Okkar á milli - 01.07.1988, Page 4
1
:
Kæru félagsmenn,
Það er okkur sönn ánægja aö
geta boðið fimmtu bókina úr
bókaflokknum Undraheimur dýr-
anna og það bók sem fjallar um
hin fallegu spendýr, hvalina. Fé-
lagsmenn hafa beðið með
óþreyju eftir nýrri bók og getum
við glatt þá með því, aö tvær aðr-
ar nýjar bækur verða í boði á
þessu ári, ein í september og
önnur í nóvember.
Bókapakkarnir hjá okkur eru allt-
af jafn vinsælir og því bjóðum við
nú tvo bókapakka á einstaklega
góðum kjörum. Má þar fyrst
nefna unglingabókapakkann, en
þar eru í boði 7 úrvals bækurfyrir
aðeins 1.745 kr. Einnig bjóðum
við ástarsögupakka sem á alveg
örugglega eftir að gleöja marga í
sumarfríinu, en í honum eru 7
spennandi ástarsögur eftir ís-
lenska höfunda fyrir andvirði
einnar nýrrar. Og þeim sem taka
bók mánaðarins gefst kostur á að
fá ástarsögupakkann með 300
kr. afslætti.
Af öðrum tilboðum má nefna
kassetturnar með upplestri Þor-
steins Thorarensen á hinni sí-
gildu og skemmtilegu sögu um
spýtukarlinn Gosa. Bókin Við
feður, eftir Bill Cosby, er að von-
um einstaklega skemmtileg bók,
enda hefur hún verið efst á met-
sölulistum erlendis í næstum
heilt ár.
Það er því vonandi nóg af góðum
og hagstæðum tilboðum sem
henta vel í sumarfríið.
Með bestu kveðju,
jóydo
Kristín Björnsdóttir
framkvæmdastjóri
OKKAR Á MILLI — Fréttablað
Veraldar. Útgefandi: Bókaklúbb-
urinn Veröld. Ábm.: Kristín
Björnsdóttir. Ritstjóri: Gylfi Grön-
dal. Ljósmyndari: Magnús Hjör-
leifsson. Prentverk: Steinmarksf.
Metsölubók
um allan heim
Fyrirmyndar-
faðirinn
Bill Cosby
Nr.: 2230
Verð: 425 kr.
Allir þekkja Bill Cosby af sjónvarpsþáttun-
um um Huxtable-fjölskylduna, en þeir eru
hér á landi sem annars staðar í heiminum í
efsta sæti á flestum vinsældalistum. En
Cosby skrifar líka bækur, sem njóta ekki
síður vinsælda en sjónvarpsþættirnir.
Bráöskemmtileg
Fyrir síðustu jól kom ein þeirra út á íslensku
hjá Vasaútgáfunni í þýðingu Guðna Kol-
beinssonar og Þorsteins Thorarensen. Við
feður nefnist hún og fjallar um nútímahlut-
verk heimilisföðurins. Hún er bráðskemmti-
leg aflestrar, eins og við er að búast, en
leiðir okkur einnig fyrir sjónir, hvert raun-
verulegt hlutverk föðurins er í breyttu þjóð-
félagi nútímans.
Rúmteppi
frá versluninni Stíll
Hverfisgötu 39
Þetta glæsilega hjónarúmsteppi frá ítalska
fyrirtækinu Missoni, sem verslunin Stíll flyt-
ur inn, er í verðlaun nú í júlí-getrauninni.
Rúmteppinu er hægt að snúa við þannig að
í raun má segja að tvö rúmteppi séu í verð-
laun.
Sá heppni þarf aðeins að uppfylla tvö skil-
yrði: að vera skuldlaus og geta svarað
spurningunni rétt, en hún hljóðar svona:
Hver las inn á kassetturnar um spýtukarlinn
Gosa? Skrifaðu rétta lausn á svarseðilinn á
bls. 7 og sendu okkur eða hringdu inn rétta
lausn.
Grillið fór vestur
Birgir Bjarnason, frá Miðdal við Bolungar-
vík, var sá heppni í apríl-getrauninni hjá
okkur og er eflaust byrjaður að grilla með
nýja Grossag-grillinu sínu. Veröld óskar
honum til hamingju og vonar, að grillið komi
að góðum notum.
4