Okkar á milli - 01.07.1988, Qupperneq 3
Einu spendýrín sem lifa eingöngu í s jó
Þaö er skemmtilegt, aö í nýjasta bindinu
af Undraveröld dýranna skuli vera fjall-
aö um hvalinu, því aö fá dýr eru meira til
umræðu nú á dögum en einmitt þeir.
Sérhæföasti hópurinn
Hvalir eru lang sérhæfðasti hópurinn
innan spendýrafylkingarinnar. Aö vísu
má benda á ýmsa aðra hópa, sem líka
hafa sérhæft sig aö óvenjulegum lífs-
háttum, svo sem leðurblökurnar með
hinum afar sérkennilegu flughæfileikum
sínum. En þaö sem gerir hvalina svo
sérstæöa er þaö, að þeir hafa slitið allt
samband sitt við þurrlendiö, sem er hið
eiginlega lífssvið spendýranna. Þeir
hafa algerlega lagaö sig aö sjávarlífi, og
er furðulegt aö kynnast því, hvílíkum
ráðum náttúran getur beitt til aö gera þá
sem hæfasta á því sviði.
Óvenjulegir eiginleikar
Hvalir eru að allri líkamsstarfsemi raun-
veruleg spendýr. Þeir eöla sig meö
venjulegum hætti í sjónum, fóstriö
þroskast í legi móöur, sem fæðir kálfinn
og gefur honum fossandi mjólk úr
spena. En hvalir hafa þroskaö meö sér
marga óvenjulega eiginleika, sem
tengjast sjávarlífi. Sem dæmi má nefna,
hvaö þeir geta kafað ofan á mikiö dýpi
og eru á því sviði jafnvel færari en flestir
fiskar. í hvölum eru sérstök líffæri, sem
þekkjast ekki í öörum dýrum, en gera þá
hæfa til aö þola hinn mikla háþrýsting
hafdjúpanna.
Kafnar á þurru landi
Hvalir eru einu spendýrin, sem ala allan
sinn aldur í sjó. Þótt sækýr séu mjög
aðlagaðar sjávarlífi, þurfa þær þó aö
koma svolítinn tíma á ári hverju í land,
og selirnireru enn háöari landi, þarsem
öll æxlun og ungauppeldi þeirraferfram
á landi. Ef hvalur lendir hins vegar á
þurru landi, uppi í fjöru, er úti um hann.
Hann kemst ekki út aftur; hann er svo
þungur, þegar hann kemur upp úr vatn-
inu, aö hann getur ekki andaö og kafnar
því.
3