Okkar á milli - 01.06.1983, Blaðsíða 3
Gunnar Gunnarsson er Reykvíkingur, fæddur 1947
og hefur lengst af búið í höfuðstaðnum, ef undan eru
skilin þau ár sem hann kannaði íslensku landsbyggðina
og síðan útlandið þar sem hann segist hafa fengið
„áhuga á röndótta og hornskakka mannlífinu, hinum misskildu
og þeim sem misskilja."
Gunnar hóf ungur að reyna fyrir sér á ritvelli, gerðist
blaðamaður eftir stúdentsprófið en „stefndi alla tíð
að því að verða eigin herra, ráða því sjálfur hvað, hvernig
og hvenær ég skrifa."
Gunnar hefur skrifað tvær sakamálasögur aðrar en „Falsarann”,
auk þess framhaldsleikrit fyrir útvarp. Og til stendur að
Gunnar skrifi fyrir svið og hljóðnema „sem er vissulega
afskaplega spennandi, en ég get ekki að því gert
að mér finnst jafnan að bók sé það merkilegasta sem til er.
Hún þröngvar sér ekki upp á neinn, heimtar ekki
að maður slökkvi og missi af, ef maður er ekki vel fyrir
kallaður. Kannski liggur maður í grasinu ellegar
á ströndinni í sumarleyfinu og les nokkur orð, gónir
upp í loftið, sofnar, heldur áfram
næsta dag; allt eftir því hvernig á
manni liggur."
i!:! .1N [H
HVERNIG Á AÐ PANTA?
Fréttablað Veraldar berst þér mánaðarlega,
hvort sem þú hefur tekið einhverju tilbooi
Veraldar mánuðinn á undan eða ekki.
Er fréttablaðið berst þér hefurðu tiu daga
til að velja úr tilboðunum sem þar eru
kynntog panta.
Athugaðu að ef þú vilt einungis bók
mánaðarins og ekkert hliðartilboðanna
þarftu ekkert að gera, því bók mánaðarins
er send öllum þeim sem ekkiafpanta hana.
Ef félagar taka einhverju hliðartilboðanna
en afpanta ekki bók mánaðarins, fá þeir
hana senda ásamt hliðartilboðinu.
1) Kynntu þér tilboðin sem bjóðast i
fréttablaðinu vel og vandlega. Fylltu
svarseðilinn út i samræmi við óskir 3)
þinar. Þú getur tekið eins mörgum
tilboðum og þú vilt og fengið eins mörg
eintök af hverri bók og þú vilt.
2) Cættu þess að frimerkja svarseðitinn og
setja hann tímanlega í póst. Peir sem
hringja inn pöntun eða afpöntun verða
einnig að gera það tímanlega.
Er pöntunin berst þér fylgir henni
gfróseðill. Á giróseðlinum er tekin fram
upphæðin sem þú átt að greiða. Pú
greiðir ávallt lægsta póstburðargjald
ásamt andvirði þess sem þú pantar.
Gíróseðilinn greiðir þú innan tiu daga
íhæsta pósthúsi, banka eða sparisjóði.
Litaadgreining/skeyting: Prentmyndastofan hl.
FrertablaðVeraldar OKKAR Á MILLI tþ)1983 BókaklubburinnVeröld Ábm. Jon Karlsson
Prentsmiðjan Oddi prentaði • Sent án endurgjalds til félaga í Bókaklubbnum Veröld