleppt út um hliðið á Litla-Hrauni
eftir að hafa afplánað dóm. innan múra hefur hegðun
hans verið óaðfinnanleg. Hann hefur hugsað sér að svo verði
einnig utan múranna. En Jón hefur ekki verið frjáls
nema í fáeinar mínútur, þegar örlögin byrja að glettast
við hann. Hann sogast inn í hringiðu atburða sem
hann ræður litlu um og hann spyr sjálfan sig hvort honum
sé sjálfrátt, hvort líf hvers manns sé aðeins að
litlu leyti á valdi hans sjálfs.
„Ég kynntist eitt sinn manni, sem kvaðst eiga erfitt með
að skynja sjálfan sig sem þegn eða þátttakanda í
þjóðfélaginu, atkvæði á kjörskrá og svo framvegis.
Hann sagðist aðeins líta á sjálfan sig sem draum; í hæsta
lagi sem persónu í óendanlegri skáldsögu," segir Gunnar
Gunnarsson þegar við spjölluðum við hann um Jón
Aðalbjörnsson falsara. „Þessi skáldsögupersóna fann til
samstöðu með öðrum skáldsagnapersónum og fannst
veruleikinn oft leiðinlegur og bar enga virðingu fyrir lögum,
reglu og tilskipunum. Maðurinn var afbrotamaður, en það
þýðir ekki að hann hafi verið samviskulaus eða slæmur í sér,
eins og sagt er. Hann skynjaði heiminn öðruvísi en flestir,
eins og Jón Aðalbjörnsson.
Gpphaflega samdi__________________________________________
Gunnar Gunnarsson fyrsta kaflann af „Heiðarlegur falsari byrjar
nýtt líf“ og las hann í beinni útsendingu í útvarpinu og bað
hlustendur um tillögur um framvindu sögunnar. Fljótlega kom
í ljós að margir höfðu áhuga á sögunni og flestir vildu
söguhetjunni, Jóni Aðalbjörnssyni allt hið besta þótt
fáir hefðu áhuga á að hann tæki tii
við að þræða þann mjóa veg dyggðarinnar. Hlustendum
fannst mörgum sjálfsagt að Jón gripi hvert
hugsanlegt tækifæri til að auðgast og sleppa fyrirhafnarlítið
frá lífsbaráttunni. Kannski settu menn sjálfa sig í spor
Jóns, þekktu í honum einhvern úr kunningjahópnum,
eða fannst Jón bara brjóstumkennanlegur og vildu efla með
honum sterkari sjálfsbjargarhvöt.
Jón Aðalbjörnsson er hinn heiðarlegi falsari, þessi veikgeðja
tækifærissinni, sem vissulega viil öllum vel og engum
illt, en stenst þó aldrei mátið þegar boðið er upp á
„góð kaup“ eða ríkidæmi án fyrirhafnar. Þannig persónur
eru margar á íslandi okkar daga og kannski fer þeim
fjölgandi. Siðgæðisvitund þeirra er meðfærileg,
viðhorfin breytanleg; við þekkjum tækifærissinna í
stjórnmálum, menningarlífi, viðskiptum; alls staðar -
líka í sjálfum okkur.
Gunnar Gunnarsson, höfundur „Falsarans" segist
vera þeirrar skoðunar, að Jón Aðalbjörnsson skjalafalsari
og undirheimamaður, sé algengur persónuleiki í
ísiensku þjóðfélagi; að hann sé bæði þrautseigur
og útsjónarsamur, geðslegur og oft gamansamur, en að
lífsbaráttan reynist honum langvinn og erfið, vegna þess
hversu óraunsær hann er. Þeim óraunsæju hættir víst
til að vera á stöðugum flótta undan lífinu, erfiðleikum
þess og hinu daglega basli.
Kæri Veraldarfétagi!
Bókaklúbburinn Veröld og bókaforlög-
in fimm sem að honum standa; Fjölvi,
Hlaðbúð, löunn, Setberg og Vaka
bjóða þig og fjölskyldu þína velkomin
í klúbbinn. Þegar við ýttum úr vör fyrir
tæpum tveimur mánuðum
höfðum vió góðar vonir um að geta
aflað nægilega margra meðlima til að
geta boðið fjölbreytt úrval bóka,
listaverka, hljómplatna og annars, á
góðu verði. Við vorum bjartsýnir en
samt hafa móttökur landsmanna farið
langt fram úr vonum.
Eins og áður hefur komið
fram standa fimm landsþekkt bókafor-
lög að Veröld og gerir það okkur kleift
að bjóða úrval sem enginn annar
bókaklúbbur getur státað af - á verði
sem hvergi er sambærilegt. Ennfrem-
ur nýtur Veröld aðstoðar bókmennta-
fræðinga og annarra er hafa mikla
þekkingu og góðan smekk á bókum
og listum. Við munum ávallt bjóða svo
fjölbreytt úrval að hver fjölskyldumeð-
limur finni eitthvað við sitt hæfi - því
Veröld er bókaklúbbur allrar fjölskyld-
unnar.
Fréttablað Veraldar „Okkar á milli"
mun framvegis koma út reglulega
einu sinni í mánuði, fullt af athygl-
isverðum tilboðum. Eins og félögum
er Ijóst af þessu fýrsta tölublaði
bjóðum við annað og meira en
íslenskir bókaklúbbar hafa gert til
þessa. Fjöldi aðila vinnur að sér-
stökum verkum fýrir Veraldarfélaga,
höfundar, myndlistarmenn, nytjalista-
menn og margir aðrir. Við munum
skipuleggja ferðir til útlanda í tengsl-
um við útgáfu einstakra bóka og
ennfremur bjóðast Veraldarfélögum
einstakar Útsýnarferðir á vildarkjörum.
Við munum skipuleggja ferðir á
skemmtanir og listasöfn, í leikhús og
á tónleika - ferðir sem Veraidarfélagar
einir fá að njóta. Fjölmargar bækur
eru komnar í framleiðslu og eiga
margar þeirra ef laust eftir að koma á
óvart. Við munum brydda upp á
mörgu sem félagar okkar munu njóta
góðs af.
Við teljum sjálfsagt að félagar hafi sem
oftast samband við okkur og skýri frá
hverju þeir helst hafi áhuga á og hvað
megi til betri vegar færa, því sameigin-
lega gerum við Veröld að bókaklúbbi
allrar fjölskyldunnar.
Með bestu kveðju,
Jón Karlsson
framkvæmdastjóri
/ \ /