Okkar á milli - 01.10.1988, Blaðsíða 10
Eitt meginverk
enskra bókmennta
Alís í Undralandi
lesin í útvarpið
Þorsteinn Thorarensen
Um þessar mundir er Þorsteinn
Thorarensen aö lesa í útvarpið
söguna um Alísu i Undralandi,
sem er eitt meginverk enskra
bókmennta. í tilefni af því býöur
Veröld bókina í vandaðri við-
hafnarútgáfu með glæsilegum
litmyndum. Þetta er bók í flokki
með Gosa; sígilt snilldarverk,
sem hafið er yfir alla aldurs-
greiningu.
Bátsferðin fræga
Það var 4. júlí árið 1862, sem
Charles Lutvidge Dodgson fór í
bátsferð með þremur litlum
stelþum um ána Temsu. Hann
var menntaður maður og
stundakennari í stærðfræði við
háskólann í Oxford, en var lík-
amlega bæklaður, heyrnar-
skertur og þjáðist auk þess af
stami. Hann var alla ævi pipar-
sveinn, en afar bacngóður og
hugmyndaríkur. I umræddri
róðrarferð tók hann að segja
stelpunum ævintýri eins og
hann var vanur - og allt í einu
varð sagan um Alísu í Undra-
landitil.
Snjöll þýðing
Lengi vel var sagan aðeins til í
munnlegri geymd höfundar og
telpnanna. En ein þeirra og að-
al söguhetjan, Alice Liddell,
nauðaði í Charles að skrifa
hana niður, þar til hann gaf
henni handrit að þessu óborg-
anlega ævintýri í jólagjöf. Þetta
handrit var síðar gefið út undir
dulnefninu Lewis Carroll og er
nú varðveitt í British Museum
sem þjóðardýrgripur. íslenska
þýðingin er eftir Ingunni E.
Thorarensen, móður Þorsteins,
og hún gaf syni sínum hana að
gjöf endur fyrir löngu. Þetta er
óstytt og snjöll þýðing -og nú er
hún loksins komin fyrir almenn-
ingssjónir í fallegri bók.
Nr.: 2270
Fulltverð: 1.480 kr.
Okkarverð: 1.245kr.
Vaxtarrækt fyrir konur og karla
Fjör og frískir vöðvar er bók um
vaxtarrækt eftir Andreas Cahl-
ing, en Gísli Rafnsson og Sig-
urður Gestsson hafaséð um is-
lensku útgáfuna. Um 120 Ijós-
myndir fylgja æfingunum og eru
til mikils hagræðis fyrir þá sem
nota bókina.
Hentar vel
Þessi bók er alhliða fræðslurit
og hentar því vel öllum þeim
mörgu sem vilja styrkja líkama
sinn nú á dögum og halda
hreysti sinni eins vel og mögu-
legt er - og skiptir þá ekki máli
hvort æft er heima eða í æfing-
arstöð. Einnig birtast í bókinni
upplýsingar um mataræði, hita-
einingaþörf og brennslu við hin
ýmsu störf og íþróttir.
Atvinnumaður
Andreas Cahling, höfundur
bókarinnar, er sænskur að ætt
en búsettur í Bandaríkjunum og
er þar atvinnumaður í vaxtar-
rækt. Hann hefur komið hingað
til lands nokkrum sinnum og
haldið hér námskeið, fyrirlestra
og sýningar. Margir telja, að
hann hafi átt stóran þátt I að
gera vaxtarrækt eins vinsæla
og hún er nú orðin hér á landi.
Nr.: 2271
Fullt verð: 663 kr.
Okkarverð: 299 kr.
10
OKKAR Á MILLI